"It was supposed to be the safest room in the house"
1 klst 52 mín2002
Eftir að Meg Altman skilur við eiginmanninn þá flytur hún ásamt dóttur sinni Sarah í gamaldags hús með einni mjög nútímalegri viðbót: Neyðarherbergi sem er...
Eftir að Meg Altman skilur við eiginmanninn þá flytur hún ásamt dóttur sinni Sarah í gamaldags hús með einni mjög nútímalegri viðbót: Neyðarherbergi sem er ógjörningur að brjótast inn í, hannað til að veita skjól ef brotist er inn í húsið. Fyrstu nóttina í húsinu þá brjótast þrír þjófar inn í húsið og Meg og Sarah fara beint í neyðarherbergið. En hinir óboðnu gestir eru að leita að einhverju sem er inni í neyðarherberginu. Til allrar óhamingju er ekki enn búið að tengja beinu línuna í herberginu við lögregluna. Og það sem verra er, Sarah er sykursjúk og í herberginu er enginn sykur ...
Panic room er hress afþreying en skilur lítið eftir sig. David Fincher leikstýrir mjög vel en því miður nær hann ekki að bæta upp fyrir hversu illa Jodie Foster passar í eitt aðalhlutverk…
Panic room er hress afþreying en skilur lítið eftir sig. David Fincher leikstýrir mjög vel en því miður nær hann ekki að bæta upp fyrir hversu illa Jodie Foster passar í eitt aðalhlutverkið og ef að einhver önnur hefði verið valin í staðinn hefði myndin líklega orðið betri fyrir vikið. Reyndar eru nú samt Forest Whitaker og félagar senuþjófarnir þannig að maður sættir sig bara við arfaslaka frammistöðu Jodie. Myndin byrjar leiðinlega en síðan fer hún smám saman að verða ferskari þó að hún er orðin soldið þunn í lokin sem takmarkar einkunnina við tvær og hálfa stjörnu. Ég get nú ekki neitað því að Panic room er spennandi og grunnhugmyndin er sniðug en hún er ekki nógu vel útfærð. Myndatakan er þó alveg frábær og útlitslega séð sver Panic room sér algjörlega í ætt við myndir David Fincher's. En hér er á ferðinni lítil mynd og ólíkt kröftuga meistaraverkinu Fight club(sami leikstjóri) er Panic room mynd sem ekki á eftir að eldast nógu vel. Semsagt, fín mynd bara ekki sú besta frá Fincher.
Panic room er frá David Fincher leikstjóra Fight club og Se7en(ég hef reyndar ekki séð þær en það verð ég að gera bráðlega).
Velgerð,rosalega spennadi og Jodie Foster er mjög góð …
Panic room er frá David Fincher leikstjóra Fight club og Se7en(ég hef reyndar ekki séð þær en það verð ég að gera bráðlega).
Velgerð,rosalega spennadi og Jodie Foster er mjög góð sem aðalpersónan og en seinni hlutinn er nokkuð verri en sá fyrri,klisjur í seinni hlutanum.
Leikurinn er mjög góður nema þá hjá Jodie sem er frábær.
Persónusköpunin er heldur ekki góð.
Nýfráskilin móðir(Foster)flytur með unglingsdóttur sinni(Kristin Stewart)í gamalt og mjög fallegt hús en húsið er með svokallað panic room þar sem er einhverskonar neyðar klefi sem byggður er úr stáli og öryggismyndavélar,sími og matur er geymt þar.Íbúar geta flúið þangað inn og verið öryggir ef brotist er inn eða ef þeir eru skíthræddir.
Svo fyrstu nóttina í húsinu er brotist inn og þá getur verið nothæft að hafa klefann því þær eru öruggar þar eða hvað........
Rosalega spennadi tryllir sem maður er ekki rólegur eitt andartak þegar maður horfir á hana.Leigið þessa ef þið viljið vera hrædd og ekki er amalegt að leigja House of wax sem nýja þó að hún sé ekki beint meistaraverk.
Góður spennutryllir eftir David Fincher sem hefur fært okkur góða spennutryllira eins og Alien 3, Fight Club og Seven. Jodie Foster (Silence of the lambs) leikur konu sem flytur inn í stórt og …
Góður spennutryllir eftir David Fincher sem hefur fært okkur góða spennutryllira eins og Alien 3, Fight Club og Seven. Jodie Foster (Silence of the lambs) leikur konu sem flytur inn í stórt og drungalegt hús með dóttur sinni. Þau vita ekki að í sérstöku herbergi sem heitir Panic Room eða neyðarherbergi er falinn væn fúlga af peningum. En fyrstu nóttina koma innbrotspjófar í leit að peningunum og Foster og stelpan þurfa að verjast þessum gaurum. Forest Whitaker leikur einn af innbrotsþjófunum sem er reyndar góður innbrotsþjófur. Ég vona að Fincher haldi áfram með spennutryllirana og mér finnst hann alveg vera hæfur til að ger hrollvekju.
Alveg góður tryllir með Jodie Foster og Forest Whitaker.Jodie Foster og önnur ung leikkona eru að finna hús og þau flytja yfir í gamalt stórt hús. Þar er herbergi með fölnum pening sem þ…
Alveg góður tryllir með Jodie Foster og Forest Whitaker.Jodie Foster og önnur ung leikkona eru að finna hús og þau flytja yfir í gamalt stórt hús. Þar er herbergi með fölnum pening sem þau vita ekki af. Þau flytja í þetta hús en fyrstu nóttina koma innbrotsþjófar í leit að peningnum. David fincher er ekki svo góður leikstjóri en leikurinn í þessari mynd er svo góður að hann yfirgnæfir það.
Ég var mjög ánægður með þessa mynd og mæli með henni, en ég verð að segja mína skoðun vegna þess að hú er sögð vera svaka spennu trillir. EKKI SAMMÁLA. Mig og fleirrum kunningjum f…
Ég var mjög ánægður með þessa mynd og mæli með henni, en ég verð að segja mína skoðun vegna þess að hú er sögð vera svaka spennu trillir. EKKI SAMMÁLA. Mig og fleirrum kunningjum fannst hún of fyrirsjánleg, alltaf datt manni í hug hvað getðist nokkurn veginn næst. Hún var svona eins og Glass house nema mikið betri koment i Panic room. Svo gat maður hlegið i sumum atriðunum. Svo ég gef henni þessar tvær og hálfa stjörnu vegna þess að hún er góð afþreying.
David Fincher hefur tekist það aftur. Fyrst var það Seven, svo var það Fight Club og nú Panic Room. Þessi mynd er ótrúlega góð og allt er nánast gott í myndinni. Handritið, leikurinn og…
David Fincher hefur tekist það aftur. Fyrst var það Seven, svo var það Fight Club og nú Panic Room. Þessi mynd er ótrúlega góð og allt er nánast gott í myndinni. Handritið, leikurinn og spennan er rosaleg. Jodie Foster hefur ekki sést leika svona vel síðan í Silence of the lambs. Forrest Whitaker er líka góður í henni og gaurinn sem leikur aðal geðsjúklinginn. Ég mæli með að þið farið að sjá þessa.
Traust spennumynd sem heldur sinn halla í klukkutíma og 47 mínútur. Jodie Foster sem bregður aldrei kemur með stórkostlegann leik og líka hinn langbesti leikarinn í myndinni hann Forest Whit…
Traust spennumynd sem heldur sinn halla í klukkutíma og 47 mínútur. Jodie Foster sem bregður aldrei kemur með stórkostlegann leik og líka hinn langbesti leikarinn í myndinni hann Forest Whitaker. Þessar adrenalín myndir eru hans bestu. Fincher leikstýrir myndinni afskaplega vel eins og með Se7en og Fight Club (Alien3). Ég ætla ekki að nöldra í söguþræðinum en eina vandamálið með myndina eru að upplýsingarnar úr trailernum eru of miklar að myndin verður alltof fyrirsjáanleg og líka að ekki var endinn nógu pleasing svona ethicly. Ef þú veist hvað ég á við. En allt í allt er Panic Room sönn spennumynd í allar áttir.
Panic Room er einn albesti spennutryllir seinustu 10 ára líklega. Ég man ekki eftir þegar ég var síðast svona spenntur í bíó. Bókstaflega ALLANN tímann þá nær hún að vera spennandi, o…
Panic Room er einn albesti spennutryllir seinustu 10 ára líklega. Ég man ekki eftir þegar ég var síðast svona spenntur í bíó. Bókstaflega ALLANN tímann þá nær hún að vera spennandi, og aldrei slakar hún á henni. Dave Fincher er núna orðinn einn besti leikstjóri allra tíma. SJÁIÐ PANIC ROOM OG LÁTIÐ YKKUR VERA TRYLLT AF SPENNU...
Í fyrsta lagi vil ég segja að þegar ég fór á þessa mynd vissi ég ekkert hvað ég var að fara á, mig langaði bara í bíó og þetta var skásta myndin að sjá. Næst vil ég segja að í…
Í fyrsta lagi vil ég segja að þegar ég fór á þessa mynd vissi ég ekkert hvað ég var að fara á, mig langaði bara í bíó og þetta var skásta myndin að sjá. Næst vil ég segja að í byrjun (og reyndar áður en ég fór á hana líka) hélt ég að þetta væri yfirnáttúrulegur spennutryllir, tónlistin sem hún byrjaði á gaf það í skyn og fleiri hlutir að auki, svo sem hljóðupptaka og myndataka. Þó hefði ég hugsað út í aðra möguleika hefði ég sennilega fljótlega séð að svo var ekki. Þetta var frábær spennutryllir sem heldur manni hnipruðum í sætinu frá upphafi til enda. Myndin er byggð einungis á um tug leikara þó að ef maður telur allt fólk sem sést í bakgrunn og annað fólk sem leikur ekki beint heldur bara gengur hjá eða eitthvað í þá áttina (sem þó sést nánast bara rétt í byrjun og samt ekki mikið einu sinni þá). Tökuhverfið er ekki stórt og mestan hlutann er bara eitt hús sem er notað er í tökurnar. Á þessu litla hverfi og leikliði byggist myndin og er í rauninni ótrúlega einföld að söguþræði. Tónlistin er alveg frá byrjun þannig að eitthvað sé að fara að gerast og er það hún að stórum hluta sem heldur spennunni heitri frá byrjun til enda. Allt þetta raðast saman í frábæran spennutrylli og ráðlegg ég fólki sem leitar að uppvakningu og spennu eindregið að fara á þessa mynd. Þrjár stjörnur.
Panic Room er mjög vel heppnuð spennumynd sem David Fincher leikstýrði og seinasta myndin sem hann gerði var Fight Club. Panic Room er örugglega ein mesta spennumynd í ár og mér var komið á…
Panic Room er mjög vel heppnuð spennumynd sem David Fincher leikstýrði og seinasta myndin sem hann gerði var Fight Club. Panic Room er örugglega ein mesta spennumynd í ár og mér var komið á óvart, ég hélt að þau væru alla myndina í öryggisherberginu en þegar ég fór á hana fannst mér hún hrikalega góð ég hef ekki séð svona spennandi spennumynd síðan The Matrix og mér finnst hún algjört æði.
Ég rakst á það á netinu fyrir einhverju síðan að David Fincher væri að vinna að nýrri mynd og varð mjög spenntur enda á hann að baki einstakar snilldir þar sem að mínu mati Fight Cl…
Ég rakst á það á netinu fyrir einhverju síðan að David Fincher væri að vinna að nýrri mynd og varð mjög spenntur enda á hann að baki einstakar snilldir þar sem að mínu mati Fight Club er í fararbroddi (mjög klaufalega markaðsett).
Ég leit svo á treilerinn og varð ekkert ýkja ánægður með hann frekar en þegar ég sá treilerinn fyrir Fight Club. En eftir að sjá margar jákvæðar umfjallanir um hana var ég ákveðinn í að fara á hana í bíó.
Myndin byrjar í lausu lofti og það tekur tíma að komast inn í myndina en það er í raun ekki mikið sem gerist í myndinni. Með því á ég við svona grunn-atburðarrás sem helst frekar óbreytt út myndina. Ég er ekki að segja að myndin sé ekki spennandi en hún er það svo sannarlega. Flott tökuhorn ráða þar miklu og myrkt og hrátt umhverfi sem hefur verið til staðar í öllum myndum Finchers hingað til. Sagan er einföld og þarf varla
að skrifa eitthvað sérstaklega um hana en hún er ekkert flóknari en það sem treilerinn segir manni.
Lykillinn að góðum myndum og bókum er að flétta líka smáar sögur inn í grunnsöguna,þannig verður sagan litríkari og
skemmtilegri en sem dæmi má nefna Fight Club sem hefði ekki
verið næstum því jafn frábær ef hún hefði bara snúist um slagsmálin. Fincher dældi þar útúr sér gríðarlegu magni
ýmissa hugmynda og heimspeki varðandi lífið.
Þetta sýnir sig ekki í Panic room og ég varð fyrir miklum vonbrigðum með hana en hún er ekkert meira en frábær leikur og góð tökuhorn. Ágætis mynd en fyllti ekki upp í væntingar mínar.
Ég hafði nokkuð miklar væntingar til þessarar myndar þar sem David Fincher leikstýrir henni. Bestu myndir hans eru Alien3, Se7en og síðast en ekki síst Fight Club. Jodie Foster er líka ein …
Ég hafði nokkuð miklar væntingar til þessarar myndar þar sem David Fincher leikstýrir henni. Bestu myndir hans eru Alien3, Se7en og síðast en ekki síst Fight Club. Jodie Foster er líka ein besta leikkona sem ég veit um sérstaklega út af leik sínum í The Silence of the Lambs.
Panic Room fjallar um mæðgurnar Meg (Jodie Foster) og Sarah Altman (Kirsten Stewart) sem flytja inn í mjög stórt hús á Manhattan. Í húsinu er eitt mjög öruggt herbergi sem var hannað ef innbrotsþjófar skildu brjótast inn en það fékk nafnið panic room. Strax fyrstu nótt þeirra mæðgna í nýja húsinu sínu brjótast þrír innbrotsþjófar þangað inn. Þeir kalla sig Raoul (Dwight Yoakam), Junior (Jared Leto) og Burnham (Forest Whitaker) Meg og Sarah flýta sér að sjálfsögðu inn í verndarherbergið en þjófarnir gefa fljótt til kynna að það sem þeir vilja er þar.
Panic Room heldur áhorfandanum spenntum allan tímann sem er mjög gott mál. En það er á köflum svo lítið að gerast. Myndin er ekki fyrirsjáanleg og kvikmyndataka þeirra Darius Khondji og Conrad L. Hall er alger snilld. Jodie Foser er mjög góð í sínu hlutverki ásamt Forest Whitaker og Jared Leto. Dwight Yoakam var reyndar ekkert að standa sig vel. David Fincher kynnir aðalpersónurnar mjög fljótt til sögunnar og hlutirnir eru mjög fljótir að gerast en endirinn er nokkuð slappur.
Panic Room er ágætis mynd þó svo að ég hafi búist við henni betri. Ég vona að fleiri góðar spennumyndir komi út á árinu en það hefur verið lítið af þeim undanfarið.
Sem mikill aðdáandi Davids Fincher, fór ég á Panic Room með mikilli eftirvæntingu. Viti menn, ég varð ekki fyrir neinum vonbrigðum og steig í lokin út af alveg glæsilega stílískum og ve…
Sem mikill aðdáandi Davids Fincher, fór ég á Panic Room með mikilli eftirvæntingu. Viti menn, ég varð ekki fyrir neinum vonbrigðum og steig í lokin út af alveg glæsilega stílískum og vel uppsettum þriller. Panic Room er eins og 100 mínútna rússibani sem hægir aldrei á sér, og það sem gerir gott enn betra er að myndin er fljót að byrja og eyðir ekki miklum tíma í að stilla upp atburðarásinni. Hún kynnir helstu persónur til leiks og fer síðan beint út í fjörið. Jodie Foster smellpassar í aðalhlutverkið og ber hlutverkið afar vel. Stelpan sem leikur dóttur hennar kom einnig á óvart. Forest Whitaker, Jared Leto og Dwight Yoakam passa líka vel í sín hlutverk sem innbrotsþjófarnir. Stíllinn sem Fincher notar er óaðfinnanlegur að venju, og næstum allt við myndina er æðislegt; myndatakan, tæknibrellurnar (sem maður tekur nánast aldrei eftir), handritið, uppbyggingin, sviðsmyndin og sérstaklega tónlistin, sem skapar svo sannarlega réttu stemmninguna. Fincher á skilið mikið hrós hér, og þó að myndin nái ekki alveg hæðum Fight Club og Seven (svona í alvöru... Hver bjóst svosem við því??), og þótt söguþráðurinn sé fremur þunnur, þá tekst honum mjög vel að bjóða manni upp á pottþétta afþreyingu sem nær að halda uppi spennunni frá upphafi til enda. Panic Room ætti hvorki að svíkja spennufíkla né aðdáendur Finchers og fyrir vikið smelli ég á hana 8/10 í einkunn.