Fjórði hlutinn í Star Wars seríunni. Myndin byrjar með því að Svarthöfði fer inn í skip uppreisnarmanna. Í sögunni er svo fylgst með sveitastráknum Luke Skywalker, þegar hann og samstarfsmenn hans sem hann hefur nýlega kynnst, Han Solo, Chewbacca, Ben Kenobi, C-3PO, R2-D2, reyna að bjarga uppreisnarleiðtoga, Leiu Prinsessu, úr klónum á hinu illa keisaraveldi. Uppreisnarmenn, Luke og flugmaðurinn Wedge Antilles, gera síðan árás á Dauðastjörnuna.
Frá því að ég var lítill krakki hef ég dýrkað Star Wars, fyrir 13 ára aldurinn þá voru það tæknibrellunar, hasarinn, geislasverðin og Vader sem heilluðu mig mest. Eftir það fór ég…
Frá því að ég var lítill krakki hef ég dýrkað Star Wars, fyrir 13 ára aldurinn þá voru það tæknibrellunar, hasarinn, geislasverðin og Vader sem heilluðu mig mest. Eftir það fór ég að pæla í bíómyndum aðeins meira, ljóminn hélt sér samt yfir þessum myndum og ég hef séð þær oftar en ég þori að telja.
Þegar ég var 4 ára fór pabbi minn með mér á videoleigu. Ég sá spólu sem var með flott cover og pabbi minn sá að þetta var star wars. Við tókum gömlu trílógíuna þá á leigu og horfðum á hana saman. Ég var háður. Síðar fékk ég þessar myndir í jólagjöf í endurgerðri útgáfu sem gefin var út 1997. Þessar myndir voru risastór partur af æsku minni og ég horfði endalaust á þær. Þegar ég var 8 ára þá fór systir mín og kærasti hennar með mér í bíó á The Phantom Menace, þar sem ég var 8 ára(í markhóp myndarinnar)þá elskaði ég hana en gamla trílógían á vissan stað í hjarta mínu sem ekki er hægt að fella úr sessi. Ég sá Phantom menace nokkrum árum síðar og fannst hún þá pirrandi, hún var ekkert eins og ég man eftir. Síðan sá ég auðvitað Episode 2 & 3 en ég vil fara í það síðar.
Nú, hvað get ég sagt? Þetta er ein af 3 uppáhalds myndunum mínum. Ekkert getur breytt þeirri skoðun.Alec Guinnes, Mark Hamill, Harrison Ford, James Earl Jones og Carrie Fisher brillera öll og gefa okkur þessar frábæru persónur sem þroskast út næstu myndir. En þetta er byrjunin, þegar Luke er fátækur bóndasonur, Leia er hörð prinsessa, Han er smyglari og Obi-Wan er... well Obi-Wan. Handritið er að vísu snilld, samtölin eru grípandi og sagan er snilld. Ég get ekki sagt meira nema: May the force be with you.
Þessi mynd er ekki ósvipuð episode 1 að mörgu leiti. Við erum með ungan mann sem seinna verður jedi. Við erum svalan sith lord, Vader í stað Maul. Obi-Wan er drepinn af sith lord í stað Q…
Þessi mynd er ekki ósvipuð episode 1 að mörgu leiti. Við erum með ungan mann sem seinna verður jedi. Við erum svalan sith lord, Vader í stað Maul. Obi-Wan er drepinn af sith lord í stað Qui-Gon Jinn. X-Wing árásin á Death Star svipar mikið til pod race keppninnar. Við erum Padmé drottningu í stað Leiu prinsessu, jæja þið sjáið hvað ég er að fara. Það er hinsvegar eitt sem Hope hefur sem Menace hefur ekki, HAN-SOLO. Ég held að 50% af velgengni fyrstu myndanna hafi verið honum að þakka. Merkilegt að Harrison Ford var bara einhver aðstoðarmaður sem var fenginn til að lesa línurnar en gerði það síðan svo vel að hann fékk hlutverkið. Mark Hamill og Carrie Fisher er ágæt, ekki mikið meira. Leynivopnið er hinsvegar Alec Guinnes. Hann er einn magnaðasti leikari allra tíma og frábær sem Obi-Wan. Það er mjög gaman að sjá hvað Ewan McGregor náði honum vel, það er næstum eins og að þetta sé sama persónan. Það er pínu skrítið að hugsa til þess að stormtroopers eru klónarnir úr síðustu köflum. Þeir ættu því allir að líta út eins og Jango og Bobo Fett undir grímunni.
Plottið fylgir Skywalker börnunum í sitthvoru lagi. Leia kemur skilaboðum til Obi-Wan og þar sem hann er að vakta Luke á Tatooine þá er ekki út í hött að leiðir þeirra mætast. Það er reyndar aldrei útskýrt hvernig Leia þekkir Obi-Wan. Í síðustu mynd sér hann um að afhenda hana fósturforeldrum en svo átti hann að fylgjast með Luke. Væntanlega eiga foreldrar hennar að hafa sagt henni frá honum. Anyway...Luke, Solo og Kenobi dragast inn í andspyrnuhreifinguna og inn í Death Starið. Mér fannst Leia ótrúlega róleg yfir því að plánetan hennar var sprengd í tætlur. Flestir hefðu nú farið í smá fýlu a.m.k. Maður finnur óneitanlega fyrir því að þessi mynd er 30 ára gömul þó svo að Lucas sé búinn að setja inn krúsídúllur eins og tölvugerðar eðlur og flottari bakgrunn. Samt er ótrúlegt hvað þeir gátu gert flottar brellur í þá daga með engri tölvutækni. Það var reyndar mjög umdeild aðgerð en pirraði mig aldrei. Einhver með skoðun á því? Þessi mynd er sígild í klassískum skilningi þess orðs. Ég myndi ekki kalla mig “fanboy” en það er til fólk sem hefur bókstaflega tileinkað lífi sínu Star Wars út af þeim áhrifum sem þessi mynd hafði á sig. Ótrúlegt alveg.
"Do or do not, there is no try".
Þessi mynd var tilnefnd til 10 óskarsverðlauna, sem er mjög óvenjulegt fyrir fantasíur. Ég held að eina undantekningin sé LOTR. Myndin vann 6, þó engin af stóru verðlaununum.
A long time ago in a galaxy far far away.... ég gleymi alldrey þegar ég sá þessa gulu stafi í fysta skiptið, þessi mynd ásamt öllum star wars myndunum er ógleymanlegt listaverk í sögu kvi…
A long time ago in a galaxy far far away.... ég gleymi alldrey þegar ég sá þessa gulu stafi í fysta skiptið, þessi mynd ásamt öllum star wars myndunum er ógleymanlegt listaverk í sögu kvik myndana, og að mínu mati er allt fullkomið við þessar myndir, söguþráðurinn er hrein snild, handritið, leikstjórn, leikur, og væntanlega það ógleymanlega star wars andrúmsloft sem gerði allt klikkað á 6 áratugnum, af mínu mati er þetta ein frumlegasta, skemmtilegasta og flottasta mynd allra tíma, enda ólst ég upp við að horfa á þessar myndir. Þ.m.a er upphálds atriðið mitt af öllum kvikmyndum staðsett í þessari mynd og ég trúi ekki að það sé fólk í heiminum sem fýla ekki star wars, enda er ég dyggur star wars fan og hef alltaf og mun alltaf vera það fjórar stjörnur fyrir ein af bestu myndum allra tíma
Star wars episode IV er að mínu mati langbesta star wars myndin. hún kom út árið 1977 og kom af stað æði sem hefur alltaf verið vinsælt. Luke Skywaleker ( Mark Hamill), Han Solo ( Harrison …
Star wars episode IV er að mínu mati langbesta star wars myndin. hún kom út árið 1977 og kom af stað æði sem hefur alltaf verið vinsælt. Luke Skywaleker ( Mark Hamill), Han Solo ( Harrison Ford ) og Leia Organa (carrie Fisher) eru þrjár aðalpersónur star wars þrennunar og berjast þau gegn illa veldinu. Þar koma fram þeir Darth Vader( David Prowse og Grand moff Tarkin ( Peter Cushing) svo ekki sé mynnt á klónanna. Þessar myndir eru sagðar þær bestu í heimi þar að segja gömlu. Star Wars þótti soldið kjánalegt í kringum 1990 en varð En þá vinsælla árið 1997 þegar star wars wars trilogy special edition sem voru 20 ára afmælis útgáfur Star Wars-Þrennunar voru sýndar. Þá var bætt inní tölvubrellum og annari nútíma tækni. Þessi myn fær fjórar stjörnur .ví allt er cool í henni.
Þessi mynd er ekkert sésrtök. George Lucas, ég eiginlega vorkenni honum, samt er ég mikill aðdáandi Star wars myndanna. Mér finnst þetta allt of slakkt, 2 stjörnur frá mér ég mæli ekki …
Þessi mynd er ekkert sésrtök. George Lucas, ég eiginlega vorkenni honum, samt er ég mikill aðdáandi Star wars myndanna. Mér finnst þetta allt of slakkt, 2 stjörnur frá mér ég mæli ekki mikið með henni..........
Alveg fáranlega skemmtileg mynd sem ég get horft á aftur og aftur og aftur... Hún er svo epísk og klassísk að ef þér leiðist akkurat núna og ert ekki búin að sjá þessa mynd, mæli ég m…
Alveg fáranlega skemmtileg mynd sem ég get horft á aftur og aftur og aftur... Hún er svo epísk og klassísk að ef þér leiðist akkurat núna og ert ekki búin að sjá þessa mynd, mæli ég með því að þú slökkvir á tölvunni og hlaupir (eða keyrir) út í vídeoleigu og takir þessa stórkostlegu afþreyingu. Ekki lifa í efanum... hlauptu skepna, hlauptu!!! Það sem þú átt í vændum er flott tónlist, frábærir leikarar, yndislegur söguþráður og geggjuð skemmtun! Ýkt klístrað!
Þegar þessi mynd kom út árið 1977 þá breyttist kvikmyndaheimurinn gjörsamlega, þegar þessi mynd kom var hún eiginlega fyrsta myndin til þess að sýna svona miklar tæknibrellur á þessum…
Þegar þessi mynd kom út árið 1977 þá breyttist kvikmyndaheimurinn gjörsamlega, þegar þessi mynd kom var hún eiginlega fyrsta myndin til þess að sýna svona miklar tæknibrellur á þessum tíma. Eftir að þessi mynd kom út byrjuðu að koma tæknibrellur í fullt af myndum og núna eru þær búnar að þróast mjög mikið. Að mínu mati er þessi mynd besta Star Wars myndin að öllum þeim sem hafa komið, mér finst Attack of the Clones vera næst best af Star Wars myndunum. Ég get varla beðið eftir að sjá Star Wars 3 The Revenge Of The Sith eftir að ég sá trailerinn. Þessi mynd fjallar um prinsessu að nafni Leia og henni er rænt af Svarthöfða sem James Earl Jones talar fyrir. Áður en henni var rænt þá setti hún skilaboð inná vélmenni af nafni R2 D2 og í þessum skilaboðum segir hún að Obi-Wan Kenobi eigi að bjarga henni. ATHUGIÐ þeir sem hafa ekki séð þessa mynd og ætla að sjá hana HÆTTIÐI AÐ LESA NÚNA. Þetta vélmenni kemst úr geimflauginni sem prinsessan var í og annað vélmenni fer með honum. Hitt vélmennið hét C3PO, þeir lenda á plánetu sem er eiginlega bara eins eyðimörk og þar verðu vélmennin tekin af einhverjum dvergum og verða svo keypt frá þessum dvergum til annara manna. Einn af þessum mönnum sem keyptu þá hét Logi og hann sér skilaboðinn sem voru inná R2 D2 og hann heldur að þessi skilaboð hafa eitthvað að gera með frænda hans Ben-Kenobi(Alec Guinness). Einn daginn þá fer R2 D2 frá heimilinu þeirra og Logi fer að leita af honum og tekur C3PO með sér, þegar hann er að leita af R2 D2 þá finnur sandfók hann og rota hann. Þá finnur Ben-Kenobi frændi hans hann og segir við hann af hann heiti ekki Ben-Kenobi heldur Obi-Wan Kenobi, svo þeir fara heim til Loga og taka vélmennin með. Þar er allt í rústum og þá fer Logi með Obi-wan til Mos Eisley og hitta þar hann af nafni Han Solo(Harrison Ford). Hann ætlar að hjálpa þeim af bjarga prinsessuni frá Svarthöfða ef þeir borga honum nógu og mikin pening. Þannig af þeir fara af reyna að bjarga prinsessuni frá Svarthöfða, þá ætla ekki að seigja meiri söguþráð. Aðalhlutverk eru: Mark Hammill(Star Wars 5 The Empire Strikes Back), Harrison Ford(Indiana Jones The Raiders Of The Lost Ark), Carrie Fisher(Star Wars 5 The Empire Strikes Back) og Alec Guinness(Lawrence of Arabia).
George Lucas gerði marga aðdáendur Star Wars myndina æfa þegar hann tilkynnti að hann ætlaði að gefa út Upprunalega Star Wars þríleikinn á DVD, en í breyttri mynd. Stærsta deiluatriðið snýst um hvort að Han Solo eða Greedo hafi skotið fyrst á barnum í upphafi myndarinnar. Í fyrstu útgáfum skaut Han Solo fyrst, en í síðari útgáfum skaut Greedo fyrst en framhjá (var aðeins í tveggja metra fjarlægð - atvinnumaður í mannaveiðum) og þótti mörgum sem að ákveðinn kraftur væri dreginn úr persónu Han Solo við þessa breytingu. Aðrar breytingar finnst mér góðar. Bardagaatriðin eru gerð skýrari, sviðsmyndin er stækkuð og bæði filma og hljóð hreinsuð til að myndin líti stórvel út. En aðeins um myndina sjálfa. Star Wars er þroskasaga Luke Skywalker sem dregst inn í borgarastyrjöld flestra pláneta stjörnuþyrpingarinnar. Sjálfur telur hann sig vera einfaldan sveitastrák sem vill láta til sín taka og hafa einhver áhrif í heiminum. Hins vegar veit hann ekki að fjölskylda hans býr yfir magnaðri sögu, sem tengist mættinum, afli sem gerir einstaka fólki fært að hafa áhrif á smæstu sameindir og stjórna þeim. Sagan er mjög einföld. Uppreisnarmenn hafa komist yfir teikningar af nýju vopni Keisaraveldisins, Dauðastjörnunni, og þurfa að koma þeim til stjórnstöðva uppreisnarmanna. Leia prinsessa felur teikningarnar í vélmenninu R2D2 og sendir hann ásamt siðatúlkavélmenninu C3PO til plánetunnar Dantooine, þar sem Luke á heima. Luke kaupir vélmennin og kemst um síðir að því að eigandi þeirra er Obi-Wan Kenobi, einfari sem býr í eyðimörkinni. Obi-Wan er að sjálfsögðu Jedi-riddari sem ákveður að koma teikningunum til skila og fær Luke með sér. Til að komast af plánetunni ráða þeir Han Solo og Chubakka til að smygla sér áfram. Þeir þurfa að yfirstíga mjög mörg vandamál, og eitt þeirra stærsta er að þegar þeir koma á staðinn, uppgötva þeir að miðstöðvum uppreisnarmanna hefur verið gjöreytt, og plánetunni Alderan með. Þrátt fyrir allt mótlætið taka hetjurnar á sínum málum og leggja allt í sölurnar gegn keisaraveldinu, og besta illmenni kvikmyndasögunnar: Darth Vader. Það væri hægt að skrifa endalaust um þessa einföldu, en samt margbrotnu og merkilegu mynd, sem ég sá fyrst sjö eða átta ára gamall í Nýja Bíói. Ekki má gleyma því að hljóðið í myndinni, tæknibrellur og tónlist eru hrein snilld. Myndin vann sjö óskarsverðlaun á sínum tíma og var meðal annars tilnefnd sem besta mynd ársins 1977, en þá vann mynd Woody Allens, Annie Hall. Að mínu mati var Star Wars besta mynd ársins 1977.
Þessi mynd er allgjör snilld. Mjög flott meðan við árið 1977 og skemmtilegar tæknibrellur. Luke S. er sonur hins illa sith Darth Vader, hann veit það ekki en í þessari mynd. Þessi mynd fj…
Þessi mynd er allgjör snilld. Mjög flott meðan við árið 1977 og skemmtilegar tæknibrellur. Luke S. er sonur hins illa sith Darth Vader, hann veit það ekki en í þessari mynd. Þessi mynd fjallar um að Jediar erum næstum útdauðir og sith búnir að taka völdin. Þar til að hetjan Luke mætir á svæðið og er með jedi force meðfæddann. Í þessari mynd er hann aðeins en í þjálfun um að verða fullkominn jedi. Jedi eru mannverur/aðrar verur, sem hafa mátt til þess að hoppa hátt, ýta, draga... Þessi mynd er ein besta Star Wars myndin hingað til og episode III er nátturulega ekki komin út. Þessi mynd er tvímanalaust snilld. Horfið á hana, svo aftur, aftur og aftur. Myndin er klassi... Cr4cKeD
Star Wars: A New Hope er mynd sem breitti gangi kvikmyndasögunar. Fólk hafði aldrei áður séð slíka mynd sem var bökkuð af tæknibrellum og frábærum leikurum. Söguþráðurinn er frábær …
Star Wars: A New Hope er mynd sem breitti gangi kvikmyndasögunar. Fólk hafði aldrei áður séð slíka mynd sem var bökkuð af tæknibrellum og frábærum leikurum. Söguþráðurinn er frábær og það var mjög sniðugt af George Lucas að byrja inn í myðri söguni og sýna svo fólkinu hvernig þetta hófst allt saman. Star Wars: A New Hope byrjar með mjög flottu atriði þegar ráðist er á geimskip og svo þróast sagan áfram eftir það. Mark Hamill fer á kostum sem Logi sem dreymir um að verða Jeda-riddari og taka þátt í bardögum. Alec Guinnes er frábær sem Obi-Wan enda var han tilnefndur til Óskarsverðlauna fyri leik sinn í myndinni. Harrison Ford er líka mjög góður sem flugmaður sem er að drukkna í skuldum. Carrie Fisher er líka mjög góð sem Lilja prinsesa. George Lucas er frábær leikstjóri og hefði hann átt skilið að fá óskarsverðlaunin sem besti leikstjóri fyrir þessa mynd. Kvikmyndatakan í þessari mynd er til fyrimyndar og tæknibrellurnar eru líka allveg frábærar. Hins vegar er tónlistin í þessari mynd ásamt tónlistinni úr The Lord of the rings besta tónlist kvikmyndarsögunar. Star Wars: A New Hope er mynd sem allir verða að sjá og er þetta ein sú besta mynd allra tima.
Hvellgeiri er hér aftur á ferð og nýtur sín bráðvel í þessu tækniundri sem varð á sínum tíma vinsælasta mynd allra tíma. Myndin byrjar á hinum klassísku orðum ,,a long, long time ag…
Hvellgeiri er hér aftur á ferð og nýtur sín bráðvel í þessu tækniundri sem varð á sínum tíma vinsælasta mynd allra tíma. Myndin byrjar á hinum klassísku orðum ,,a long, long time ago in a galaxy far, far away sem mörkuðu tímamót á einhvern eða annan hátt í kvikmyndasögunni en ástæðan er mér enn hulin. Star wars er mjög hugmyndarík mynd og þessi heimur sem hún gerist í er jafn ótrúlegur og heimurinn í Hringadróttinssögu og Star trek og áherslan er lögð á hina voldugu Jedi-riddara sem án efa eru sprottnir frá riddurum hringborðsins. Tæknibrellurnar eru geggjaðar og þær bestu sem sést höfðu á sínum tíma en það er einmitt það sem gerir myndina svona einstaka. En hvað er það þá sem myndin hefur ef það er bara þetta ef það væri bara þetta væri myndin ómerkileg en bíðum nú aðeins róleg. Það sem hefur gert myndinni kleift að eldast svona vel er ekki endilega fagmannsvinnan seins ogleklist eða leikstjórn heldur vinnur hún stórsdigur á tónlist og handriti. Lucas er snillingur í að gera yndislega persónur, hver man t.d. ekki eftir þeim óborgaranlegu R2-D2 og C3PO og hinu dularfulla Ben Kenobi, þetta er allt að þakka því hve góður handritshöfundur Lucas er og persónur hans eru einmitt það sem björguðu hans hörmulegu mistökum Howard the duck. Tónlistin er látin gegna sama hlutverki og í 2001 eftir Kubrick þar sem hún sér um að sannfæra mann um hvar í veröldinni maður er staddur og öllu slíku. Tónlistin gerir myndinni líka kleift að sannfæra mann um hverskonar persónur hver og einn er og það er mér enn hulin ráðgáta hvernig Williams fór að því að skapa bæði drungalega og blíðlega tónlist sem er samt ekkert svo ólík.
Lokaúrskurður : Framför í sögu kvimynda á sviði tæknibrellna, persónusköpun og tónlist
A long time ago in a galaxy far far away....
STAR WARS
Episode IV
A NEW HOPE
Með þessum orðum byrjaði ein vinsælasta, dáðasta og áhrifamesta kvikmyndasería allra tíma. R…
A long time ago in a galaxy far far away....
STAR WARS
Episode IV
A NEW HOPE
Með þessum orðum byrjaði ein vinsælasta, dáðasta og áhrifamesta kvikmyndasería allra tíma. Reyndar kostaði það sitt að hafa byrjunina svona dramatíska, George Lucas borgaði sekt og hann sagði sig úr leikstjóra samtökunum “Directors Guild” frekar en að hlýða skipunum þeirra um að byrja kvikmynda á hefðbundinni og þar af leiðandi ófrumlegri opnunar nafnalista. Þessi ákvörðun hans hefur án efa verið ein besta ákvörðun sem hann hefur tekið. Þessi opnun gefur allri myndinni blæ af fornri sögu sem er ekki endilega búin. Kafli 4 af hvað mörgum? Möguleikarnir virðast endalausir. Það eitt að hafa þetta ekki fyrsta kaflann sýnir í raun hvílíkur snillingur George Lucar er í raun og veru. Með þessari saklausu setningu var hann að tryggja sér borgandi áhorfendur í bæði þeim kvikmyndum sem gerðust á eftir þessari og líka þeim sem gerðust á undan. Fólk vill auðvitað sjá byrjunina, jafnt sem endann.
En Star Wars ruddi ekki bara brautina fyrir frumlegum opnunar titlu, hún markaði byrjun ‘big-budget tæknibrellu blockbustera’. Fólk fór að gera meiri kröfur til tæknibrellna, besta dæmið um það er “King Kong” endurgerðin, hún kom út 1976 og þremur mánuðum áður en Star Wars kom í kvikmyndahús vann stóri apinn heiðursverðlaun fyrir tækni- og sjónbrellur í Óskarnum. Ef að brellurnar í upprunalegu Star Wars(ekki Special Edition) og King Kong frá 1976 er augljós munur. Brellurnar í King Kong eru frekar hallærislegar og eiga enga samleið með nútíma kvikmyndum. Brellurnar í Star Wars komu á byltingu sem er enn á fullu í dag, vegna Star Wars og fyrirtækisins Industrial Lights and Magic sem fylgdi í kjölfar hennar, getum við séð T-1000 vélmennið í öllum formum, risaeðlur í allri sinni dýrð og auðvitað uppáhaldið okkar allra, nýar verur í nýjum Star Wars myndum einsog Jar Jar Binks!
En tæknin sem var sköpuð í gerð Star Wars var samt ekki eins góð og hún varð. Lucas hafði tiltölulega lítið ráðstöfunarfé og hafði því ekki nægan pening til að gera myndina einsog hann hafði ætlað. En 20 árum seinna, 1997, var ákveðið að endurútgefa myndirnar vegna 20 ára afmæli fyrstu myndarinnar. Filman var öll hreinsuð og sum atriði voru lengd, sýnt var meira frá borgunum, tæknibrellur yfirfarnar, skepnum bætt inn og svo einu heilu atriði bætt inn. Það atriði er reyndar það eina sem hægt er að setja útá. Þegar Han hittir Jabba the Hutt. Atriðið sjálft er mjög skemtilegt og góð viðbót en það er eitthvað við Jabba, hann er svo augljóslega tölvugerður og er hálf ótrúlegt að sjá Jabba the Hutt í Special Edition útgáfunni af Star Wars árið 1997 og svo Watto og Jar Jar Binks aðeins tveimur árum seinna í “The Phantom Menace”. En ‘endurgerðin’ á Star Wars hepnnaðist samt ótrúlega vel, nýju atriðin blandast auðveldlega með öllu öðru og útkoman verður því næst að vera fullkomin.
Eitt af því alla besta við Star Wars er tónlistin. John Williams hefur gert mörg frábær score, Superman, Jaws, Raiders of the Lost Ark, Close Encounters of the Third Kind, E.T. en ekkert er jafn vel heppnað og Star Wars. Tónlistin er tilkomumikil og glæsileg og dregur áhorfandann algjörlega inn í kvikmyndina. Hún er líka stór hluti af Star Wars menningunni, það eru fáir sem geta horft á Star Wars mynd án þess að vera raulandi “DÚ, Dúú, Dú dú dú DÚ Dúú etc.”
A New Hope gegnir því aðalhlutverki að kynna persónurnar til sögu. Hetjurnar; Luke Skywalker (Mark Hamill), Han Solo (Harrison Ford), Princess Leia (Carrie Fisher), Obi-Wan Kenobi (Alec Guinness), Chewbacca (Peter Mayhew), C-3P0 (Anthony Daniels), og R2-D2 (Kenny Baker). Hvert fimm ára barn kannast við þessi nöfn, allavegana allir fimm ára gamlir strákar sem búa í vesturlöndunum. En illmenninn eru ekki síður þekkt og þekktari ef eitthvað er. ‘Vampírubaninnn’ Peter Cushing sem Governor Tarkin og auðvitað þekkja allir hinn mikla “Dark Lord of the Sith” Darth Vader, þá sérstaklega röddina sem James Earl Jones gefur honum.
George Lucas fékk lánað frá mörgum kvikmyndum, þáttum og bókum þegar hann gerði söguna. Hann hefur viðurkennt sjálfur að Japanska kvikmyndin ‘The Hidden Fortress’ frá árinu 1958 hafi verið hans aðalinnblástur. En hann fær líka lánað frá gömlu ævintýrunum með Flash Gordon og Buck Rogers, gömlum kúreka myndum og fleiru. En George náði að blanda þessu öllu svo vel saman að Star Wars er ekki að stela og kópera heldur er hún að sýna virðingu fyrir öllu því sem hún varð til úr.
En Star Wars er nákvæmlega það sem Flash Gordon og það allt var, hún er pottþétt ‘comic book’ ævintýra sýning. Almenn rök hafa ekkert að gera við svoleiðis myndir. Við mundum ekki vilja að vondukarlarnir mundu hitta alltaf, nei, við viljum að tugir stormtrooperar geti skotið og skotið en aldrei hitt neinn en einn af þeim góðu getur skotið einu skoti og tekið alla stormtrooperana út.
Ég verð nú að segja ykkur sögu frá því þegar að ég fór fyrst á þessa mynd í nýja bíó. Ég var 10 ára og var búinn að fylla herbergið mitt af límmiðum úr cocoapuffs en eins og …
Ég verð nú að segja ykkur sögu frá því þegar að ég fór fyrst á þessa mynd í nýja bíó. Ég var 10 ára og var búinn að fylla herbergið mitt af límmiðum úr cocoapuffs en eins og bíóheimurinn á íslandi var þá var jafnvel gamalt cocoapuffs komið á morgunverðardisk landans á undan bíómyndini þá. En á endanum kom myndin í nýja bíó og þvílík upplifun, þetta var eitthvað sem breytti lífi mínu og af hverju?. Jú, það var þessar stórkostlegu tæknibrellur(sem að eru stórkostlegar enn þann dag í dag) og svo það sem einkennir langflestar klassískar kvikmyndir það er að tónlistin í þeim er næstum jafn ógleymanleg og kvikmyndin sjálf. Sjáið t. d. indiana jones, titanic, E.T., indiana jones og þið vitið hvað ég meina. Star wars A new hope er og verður höfð í hávegum og ef einhver ykkar á börn, kynnið þau fyrir þessu fallega ævintýri.
Þetta er frábær mynd. Georg Lucas tekst mjög vel með allt í myndinni. Tæknibrellurnar eru mjög flottar og gæði myndarinnar sýna það að þetta er ein af bestu vísinda-og ævintýramyndum…
Þetta er frábær mynd. Georg Lucas tekst mjög vel með allt í myndinni. Tæknibrellurnar eru mjög flottar og gæði myndarinnar sýna það að þetta er ein af bestu vísinda-og ævintýramyndum sem hafa verið gerðar. Mark Hamill, Harrison Ford(What Lies Beneath) og Carrie Fisher eru frábær í myndinni og líka James Earl Jones sem röddin í Darth Wader. Mynd sem hægt er að horfa á endalaust.
Fyrsta og besta stjörnustríðsmyndin markaði mikilvæg tímamót í kvikmyndasögunni með tækninýjungum sínum og vinsældum, enda ól hún af sér háværan aðdáendahóp, sem oftar en ekki he…
Fyrsta og besta stjörnustríðsmyndin markaði mikilvæg tímamót í kvikmyndasögunni með tækninýjungum sínum og vinsældum, enda ól hún af sér háværan aðdáendahóp, sem oftar en ekki hefur minnt á sértrúarsöfnuði í málflutningi sínum. Gott dæmi um það er eftirfarandi umsögn um þriðju stjörnustríðsmyndina, sem birtist hér á Kvikmyndir.is „Þeir sem ekki hafa séð Star Wars hafa misst tilgang lífs síns og eru dæmdir til þess að vera útskúfaðir frá hinum sem sáu þessa gimsteina, til EILÍFÐAR“ Enda þótt listrænt gildi kvikmyndarinnar kunni að vera ofmetið af þessum hópi, verður það að viðurkennast, að Stjörnustríð er velheppnuð barnamynd, sem seint mun gleymast. Það er þó með ólíkindum, að stjörnustríðsmyndirnar skuli ekki hafa verið gefnar út sem breiðtjaldsmyndir, þegar þær voru settar á myndbandamarkaðinn með íslenskum texta, því þær eru með öllu ónýtar hálfar.
Hlaut Óskarsverðlaun fyrir bestu sviðsmynd, búninga, tæknibrellur, klippingu, tónlist og hljóðvinnslu. Einnig tilnefnd fyrir bestu leikstjórn, besta mynd, besti leikari í aukahlutverki (Alec Guinnes) og besta handrit.