Bob Harris er bandarískur kvikmyndaleikari sem má muna sinn fífil fegurri. Hann kemur til Tókíó í Japan til að leika í auglýsingu og hittir Charlotte, unga eiginkonu ljósmyndara í vinnuferð þarna. Bob og Charlotte eru bæði lúin og leið og eru því fullkomnir ferðafélagar, þó þau séu ekki trúverðug sem slík fyrirfram. Charlotte er að leita að sínum stað í lífinu, og Bob reynir að þrauka í gegnum hjónaband sem er ekki mjög spennandi. Bæði saman og í sitthvoru lagi upplifa þau hvernig það er að vera Bandaríkjamaður í Tókíó. Bob og Charlotte upplifa bæði rugling sem þessu fylgir og það sem er sprenghlægilegt, vegna menningarmunar og tungumálavandræða. Eftir því sem samband þeirra verður nánara, þá átta þau sig á því að Japansheimsóknin þarf að fara að styttast í annan endann og þeirra vinskapur sömuleiðis.
Lost in Translation er enn önnur góð mynd eftir leikstjórann Sofia Coppola. Hún hefur alveg sannað sig í Hollywood og búið til sitt eigið nafn.
Lost in translation er klárlega mjög spes…
Lost in Translation er enn önnur góð mynd eftir leikstjórann Sofia Coppola. Hún hefur alveg sannað sig í Hollywood og búið til sitt eigið nafn.
Lost in translation er klárlega mjög spes mynd og þekki ég marga sem myndu bara sofna yfir henni. En fyrir þá sem halda sér vakandi er hún mjög áhugaverð.
Hún fjallar um unga stelpu Scarlett Johanson sem er með manninum sínum ljósmyndara í japan. Maðurinn hennar er alltaf að vinna og hefur hún ekkert að gera. Hún hittir aðra reikanda sál Bill Murray, fyrrverandi stórstjörnu, núverandi áfengis auglýsinga leikara.
Þau þróa með sér furðulegt samband og verður áhorfandinn týndur með þeim í Japan.
Þetta er ágætis mynd, hún er eins og myndir Sofiu rosalega flott, tónlistin góð, falleg leikmynd og umhverfi. Scarlett var bara 19 ára þegar þessi mynd kom út en lék hún þetta virkilega fullorðinslega, Bill Murray fékk comeback með þessari mynd og er líka virkilega skemmtilegur í henni.
Þetta er skemmtilegt áhorf fyrir kvikmyndaáhugamenn, en alls ekki fyrir alla, þetta er ekki grínmynd til að horfa á laugarsdagkvöldi!
Lost in Translation er mynd sem er auðveldlega hægt að gleyma. Ef þið pælið í því, þá er varla neitt að gerast í myndinni. En það sem bjargar henni frá algjöru falli er frábært han…
Lost in Translation er mynd sem er auðveldlega hægt að gleyma. Ef þið pælið í því, þá er varla neitt að gerast í myndinni. En það sem bjargar henni frá algjöru falli er frábært handrit Sophiu Coppola. Hún sýnir að hún kann að skrifa góð handrit, og vann Óskarinn verðskuldað. Svo eru samræðurnar í myndinni frábærar, auk þess sem Bill Murray sýnir alveg nýja hlið á sér og fer með hlutverk sitt vel í myndinni og sýnir snilldartakta. Hefði alveg viljað sjá hann vinna Óskarinn fyrir LIT, því það hefði verið verðskuldað líka. Þessi mynd hentar ekki öllum, en er samt hin fínasta skemmtun.
Ekki þessi stórmynd sem ég bjóst við að sjá, allir búnir að segja við mig að sjáðu hana drengur, þannig að ég tók hana og keypti mér hana í rauninni, en ég varð fyrir miklum vonb…
Ekki þessi stórmynd sem ég bjóst við að sjá, allir búnir að segja við mig að sjáðu hana drengur, þannig að ég tók hana og keypti mér hana í rauninni, en ég varð fyrir miklum vonbrigðum, fín til að byrja með en endar rosalega heimskt, ég er ekki nógu sáttur með hana. En Bill Murray er mjög góður eins og alltaf, en endirinn eyðilegur allt
Af einhverjum ástæðum var ég mjög spenntur yfir því að sjá þessa mynd. Hún laðaði að sér stjörnur frá gagnrýnendum eins og segulstál, var með yfir 8 í einkun á IMDB og allir töl…
Af einhverjum ástæðum var ég mjög spenntur yfir því að sjá þessa mynd. Hún laðaði að sér stjörnur frá gagnrýnendum eins og segulstál, var með yfir 8 í einkun á IMDB og allir töluðu um hvað hún væri frábær. Ég gerðist aldrei svo frægur að sjá hana í bíó en það var kannski bara eins gott, LIT er ekki 800 króna virði. Söguþráðurinn í LIT er svona: Hamingjusamlega giftur og moldríkur gæji fer til Japan að leika í auglýsingu og fær tvær milljónir dollara fyrir, en honum leiðist (aumingja hann). Og gella sem er útskrifuð úr Yale sem lítur svo vel út að það líður nánast yfir mann þegar maður sér hana er þarna með kærasta sínum og henni leiðist voðalega líka, og fer að gráta í símann út af því (aumingja hún). Síðan hittast þau og fara aðeins að gera grín af því hvað Japanir eru litlir, verða full en þurfa svo að fara heim og kveðjast með kossi. Þar endar myndin og það eina sem gerst hefur er það að gæjinn hefur haldið framhjá konunni sinni og gellan framhjá kærastanum sínum. Það er glæpsamlegt að Sofia Coppola hafi unnið óskarinn fyrir besta handritið fyrir ÞETTA, Ed Wood gæti gert betur.. Ætli pabbi gamli hafi kannski beðið vini sína í akademíunni að vera góðir við stelpuna sína?
Lost in Translation er ein besta mynd 2003 (ásamt öðrum snilldarverkum). Hún gefur manni skemmtilega sýn inn í heim Tokyo og inn í menningu Japana. Einnig sýnir þessi mynd hvernig manneskja f…
Lost in Translation er ein besta mynd 2003 (ásamt öðrum snilldarverkum). Hún gefur manni skemmtilega sýn inn í heim Tokyo og inn í menningu Japana. Einnig sýnir þessi mynd hvernig manneskja frá allt annarri menningu reynir komast áfram í þessari framandi menningu. Mér finnst Bill Murray algjör snillingur í þessari mynd. Hann leikur mann sem þjáðist af gráa fiðringnum og er staddur út í Tokyo, langt frá fjölskyldu og eigin heimi. Hann slær alveg stórkostulega í gegn og lætur mann liggja í hláturskasti (hehe). Í öllum þessum ringlulreiðum kynnist hann ungri stelpu, sem leikin er af hinni fallegu Scarlett Johansson. Hún er eins og hann, alein inní þessum stóra heimi, og í gegnum það kynnast þau. Ég mæli eindregið með þessari mynd. Ég veit að ég virðist alltaf gefa 4 stjörnur en með þessa mynd, þá á hún ekkert minna skilið. Enjoy...;)
Ég átti boðsmiða og ákvað bara að skella mér á þessa mynd því að hann var að verða útrunnin eftir 1 dag... Ég héllt að hún væri samt alveg skemmtileg en það var hún ekki... Þe…
Ég átti boðsmiða og ákvað bara að skella mér á þessa mynd því að hann var að verða útrunnin eftir 1 dag... Ég héllt að hún væri samt alveg skemmtileg en það var hún ekki... Þessi mynd hefur nánst engann söguþráð og ég mæli ekki með að sjá hana. Kannski myndi ég leigja hana ef þetta væri eina spólan á landinu...neinei hún er ekki það leiðinleg bara mæli ekki með henni :O)
Ég veit ekki! Stórskrítin mynd sem þó er ekki hægt að mæla á móti. Myndin hefur alls ekki mikið skemmtanagildi en samt er aldrei langt í húmorinn og er hún vel brosleg á köflum og hel…
Ég veit ekki! Stórskrítin mynd sem þó er ekki hægt að mæla á móti. Myndin hefur alls ekki mikið skemmtanagildi en samt er aldrei langt í húmorinn og er hún vel brosleg á köflum og heldur manni því nokkurnveginn við efnið. Persónur myndarinnar hafa lítið að geima og eru hálf þunnar. Lífi túrista í Tokyo er lýst sem hálf tilbreytingalausu og leiðinlegu þar sem lítið er að sjá nema hótelbarinn og spilakassasali. Ég var við skjáinn allan tímann en þó hefði verið gott að geta hraðspólað öðru hverju því hún er löng og ekki nógu skemmtileg.
Mæli ekki með henni en heldur ekki á móti henni, hún gæti reynst ágætlega í þynnkunni.
Ég á bara ekki til orð yfir dómana sem þessi hrútleiðinlega mynd hefur fengið. Vissulega ef fólk horfir bara í leikstjórn, leik, förðun og búninga og þannig háttar þá kannski er hún…
Ég á bara ekki til orð yfir dómana sem þessi hrútleiðinlega mynd hefur fengið. Vissulega ef fólk horfir bara í leikstjórn, leik, förðun og búninga og þannig háttar þá kannski er hún sæmileg. En skemmtanagildið er bara hreint ekkert. Mér þykir skemmtilegra að horfa útum gluggann heima hjá mér - þar er ekki verið að leika neitt og ekki hægt að kvarta yfir raunveruleikamissi sem markast af förðun, leik og leikstjórn o.þ.h. Í glugganum heima gerist samt meira en í Lost in Translation - kannski einhver að detta í hálkunni eða bara eitthvað. Þegar ég var búinn að horfa á Lost in Translation - sem ég meira að segja píndi mig í að klára - þá spurði ég sjálfan mig: Um hvað fjallaði þessi mynd? Svarið er einfalt: EKKERT!!
Ég tók líka eftir því að ég var farinn að fylgjast með punktinum í klukkunni blikka á meðan ég horfði á myndina - það var bara hreinlega miklu áhugaverðara en myndin sjálf.
Ég er þannig manneskja sem vil skjálfa í beinum eða geta ekki hugsað vegna hláturs.Ég botna ekkert í handritinu eða myndinni og fannst endirin hræðilegur:( Ég hvet unglinga til að sjá e…
Ég er þannig manneskja sem vil skjálfa í beinum eða geta ekki hugsað vegna hláturs.Ég botna ekkert í handritinu eða myndinni og fannst endirin hræðilegur:( Ég hvet unglinga til að sjá einhverja aðra mynd því að þessi höfðar beinlínis ekki til táninga eins og ég er. Ég er líka mikil kvikmynda aðdáandi og um þessa mynd er það eina sem ég get sagt að hún er mjög djúphugsuð og ég sé ekki að það sé neitt ástar samband á milli þeirra eins og átti að vera. Þess vegna tell ég að hún höfði ekki til unglinga, því hún er gjörsamlega alltof djúphugsuð og óskiljanleg fyrir fólk sem vil geta slakað á og horft á myndina án þess að hugsa.
Ég held að lýsingarorðið 'fallegt' segi allt sem segja þarf. Bill Murray er frábær leikari og skilar hlutverki sínu í Lost In Translation frábærlega. Hann leikur Rob Harrys sem er heimsfrægur leikari sem er í Tokíó í þeim tilgangi að leika í viskíauglýsingu - og fær fyrir 2 milljónir dala. Hjónaband Rob's er ekki gott, enda er hann lítið heima. Börnin hans vilja ekki tala við hann þegar hann hringir heim og eiginkona hans sýnir honum enga athygli, honum líður ekki vel. Á sama tíma, og Rob er í Tókíó, er Charlotte þar með eiginmanni sínum - sem er ljósmyndari að atvinnu. Charlotte og Rob eru bæði einmana sálir í leit að ást og vináttu. Charlotte er leikin af Scarlett Johansson, og átti hún - að mínu mati - skilið óskarstilnefningu fyrir hlutverk sitt.
Lost In Translation er falleg kvikmynd sem snerti hjarta mitt svo um munaði og mæli ég með henni fyrir börn sem aldraða.
Ég skil vel að Bill Murray hafi fengið tilnefningu fyrir þessa mynd hann stendur sig svakalega vel í sínu hlutverki sem og allir aðrir leikarar. Annað við þessa mynd er samt frekar dapurt, f…
Ég skil vel að Bill Murray hafi fengið tilnefningu fyrir þessa mynd hann stendur sig svakalega vel í sínu hlutverki sem og allir aðrir leikarar. Annað við þessa mynd er samt frekar dapurt, fyrir utan húmorinn sem er lúmskt góður. Myndin er samt sem áður leiðinleg og skemmtanagildið er ekki til staðar.
Þrátt fyrir það að myndin sé leiðinleg er ekki hægt að mæla gegn henni því hún er athyglisverð og nokkuð findin. Furðulegur dómur fyrior furðulega mynd sem þó á vel við:
Hversu góð var myndin?
Ég veit eiginlega ekki hvernig ég að að mæla það, ég var langt í frá skjálfandi af spennu í sætinu eða hlæjandi að hverju einasta atriði... Hinsvegar held …
Hversu góð var myndin?
Ég veit eiginlega ekki hvernig ég að að mæla það, ég var langt í frá skjálfandi af spennu í sætinu eða hlæjandi að hverju einasta atriði... Hinsvegar held ég að ég hafi aldrei áður farið út úr bíósal eins gjörsamlega sáttur við myndina sem ég var að horfa á og ég gerði þegar ég var búinn að horfa á Lost in Translation núna á mánudaginn.
Bill Murray er fullkominn í þetta hlutverk og ég mun héðan í frá fara á allar þær myndir sem Scarlett Johannson leikur í :)Fyrir Murray er þetta ekki ósvipaður karakter og hann lék í snilldinni Rushmore, og ég efa stórlega að nokkur annar leikari hefði getað farið betur með þetta. Maðurinn er frábær!
Scarlett Johansson (sem var að ég held 18-19 ára þegar myndin var tekin upp en leikur þó nokkuð eldri stelpu - í flestum myndum er það nú öfugt) virðist líka vera ófær um að gera mistök (það mæðir reyndar minna á henni en Murray) og ekki skemmir fyrir að þetta er ein allra fallegasta stelpan í bransanum í dag, dálítið öðruvísi en þessar venjulega Hollywood stelpur og bara betri fyrir vikið.
Eiginlega langar mig ekki að hrósa því hvernig þau léku, því ég skynjaði aldrei að ég væri að fylgjast með fólki leika. Þetta var bara svo... eðlilegt og raunverulegt.
Útlitið er mjög flott - Tokyo í allri sinni stórfurðulegu dýrð - en það sem gerði útslagið hjá mér var tónlistin, hún er svo rétt eitthvað að það er hreint ótrúlegt. Svona Á þessi mynd bara að hljóma.
Fólk skiptist alveg í tvær fylkingar yfir Lost in Translation, og það er líklega ekkert skrýtið þar sem í raun gerist frekar lítið í henni... en það er bara svo ljúft að fylgjast með því gerast. Ég hvet fólk a.m.k. eindregið til að fara á hana, það er til mjög mikils að vinna ef myndin höfðar til þín, en aldrei hægt að tapa meiru en 800 kr þó hún geri það ekki.
Og ég held ég geti ekki annað en skellt mér aftur á hana á morgun
Þetta var allt öðruvísi mynd en ég bjóst.
Hún fjallar um mann að nafni Bob Harris sem leikin er af Bill Murray. Hann fer til Japans til að leika í auglýsingu þar sem að auglýsa á vis…
Þetta var allt öðruvísi mynd en ég bjóst.
Hún fjallar um mann að nafni Bob Harris sem leikin er af Bill Murray. Hann fer til Japans til að leika í auglýsingu þar sem að auglýsa á viskí.
Hann er ekki beint hrifin af japönskum lífstíl og vill helst af öllu bara komast í burt.
En hann er ekki sá eini sem leiðist í Japan.
Sagan segir líka frá konu að nafni Charlotte (Scarlett Johansson) sem er eiginkona ljósmyndara sem er að taka ljósmyndir í Japan.
Sögu þeirra Bob og Charlotte rekur svo saman þegar þau hittast á bar og fara þau að eiða tíma sínum saman í Japan.
Eftir rúmar 15 mínútur af myndini var ég að verða alveg drullu fúll og hneigslaður yfir öllu því hrósi sem þessi mynd hefur fengið, en þegar fór að líða á myndina þá skildi maður afhverju byrjunin var eins og hún var (Langdregin og ekkert að gerast),
því þannig leið þeim tveim í Japan (ekkert að gerast).
Þetta er meira drama mynd heldur en grínmynd en samt eru alveg mein fyndin atriði í henni.
Bill Murray er alveg frábær í þessari mynd og einnig er Scarlett Johansson mjög góð.
Þessi mynd kom mér virkilega á óvart.
Ég bjóst við miklu, fékk mikið, en samt allt annað en ég bjóst við.
Eftir þessa mynd er Sofia Coppola komin í röð uppáhaldsleikstjórana mína í dag. Það er bara till eitt orð yfit þessa mynd og það er : Frábær. Bill Murray leikur bandarískan leikar…
Eftir þessa mynd er Sofia Coppola komin í röð uppáhaldsleikstjórana mína í dag. Það er bara till eitt orð yfit þessa mynd og það er : Frábær. Bill Murray leikur bandarískan leikara sem fer til Tokyo að taka upp whiskey auglýsingu og kynnist þar ungri stelpu og saman reyna þau að leita af einhverri lífstilveru. Virkilega manneskjuleg og tilgerðarlaus mynd sem að allar sínar óskarstilnefningar skilið.
Lost In Translation er ein besta mynd sem ég hef séð! Sofia Coppola er búinn að setja sig á stól sem einn besti leikstjóri í Hollywood en hún er búin að gera myndir eins og The Virgin Suic…
Lost In Translation er ein besta mynd sem ég hef séð! Sofia Coppola er búinn að setja sig á stól sem einn besti leikstjóri í Hollywood en hún er búin að gera myndir eins og The Virgin Suicides og Godfather Part III. Leikari (Bill Murray,Ghostbusters,Groundhog Day) sem er á niðurleið fær borgaða tvo milljón dali fyrir að auglýsa viskí í Tókýó. Þegar hann er orðinn svolítið ruglaður í allri þýðinguni hittir hann stelpu sem er líka frá Ameríku (Scarlett Johanson,The Man Who Wasn't There) en hún er með kærasta sínum (Giovanni Ribsi,Boiler Room) en hann er að hætta að verða hann sjálfur út af Japan og öllum lélegu auglýsingunum En þau verða ástfanginn (fjári mikill aldursmunur) og myndin fjallar um ævintýrin þeirra (ef ég má orða það svoleiðis). Sankölluð kvikmyndaperla sem ætti að fá mörg Óskarsverðlaun.
"Charlotte: I just don't know what I'm supposed to be. Bob: You'll figure that out. The more you know who you are, and what you want, the less you let things upset you. "