Nördinn Elliot Richardson sem vinnur við símsvörun hjá tæknifyrirtæki, hefur verið skotinn í Alison Gardner í bráðum fjögur ár. Kvöld eitt, sem byrjar fremur illa fyrir Elliot, lætur hún hann róa. Elliot óskar þess að hún fari aldrei frá honum - og óskir hans rætast. Ótrúlega falleg ung kona kemur að máli við Elliot, og eftir að hún kynnir sig sem Djöfulinn sjálfan, Lúsífer, myrkraprinsessuna, þá býður hún honum samning: Hann fær sjö óskir, en hann lætur hana fá sál sína. Elliot er ekki lengi að taka boðinu. Hver einasta ósk rætist, en hefur hliðarverkanir einnig, og fljótlega vill Elliot slíta samkomulaginu. Það eina sem skiptir hann máli nú er að fá sjálfur að ráða örlögum sínum.
Þótt að Bedazzeled sé ekki mjög góð mynd þá er hún skemmtileg gamanmynd og bara þónokkuð fyndin.
Þó að Brendan Fraser sé lélegur og hundleiðinlegur í Badazzeled þá á hann ekk…
Þótt að Bedazzeled sé ekki mjög góð mynd þá er hún skemmtileg gamanmynd og bara þónokkuð fyndin.
Þó að Brendan Fraser sé lélegur og hundleiðinlegur í Badazzeled þá á hann ekki að vera fyndinn eins og t.d Jim Carrey eða Queen latifah í sínum myndum því hin þokkafull Elizabeth Hurley sér um húmorinn og er bara frábær og virkilega skemmtileg sem djöfulinn sjálfur.
Handritið er eins og í nær öllum Hollywood myndum eins og ég hef margsagt áður nokkuð gallað og klisjur gera varar við sig.Brendan Fraser er líka hryllilegur og þarf ég að vara við honum.Hurley Bætir það samt upp.
Ef þið ætlið að sjá listrænt meistaraverk er bedazzeld einfaldlega ekki það sem þú/þið ert/eruð að leita að en ef þið viljið eiga góða kvöld stund með fjölskyldunni er þetta myndin.
Alveg svakalega fín mynd með Brendan Fraser í aðalhlutverki sem tölvunarfræðingur hjá fyrirtæki. Starfsfélagar hans þola hann ekki og hann er í ástarsorg. Það er ekki fyrr en hinn falln…
Alveg svakalega fín mynd með Brendan Fraser í aðalhlutverki sem tölvunarfræðingur hjá fyrirtæki. Starfsfélagar hans þola hann ekki og hann er í ástarsorg. Það er ekki fyrr en hinn fallni engill Lúsífer(Elizabeth Hurley)býður okkar manni sjö óskir í skiptum fyrir sál sína sem hjólin líta út fyrir að fara að snúast en svona einfalt er þetta nú ekki. Ég er soldið hrifinn af þessari mynd fyrir ýmislegt,þetta er svona gamanmynd sem kann að skemmta manni og Hurley(finnst ykkur hún ekki tala líkt og Anthony Hopkins)og Fraser eru frábær í hlutvekum sínum. Að mínu mati er þessi mynd Bedazzled ein allra skásta mynd sem kvikmyndagerðarmaðurinn Harold Ramis hefur komið nálægt og finnst mér að hann ætti að halda áfram á þessari braut og gera fleiri svona myndir(Groundhog day var engan veginn nógu góð). Bedazzled er því skotheld skemmtun og ég hef mjög gaman af að horfa á hana öðru hvoru. Þrjár stjörnur. Þrjár og hálf ef að endirinn hefði ekki verið svona þunnur.
Skemmtileg endurgerð samnefndar myndar frá 1958 en ég er eiginlega búinn að sjá hana svo oft á Bíórásini að ég er kominn með leið á henni. Óvinsællt nörd (Brendan Fraiser,The Qiuet A…
Skemmtileg endurgerð samnefndar myndar frá 1958 en ég er eiginlega búinn að sjá hana svo oft á Bíórásini að ég er kominn með leið á henni. Óvinsællt nörd (Brendan Fraiser,The Qiuet American) hittir dag einn konu (Elizabeth Hurley,Serving Sara) sem er reyndar djöfullinn sjálfur í kvennmannslíki (bókstaflega) og hún býður honum sjö óskir fyrir sál sína. Þetta er einmitt gott tækifæri til að sigra hjarta kollega hans sem hann hefur alltaf verið skotinn í. En einhvern veginn misheppnast alltaf óskir hans því að það fer alltaf eitthvað úrskeiðis. Fínasta skemmtun.
Bara góð mynd sem ég hef séð reyndar mjög oft og er eginlega kominn með leið á henni en hún fær samt þrjár stjörnur. Brendan Fraser leikur gaur sem hittir Djöfulinn (Elizabet Hurley)og …
Bara góð mynd sem ég hef séð reyndar mjög oft og er eginlega kominn með leið á henni en hún fær samt þrjár stjörnur. Brendan Fraser leikur gaur sem hittir Djöfulinn (Elizabet Hurley)og hún eða réttara sagt hann býður honum sjö óskir fyrir sál sína. Hann þiggur það og reynir að nota óskirnar til að geta orðið kærasti konu sem hann er skotinn í. Kannski langdregið handrit en góður leikur og með Orlando James úr Evolution.
Alls ekki góð mynd. Söguþráðurinn er algjör þvæla myndin er um mann sem selur djöflinum sál sína fyrir sjö óskir. Brendan Fraser og Elizabeth Hurley eru einnig slæm. Ég gef myndini ein…
Alls ekki góð mynd. Söguþráðurinn er algjör þvæla myndin er um mann sem selur djöflinum sál sína fyrir sjö óskir. Brendan Fraser og Elizabeth Hurley eru einnig slæm. Ég gef myndini eina og hálfa stjörnu því maður getur hlegið að sumum bröndurunum.
Gamanmynd sem segir frá afar óvinsælum en ljúfum náunga að nafni Elliot (Brendan Fraiser) sem er orðinn yfir sig þreyttur á að eiga enga vini og finna sér ekki konu. Hann fær óvænt tæki…
Gamanmynd sem segir frá afar óvinsælum en ljúfum náunga að nafni Elliot (Brendan Fraiser) sem er orðinn yfir sig þreyttur á að eiga enga vini og finna sér ekki konu. Hann fær óvænt tækifæri til þess að selja sál sína til djöfulsins fyrir nokkrar óskir - og gerir það. Óskir hans rætast hins vegar ekki alveg á þann hátt sem hann hafði vonað og hann kemst fljótt að því að samkomulagið er ekki eins gott og hann hélt. Það er ofurskutlan Elizabeth Hurley sem fer með hlutverk kölska og kemur ágætlega undan því að mesta leiti. Þetta er reyndar vinalegasti kölski sem ég hef séð á hvíta tjaldinu (hvernig samskiptum þeirra líkur undir lokin er til að mynda alveg út í hött) en þar sem þetta er grínmynd býður efnið varla upp á annað. Til að sjá "aðeins" óvingjarnlegri útgáfu af Satan er The Exorcist betri kostur. Brendan Fraiser er náttúrulega eðal leikari og hann gæti meira eða minna rúllað upp hlutverkinu hérna með bundið fyrir augun. Það er nokkrir gallar í sögunni og við uppbyggingu myndarinnar en fyrir ágæta afreyingu er þetta góður valkostur.