Steinaldarmaðurinn
2018
(Early Man)
Frumsýnd: 2. mars 2018
Real Men Don't Settle For Bronze
89 MÍNÍslenska
80% Critics
49% Audience
68
/100 Hér segir frá steinaldarunglingnum Dug sem lifir hamingjuríku lífi
ásamt fjölskyldu og vinum í hringlaga dal, talsvert langt frá helstu
hættum heimsins eins og eldfjöllum, risaeðlum og loðfílum. Dag
einn verður heldur betur breyting á högum þeirra þegar bronsaldarkeisarinn
Nooth uppgötvar dalinn og ákveður að sölsa hann
undir sig. Við það er Dug skiljanlega... Lesa meira
Hér segir frá steinaldarunglingnum Dug sem lifir hamingjuríku lífi
ásamt fjölskyldu og vinum í hringlaga dal, talsvert langt frá helstu
hættum heimsins eins og eldfjöllum, risaeðlum og loðfílum. Dag
einn verður heldur betur breyting á högum þeirra þegar bronsaldarkeisarinn
Nooth uppgötvar dalinn og ákveður að sölsa hann
undir sig. Við það er Dug skiljanlega ósáttur en má sín til að byrja
með lítils gegn allri þeirri nýmóðins tækni sem bronsöldin hefur
fært Nooth með tilheyrandi yfirburðum á flestum sviðum. En Dug
er úrræðagóður og svo fer að hann nær að skora Nooth á hólm í
fótboltaleik um hin endanlegu yfirráð. Vinni bronsaldarliðið eignast
Nooth dalinn en vinni steinaldarliðið þarf Nooth að hypja sig. Vandamálið
við þetta er að það er ekki til neitt steinaldarlið í fótbolta ...... minna