Hér er gert gys að geimmyndaflórunni allt frá Star Trek til Star Wars með tilheyrandi furðuverum og klaufalegum grímubúningum. Átján árum eftir að framleiðslu vísindaskáldsögu-ævintýrasjónvarpsþáttarins Galaxy Quest er hætt, þá koma leikarar þáttanna þeir Jason Nesmith, Gwen DeMarco, Alexander Dane, Tommy Webber og Fred Kwan enn fram við ýmis tækifæri, m.a. á vísindaskáldsöguráðstefnum og búðaropnunum, í búningum og sem persónurnar í þáttunum. Þeir velta sér upp úr eigin örvæntingu og vonleysi, allt þar til geimverur sem ganga undir nafninu Thermians birtast, og halda að þættirnir séu raunveruleiki og hafa byggt alla sína menningu á umhverfi þáttanna. Geimverurnar taka leikarana með sér út í geim til að bjarga sér frá Sarris hershöfðingja og her hans, sem vill gereyða Thermians kyninu.
Þetta er leiðinlegasta mynd sem ég hef séð á ævi minni. Hörmulega leikinn, ömurlegur söguþráður, algjörlega laus við fyndni. Sem sagt EKKI fara á þessa þvælu.
Tim Allen er snillingur. Þáttaröðin hans Home Improvement var snilld með tveimur ellum. Hann sýnir sitt besta í þessari mynd og myndin tekst vel í alla staði. Hún fjallar um þætti sem ger…
Tim Allen er snillingur. Þáttaröðin hans Home Improvement var snilld með tveimur ellum. Hann sýnir sitt besta í þessari mynd og myndin tekst vel í alla staði. Hún fjallar um þætti sem gera grín að Star Trek og öllu því rugli. Tim Allen og crewið hans leikur í þáttaröðunum Galaxy Quest í myndinni og fólk í geimnum er búið að horfa á alla þættina og er búið að gera nákvæma eftirlíkingu af geimskipinu sem var í þáttunum. Tim Allen, Sigourny Weaver, Alan Rickman og restin af crewinu fer út í geiminn til að hjálpa fólkinu að berjast við skrýmsli. Þessi mynd Galaxy Quest er algjör snilld þar sem Tim Allen er aðalmaðurinn eins og alltaf. Hann berst meðal annars við ófreskju úr grjótum. Galaxy Quest er ótrúlega skemmtileg mynd, það verða allir að sjá hana.
ÞVÍLÍK STEYPA!! er það fyrsta sem mér dettur í hug að um skrifa um þessa mynd. En ólík mörgum steypum er þessi steypa alveg djöfulli fyndinn. Bakvið þessa steypu er góð og sniðug hu…
ÞVÍLÍK STEYPA!! er það fyrsta sem mér dettur í hug að um skrifa um þessa mynd. En ólík mörgum steypum er þessi steypa alveg djöfulli fyndinn. Bakvið þessa steypu er góð og sniðug hugmynd þar sem gert er grín af grátlegustu þáttum sem gerðir hafa verið, nefnilega Star Trek og öllum þessum þvílíku furðufólki sem hafa lagst svo lágt að stúdera það hræðilega náttúruslys. Steypan Galaxy Quest er mjög góð gamanmynd sem allir hafa gaman af (líka Star Trek aðdáendur). Ég mæli eindregið með þessari steypu og þú átt eftir að skemmta þér vel, annars kannt þú ekki að meta góða og heilsteypta steypu.
Þvílík og önnur eins vitleysa. En ólíkt flestum öðrum myndum sem falla í þann flokk er þessi bráðfyndin og flott gerð. Jason Nesmith (Tim Allen) lék á árum áður æðsta mann á geim…
Þvílík og önnur eins vitleysa. En ólíkt flestum öðrum myndum sem falla í þann flokk er þessi bráðfyndin og flott gerð. Jason Nesmith (Tim Allen) lék á árum áður æðsta mann á geimskipinu Protector í geimmyndaflokknum Galaxy Quest. Því miður var bundinn endi á þættina árið 1982, og síðan þá hefur "áhöfnin" haft það að aðalstarfi að koma fram á ráðstefnum þar sem safnast saman nördar og frík sem lifa sig inn í þáttinn og kunna söguþræðina betur en leikararnir gerðu nokkurn tíma. (Ætli nokkrum detti Star Trek og William Shatner í hug...?) Dag einn birtist undarlegur hópur á einni ráðstefnunni og áður en Nesmith getur sagt "Dr. Spock" er búið að flytja hann í geimskip Thermiu-búanna sem eiga í stríði við ófrýnileg geimskrímsli. Málið er að Thermiu-búarnir halda að Galaxy Quest séu heimildarþættir um hetjudáðir áhafnar skipsins. Að sjálfsögðu lætur Nesmith "geisla" alla áhöfnina upp til sín. Þar mæta Gwen DeMarco (Sigourney Weaver), Alexander Dane (Alan Rickman), Tommy Webber (Daryl Mitchell), Fred Kwon (Tony Shalhoub) og náungi nokkur sem lék í einum þætti en dó fyrir fyrsta auglýsingahlé (Sam Rockwell). Að góðra mynda hætti takast þau á við ýmis verur og hafa sigur í dagslok. Myndin er stórskemmtileg, maður finnur að allir eru að gera góðlátlegt grín að þessari geim-menningu sem þrífst hérlendis á meðal áhangenda þátta á borð við Star Trek og Babylon 5. Tim Allen er bráðgóður og greinilega feginn að losna úr hlutverki handlagna heimilisföðurins. Bestur er samt Alan Rickman í hlutverki fyrrum Shakespeareleikarans sem festist í hlutverki hins alvitra Dr. Lazarus (Leonard Nimoy og Spock??). Leikstjórinn Dean Parisot gerði hina vanmetnu Home Fries fyrir tveimur árum, og maður sér hér af hverju Spielberg treysti honum fyrir þessari. Mjög góð bíóskemmtun.
Ég verð að segja að þessi mynd kom mér svolítið á óvart. Ég hélt að hún yrði full af 5-aura bröndurum en hún var bara ansi fyndin. Skemmtileg hugmynd bakvið þetta, að láta leikara…
Ég verð að segja að þessi mynd kom mér svolítið á óvart. Ég hélt að hún yrði full af 5-aura bröndurum en hún var bara ansi fyndin. Skemmtileg hugmynd bakvið þetta, að láta leikara í geimþætti stjórna alvöru geimskipi. Það er alveg ótrúlega fyndið hvað það er gert mikið grín að þessum Star Trek(og því um líkt)- aðdáendum. Ágætis skemmtun.
Loksins! Eftir meira en átta mánuði er Galaxy Quest loksins komin til Íslands. Ég vona bara að The Straight Story fari að koma bráðum og að við förum að fá myndir mun fyrr. ÉG VIL FÁ T…
Loksins! Eftir meira en átta mánuði er Galaxy Quest loksins komin til Íslands. Ég vona bara að The Straight Story fari að koma bráðum og að við förum að fá myndir mun fyrr. ÉG VIL FÁ THE CELL NÚNA! En nóg um það. Galaxy Quest er ein af þessum myndum sem öllum finnst skemmtileg (þ.e. allir með réttu viti). Hún er grínmynd en samt svo miklu meira en það; hún er skemmtun í sínu hreinasta formi. Ég man ekki eftir slíkri mynd síðan ég sá Toy Story 2. Handritið er með ólíkindum skemmtilegt og sniðugt og eru flestir brandararnir á kostnað Star Trek þáttanna. Þeir sem ekki ná öllum bröndurunum eða finnast þeir ekki fyndnir geta samt sem áður skemmt sér yfir ævintýralegri sögu og áhugaverðri atburðarrás svo að enginn ætti að verða fyrir vonbrigðum - nema kannski hörðustu Star Trek aðdáendur sem gætu tekið þessari mynd sem móðgun... Ef finna á galla er hann líklegast sá að fyrsti hálftíminn var frekar veikur - ekki leiðinlegur en alls ekki eins frábær og það sem síðar kemur. Góðar brellur, góður húmor, góður leikur, gott handrit, góð mynd!
Stórskemmtileg og einstaklega fyndin gamanmynd sem segir í stuttu máli frá hóp útbrunninna leikara úr geimþáttum sem eru óhugnalega líkir Star Trek. Þeir fá heimsókn frá alvöru geimver…
Stórskemmtileg og einstaklega fyndin gamanmynd sem segir í stuttu máli frá hóp útbrunninna leikara úr geimþáttum sem eru óhugnalega líkir Star Trek. Þeir fá heimsókn frá alvöru geimverum á ráðstefnu nokkurri, en þessar geimverur hafa verið að horfa á þættinu um árabil, halda að þeir séu "sögulegar heimildir" (þ.e. raunverulegir) og vilja nú fá leikaranaáhöfnina til þess að bjarga því sem er eftir af kynstofni þeirra frá bráðri útrýmingu. Það kom mér alveg sérstaklega á óvart hversu vel myndin virkar fyrir mismunandi fólk. Krakkar munu hafa gaman af brellunum (sem eru mjög góðar) og hasarnum, sci-fi aðdáaendur munu ná bröndurum sem fara fram hjá öðrum og þeir sem hata Star Trek geta hlegið af fáránleikanum í þessu öllu saman. Húmorinn er alveg frábær og mjög sniðugur, persónulega þarf ég að leita aftur til American Pie eða There's Something About Mary til þess að finna mynd sem ég hló jafn mikið af. Mynd sem veldur svo sannarlega ekki vonbrigðum!