Þegar David Gale, baráttumaður gegn dauðarefsingum, er dæmdur til dauða fyrir morð á samstarfsmanni, þá fer blaðamaðurinn Bitsey Bloom á stúfana til að rannsaka söguna...
Þegar David Gale, baráttumaður gegn dauðarefsingum, er dæmdur til dauða fyrir morð á samstarfsmanni, þá fer blaðamaðurinn Bitsey Bloom á stúfana til að rannsaka söguna á bakvið glæp Gale. Það sem hún finnur, fær hana til að efast um sekt Gale, og að lokum fær hana til að efast um sjálft dómskerfið.
Já það er ekki óhætt að segja að Alan Parker og Paramount Pictures hafa verið að gera það gott í kvikmyndabransanum eftir að myndin Life of David Gale kom út. Myndin fjallar aðallega um…
Já það er ekki óhætt að segja að Alan Parker og Paramount Pictures hafa verið að gera það gott í kvikmyndabransanum eftir að myndin Life of David Gale kom út. Myndin fjallar aðallega um þennan mann David Gale sem er yfir sig haldinn af tölvuleiknum World of Warcraft. Ekki líður á löngu þar til að blessaða fjölskylda hans fer smátt og smátt að hafa áhuga á honum og fer því í burtu. Gale kynnist nokkrum vinum innan leiksins og finnst það rosalega gaman. (Hann fer í Molten Core á helgum). Svo einn daginn kemur til hans álfur sem segist ætla að gefa honum Thunderfury The Blessed Blade of the Windseeker. En þá telur Gale að það sé kominn tími til að stoppa. Enda gerir hann það og fer svo seinna meir hoppandi glaður út í bæ yfir því að vera laus frá þessum fjanda en sér þá þennan leik; Everquest 2. Honum langar rosalega til að kaupa hann og auðvitað gerir hann það. Stuttu seinna er hann dæmdur fyrir morð og nauðgun og er settur í fangelsi og drepinn 2 dögum eftir það.
Alveg ótrúlega góð mynd sem kom svona skemmtilega á óvart. Kevin Spacey er náttúrulega snillingur og sýnir flottan leik. Laura Linney er líka góð en sagan er alveg ótrúlega sniðug og er…
Alveg ótrúlega góð mynd sem kom svona skemmtilega á óvart. Kevin Spacey er náttúrulega snillingur og sýnir flottan leik. Laura Linney er líka góð en sagan er alveg ótrúlega sniðug og er þessi mynd alveg meira en vel þess virði að horfa á.
Góður spennutryllir,kannski þungur á endan en annars góð mynd. Myndin fjallar David Gale sem var stjórandi 'Dauðavaktinni' en það er deild sem fólk er á móti dauðarefsingum. En Gale er ákærður fyrir að hafa drepið kollega sinn.Þá á Laura Linney sem leikur fréttakonu að reyna að sanna að David Gale sé saklaus. Ekki fyrir viðkvæma!
Ég bjóst ekki við að þessi mynd yrði svona góð mynd.
Vafalaust ein besta mynd sem ég hef séð. En Kevin Spacey er í miklu uppáhaldi hjá mér.Enda hefur hann bara leikið í góðum myn…
Ég bjóst ekki við að þessi mynd yrði svona góð mynd.
Vafalaust ein besta mynd sem ég hef séð. En Kevin Spacey er í miklu uppáhaldi hjá mér.Enda hefur hann bara leikið í góðum myndun t.d. American Beauty, Usual suspects, LA Confidential og margar fleiri snildar myndum sem ég hef séð. Mæli með þessari þokkalega í botn. Þetta er svona mynd sem allir verða að sjá...
Ég var að horfa á þessa mynd áðan og verð að segja að mér finnst hún koma merkilega á óvart, ég bjóst ekki við miklu.
ég ætla ekki að segja um hvað myndinn fjallar þar sem það er þegar búið að segja frá henni hér að ofan.
en mér finnst leikur Kevin Spacey og Kate Winslet vera mjög góður. hún er spennandi þessi mynd og já og lokinn koma mjög á óvart við fyrstu sýn en þegar maður pælir í því eftir á þá átti maður að vita þetta en ég segi ekki meir
mæli eindregið með henni ef þú vilt sjá mynd þar sem maður þarf aðeins að pæla í hlutunum
ég gef henni 3 og hálfa stjörnu fyrir góðan leik hjá þeim Kevin Spacey og Kate Winslet og fyrir spennunna og svo fyrir handritið.....Vonandi njótið bara vel
The Life Of David Gale er hádramatískur spennutryllir sem heldur manni heljargripum allann tímann. Prófessor í háskóla að nafni David Gale(Kevin Spacey,The Usual Suspects,American Beauty,Seven…
The Life Of David Gale er hádramatískur spennutryllir sem heldur manni heljargripum allann tímann. Prófessor í háskóla að nafni David Gale(Kevin Spacey,The Usual Suspects,American Beauty,Seven) er kærður fyrir morð á kollega sínum en það þykir óvenjulegt því að hann er talsmaður hóp sem heitir Deathwatch en hópurinn er einmitt á móti dauðadómum en hann er einmitt að fara undir dauðadóm eftir nokkra daga. Blaðamaður (Laura Linney) og aðstoðarmaður hennar taka viðtal við hann og þau ætla að reyna að sanna að hann framdi ekki morðið en þau hafa bara nokkra daga. Myndin er sorgleg og mjög spennandi og í leiðinni áhugaverð og til að bæta við það er hún ótrúlega vel leikin á sama tíma.
Þessi mynd mæti flokka sem ein af þeim gömlu góðu með alvöru plotti á bakvið sem kemur skemmtilega á óvart. Leikarinn Kevin Spacey leikur kennara í háskóla og talsmaður hreyfingar sem …
Þessi mynd mæti flokka sem ein af þeim gömlu góðu með alvöru plotti á bakvið sem kemur skemmtilega á óvart. Leikarinn Kevin Spacey leikur kennara í háskóla og talsmaður hreyfingar sem gengur fyirir að hætt sé að lífláta fólk fyrir glæpi. En dag einn fer allt í klúður og endar hann sjálfur að bíða eftir þess að vera líflátinn. Kallar hann á Kate winslet sem leikur blaðakonu og biður hana að komast að sannleiknum. Leika báðir leikararnir stjörnuleik í þessari mynd. Þetta er frábær mynd sem mér finnst að enginn ætti að missa af!
Ég var í Minneapolis núna um helgina og notaði tækifærið til að kíkja á þessa. Myndin fjallar um kennara að nafni David Gale (leikinn af Kevin Spacey) sem býður þess að vera líflátin…
Ég var í Minneapolis núna um helgina og notaði tækifærið til að kíkja á þessa. Myndin fjallar um kennara að nafni David Gale (leikinn af Kevin Spacey) sem býður þess að vera líflátinn í fangelsi fyrir morð og nauðgun. Þegar þrír dagar eru eftir í aftökuna boðar hann ungan rannsóknarblaðamann, eða blaðakonu réttara sagt (leikin af Kate Winslet) á sinn fund og segir henni sögu sína. Þrátt fyrir að sekt hans virðist liggja ljós fyrir koma í ljós atriði sem varpa efasemdum á sekt Gale's og áður en langt líður er blaðakonan flækt inn í samsæri og hefur aðeins örfáa daga til að komast að botni málsins. Kevin Spacey er góður í sínu hlutverki, en það verður að segjast eins og er að þetta er líklega minnst bitastæðasta hlutverk sem hann hefur leikið - það segir reyndar meira um gæði mynda sem hann hefur áður leikið í en um þessa mynd. Persóna Winslet fór pínulítið í taugarnar á mér en það er ekki hægt að setja mikið út á leikframmistöðu hennar fyrir því. Á heildina litið er söguþráðurinn nokkuð snjall, en það koma fyrir augnablik þar sem myndin missir dampinn. Það má segja að þetta sé pólitísk mynd að ákveðnu leiti því hún fjallar að stórum hluta um dauðarefsingu, þó án þess að predika mikið. Það er samt alveg ljóst hverrar skoðunar handritshöfundur er um þetta málefni og það litar dálítið út frá sér. Þeir gallar sem myndin hefur eru nokkuð minniháttar og hún er í raun aðeins hársbreidd frá því að fá þrjár stjörnur frá mér. Ástæðan fyrir því að stjörnugjöfin er ekki hærri er kannski að ég hafði miklar væntingar til myndar þar sem Kevin Spacey er í aðalhlutverki, og ekki tókst alveg að uppfylla þær.