"On every street in every city in this country, there's a nobody who dreams of being a somebody. He's a lonely forgotten man desperate to prove that he's alive."
1 klst 54 mín1976
Travis Bickle er fyrrum Víetnamhermaður sem býr í New York borg.
Travis Bickle er fyrrum Víetnamhermaður sem býr í New York borg. Hann þjáist af svefnleysi, og eyðir nóttinni í að aka leigubíl. Á daginn horfir hann á klámmyndir í skítugum kvikmyndahúsum, á milli þess sem hann hugsar um hvernig heimurinn, og þá einkum New York, er kominn niður í svaðið. Hann er einfari sem hefur sterkar skoðanir um hvað er rétt og hvað er rangt hjá mannkyninu. Eina ljósið sem hann sér í lífinu í New York er Betsy, en hún vinnur við kosningabaráttu þingmannsins Charles Palantine. Hann verður gagntekinn af henni. Eftir atvik með henni, þá trúir hann því að hann verði að gera allt sem í hans valdi stendur til að gera heiminn að betri stað. Eitt af forgangsatriðum hans í lífinu er að vernda Iris, tólf ára strokustúlku og vændiskonu, sem hann trúir að vilji komast úr vændinu og úr klóm melludólgsins og kærasta síns Matthew.
Taxi Driver er án efa einhver umdeildasta mynd allra tíma og var lýst ofbeldisfyllri en Clockwork Orange (sem er alls ekki satt) og er án efa með betri myndum Martin Scorsceses. Travis Bickle (Ro…
Taxi Driver er án efa einhver umdeildasta mynd allra tíma og var lýst ofbeldisfyllri en Clockwork Orange (sem er alls ekki satt) og er án efa með betri myndum Martin Scorsceses. Travis Bickle (Robert DeNiro) er fyrrum Víetnam hermaður sem hættir í stríðinu og fer í stórborgina. Hann vinnur sem ökumaður í leigubíl og fyllist viðbjóði af glæpunum og næturlífinu í borginni og tekur þá til sinna eiginn ráða. Útfærsla Scorsceses á stórborgarfyrringu er frábær og það er hægt að gera hvað sem er með Paul Schrader í handriti og Robert DeNiro,Jodie Foster og Albert Brooks og fleiri í aðalhlutverkum. Endaatriðið er eitthvað frægasta atriði kvikmyndasögunnar.
Þessi mynd er góð, Robert De Niro fer með hlutverk Travis Bickle sem er leigubílstjóri sem smátt og smátt dregst inn í sinn eigin geiðveikis heim. Jodie Foster leikur unga stúlku sem ég ma…
Þessi mynd er góð, Robert De Niro fer með hlutverk Travis Bickle sem er leigubílstjóri sem smátt og smátt dregst inn í sinn eigin geiðveikis heim. Jodie Foster leikur unga stúlku sem ég man ekki hvað heitir þótt að ég sé búinn að sjá hana svona 7 sinnum. Þetta er Columbia tristar mynd og er 109 minútur. Er hann er orðinn geðveikur kemur eitt af uppáhalds orðum mínum:You talking to me?. Það er ekki mikil spenna í henni en samt er hún góð, það er aðallega lokaatriðið þegar að spennan kemur, þótt að það sé ekki langt.
Ég er ekki einn af þeim sem að segi að mynd sé góð af því að aðrir segja að hún sé góð, en Taxi driver er hrein og klár snilld.
Myndin fjallar í stuttu máli um leigubílstjóran …
Ég er ekki einn af þeim sem að segi að mynd sé góð af því að aðrir segja að hún sé góð, en Taxi driver er hrein og klár snilld.
Myndin fjallar í stuttu máli um leigubílstjóran Travis Bickle, (Robert De Niro) sem er búinn að fá nóg af óþveranum sem er á götum New york borgar og áhveður að taka málin í sínar hendur og reynir að bjarga Iris (Jodie Foster) 12 ára gamalli mellu frá melludólgnum sem leikinn er af Harvey Keitel.
Robert De Niro sýnir þvílíkan leiksigur í þessari mynd að það lá við að ég stæði upp í sófanum og hrópaði þrefalt húrra þegar myndin var búinn.
Ekki nóg með það að De Niro hafi sýnt snilldar takta heldur gerir Jodie Foster það líka og nánast allir leikarar í myndini.
Þetta er mynd sem ég mæli með og hægt er að horfa á aftur og aftur og er alltaf jafn skemtileg sama hversu gömul hún verður.
Ég á ekki til orð til að lýsa þessari snilldar mynd, mig langar helst til að fara út og öskra. Þessi mynd er mesta snilld.
Hún fjallar um leigubílstjórann Travis(þvílíkt vel leikinn…
Ég á ekki til orð til að lýsa þessari snilldar mynd, mig langar helst til að fara út og öskra. Þessi mynd er mesta snilld.
Hún fjallar um leigubílstjórann Travis(þvílíkt vel leikinn af Robert De Niro) sem keyrir um götur New York borgar á næturna og sér allskonar óþvera sem kemur í ljós á nóttinni og fær allt í einu nóg þegar hann sér vændiskonu sem er aðeins 12 ára (snilldar leikin af Jodie Foster) og ákveður að hreinsa götur New York borgar.
Tærasta snilld sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Martin Scorsese hefur verið einn besta leikstjóri síðustu ára. Hann hefur verið þekktur fyrir gott samstarf við besta leikara síðustu ára, Robert De Niro. De Niro hefur náð stærstu smell…
Martin Scorsese hefur verið einn besta leikstjóri síðustu ára. Hann hefur verið þekktur fyrir gott samstarf við besta leikara síðustu ára, Robert De Niro. De Niro hefur náð stærstu smellum sínum í samstarfi við Scorsese.Taxi Driver var eitt af mörgum samstarfa þeirra sem heppnaðist frábærlega.Myndin er ádeila á bæði undirheima New York borgar og stríð.
Travis Bickle er leigubílstjóri. Hann var hermaður í Víetnam og hefur ruglast verulega eftir það. Sem leigubílstjóri vinnur um nætur vegna svefnleysið. Hann er einfari en ég held ekki að eðli, heldur hefur stríðið breytt honum. Hann kynnist konu að nafni Betsy. Þau fara á nokkur stefnumót og þar sér maður hvað fólk verður ruglað eftir stríð. Hann kynnist svo 12 ára vændiskona að nafni Iris. Við það klikkast hann alveg og ætlar sér að vernda Iris (Jodie Forster).
Lokatriðið er eitthvert magnaðasta atriði sem ég hef séð.
Robert De Niro er ótrulega góður í hlutverki leigubílstjórans. Einn af bestu leikum sem hann hefur sýnt og ég held að hann hafi einugis verið betri Raging Bull. En Jodie Forster er frábær sem tólf ára vændiskona. Og ég held að þetta sé hennar besta hlutverk fyrir utan Clarice Starling í Silence of the Lambs.
Það er ekki spurning að þetta sé með bestu myndum Scorsese´s. Raging Bull er að mínu mati best en ég vil ekki velja á milli þessari og Goodfellas.
Taxi Driver er tímamótaverk sem sýnir New York í sínu raunverulegu ljósi.
Gróf, hrottafengin, ógeðfelld og stórkostlega leikin. Sjaldan hefur De Niro sýnt annan eins stórleik eins og þarna, auk þess sem Jodie Foster er í einu af sínum fyrstu stóru hlutverkum sem …
Gróf, hrottafengin, ógeðfelld og stórkostlega leikin. Sjaldan hefur De Niro sýnt annan eins stórleik eins og þarna, auk þess sem Jodie Foster er í einu af sínum fyrstu stóru hlutverkum sem 13 ára gleðikona. Skylduáhorf sem mest getur orðið.
Það hlýtur að teljast skylda að horfa á þessa mynd. Bæði vegna mjög merkilegs samstarfs tveggja af mestu kvikmyndaleikstjóra og leikara, þeirra Martins Scorsese og Robert de Niro. Einnig a…
Það hlýtur að teljast skylda að horfa á þessa mynd. Bæði vegna mjög merkilegs samstarfs tveggja af mestu kvikmyndaleikstjóra og leikara, þeirra Martins Scorsese og Robert de Niro. Einnig að í þessarri mynd fæðist ný stjarna, Jodie Foster. Sjáðu þessa, oft.
Þetta er frábær mynd þarsem Robert De Niro fer alveg ákostum og ég skil ekki afhverju hann fékk ekki óskar fyrir þessa mynd og ég vill bara spyrja hver fékk óskarinn þetta árið. Ekki m…
Þetta er frábær mynd þarsem Robert De Niro fer alveg ákostum og ég skil ekki afhverju hann fékk ekki óskar fyrir þessa mynd og ég vill bara spyrja hver fékk óskarinn þetta árið. Ekki má gleyma Jodie Foster sem er fantagóð í hlutverki ungu mellunar. Takið vel eftir Harvey Keitel í hlutverki pipsins. Pottþétt skemmtun.
Þessi mynd er snilld. Robert De Niro í einum af sínum bestu hlutverkum sem hann hefur leikið í, fyrir utan Casino og Goodfellas. Martin Scorsese er mjög góður leikstjóri sem gert myndir eins …
Þessi mynd er snilld. Robert De Niro í einum af sínum bestu hlutverkum sem hann hefur leikið í, fyrir utan Casino og Goodfellas. Martin Scorsese er mjög góður leikstjóri sem gert myndir eins og Bringing out the dead, Raging Bull og Casino, þar sem að Robert De Niro var líka í aðalhlutverki. Klassa mynd.
Þessa mynd er ég búinn að horfa á mjög reglulega síðastliðin 12-13 ár og hún verður bara betri og betri. Ein allra besta mynd sem gerð hefur verið. Leikstjórn, leikur, kvikmyndatakan al…
Þessa mynd er ég búinn að horfa á mjög reglulega síðastliðin 12-13 ár og hún verður bara betri og betri. Ein allra besta mynd sem gerð hefur verið. Leikstjórn, leikur, kvikmyndatakan alveg brilliant. Menn skildu bara ekki á settinu hvað Scorsese var að pæla að láta kameruna pana frá De Niro þegar hann var að tala í ákveðnum atriðum. Skildu ekki hvernig það undirstrikaði hans ástand. Algjör snilld. Tónlistin, Bernard Hermann er uppáhalds kvikmyndatónskáld Scorsese og hann var búið að dreyma um að fá að vinna með honum. Hermann gerði meðal annars tónlistina í upphaflegu útgáfuna af Cape Fear sem Scorsese fékk síðan lánaða í sína útgáfu ( náttúrulega aðlagaða, af Elmer Bernstein )af sömu mynd. Ekki var seinna vænna fyrir Scosese því Hermann dó stuttu eftir gerð myndarinnar. Tónlistin er alveg meiriháttar, gjörsamlega undirstrikar myndina. Þessi mynd er miklu mun meira en hún virðist í fyrstu horfun. Þó þér kunni að þykja hún góð í fyrstu horfun þá áttu eftir að dýrka hana eftir aðra horfun. Allra besta mynd Scorsese og ein besta mynd sem gerð hefur verið !
Ein mesta snilld sem sést hefur á hvíta tjaldinu. Ófögur en sannarlega óviðjafnanleg úttekt meistarans Martin Scorsese á einmanaleika og stórborgarfirringu New York. Hér segir frá leigubí…
Ein mesta snilld sem sést hefur á hvíta tjaldinu. Ófögur en sannarlega óviðjafnanleg úttekt meistarans Martin Scorsese á einmanaleika og stórborgarfirringu New York. Hér segir frá leigubílstjóranum Travis Bickle sem vinnur á næturnar sökum svefnleysis og verður vitni að ógeðfelldu næturlífi borgarinnar með öllum sínum hryllingi. Hann er einfari í eðli sínu og á mjög erfitt með að bland geði við annað fólk og er í raun kominn á ystu nöf. Hann kynnist Betsy sem er að vinna að forsetaframboði Charles Palantine. Þau eiga erfitt með að ná saman og slíta sambandinu. Er Travis kynnist Iris, hinni tólf ára vændiskonu brestur eitthvað innra með honum og hann tekur miklum stakkaskiptum og verður hann fullsaddur á allri spillingunni og ósómanum í kringum sig. Þessi fyrrum Víetnam-hermaður verður hrein tímasprengja er vopnast og beinist reiði hans loks að hórumangara stelpunnar. Óskarsverðlaunaleikarinn Robert De Niro er hreinlega stórfenglegur í hlutverki Travis Bickle og vinnur þar stærsta og mikilvægasta leiksigur ferils síns og setur næstu kynslóð leikara mikið fordæmi. Hann er trúverðugur og skemmtilega heillandi sem hin undarlega furðulegi leigubílstjóri sem fær nóg af hinu skuggalegu hlið borgarinnar og reynir að bjarga stelpunni frá því að lifa hinu eymdarmikla lífi vændiskonunnar, og er bara svo góður að það er ekki hægt að lýsa því með orðum þeim tilfinningum sem bærast innra með manni við að vera vitni að túlkun þessa meistaraleikara. Leonard Harris er einnig góður í hlutverki forsetaframbjóðandans. En senuþjófur myndarinnar að De Niro undanskildum er óskarsverðlaunaleikkonan Jodie Foster sem vakti fyrst athygli kvikmyndaunnenda í hlutverki vændiskonunnar Iris og er hún hreint stórfengleg og eftirminnileg sem hin unga en þó lífsvanda stelpa. Einnig eru þau Cybill Shephard, Harvey Keitel, Albert Brooks og Peter Boyle (sem hinn margflókni Wizard) ógleymanleg. Semsagt óviðjafnleg tímamótamynd sem er skemmtilega flókin á allan hátt. Aðall hennar er hiklaust meistaraleikur De Niro á leigubílstjóranum, einnig er handritið, myndatakan og leikstjórn Scorsese einstaklega góð. Þetta er mynd sem hefur löngum verið umdeild fyrir ofbeldi og grimmd en er engu að síður stórfengleg og er ekki síst eftirminnileg vegna þess ofbeldis sem myndin spáði réttilega fyrir að byggi í landinu (samanber Columbine og önnur hörmuleg tilfelli), hún var ekki mótunarvaldur þeirra tilfella, hún sá þau fyrir. Og það er mesti galdurinn við að sjá þessa mynd að maður veit að hún sá fyrir þær hörmungar sem dunið hafa yfir. Fjögurra stjarna meistaraverk sem hefur staðist tímans tönn og er án nokkurs vafa ein af þeim myndum sem mótuðu kvikmyndasögu framtíðarinnar og hafði mikil áhrif á hugsunarhátt fólks á áttunda áratugnum. Allir þeir sem kalla sig kvikmyndaunnendur verða að sjá þessa mynd, fyrr geta þeir ekki skilið ofbeldið sem er að tröllríða heiminum í dag við upphaf nýrrar aldar. Ógleymanleg á allan hátt og er ekki síst einstakt tímamótaverk þeirrar kynslóðar sem mótaði Hollywood nútímans og er nú ráðandi í túlkun nýjustu kynslóðar kvikmyndagerðarmanna