Shrek er búinn að bjarga Fíónu prinsessu, kvænast henni, og nú er komið að því að hitta tengdaforeldrana. Shrek, Fíóna og Asni fara í ferðalag til Far, Far Away, til að hitta foreldrana. En það eru ekki allir jafn ánægðir. Shrek og kónginum, föður brúðarinnar, kemur ekki nógu vel saman, og það er spenna í hjónabandinu. En það eru ekki bara fjölskyldumeðlimir sem eru óánægðir. Prince Charming snýr heim eftir misheppnaða tilraun til að bjarga Fíónu, og vinnur ásamt móður sinni, Álfadrottningunni, að því að finna leið til þess að losna við Shrek.
Shrek 2 er ágætis skemmtun og afþreying en fátt annað en það og mér finnst þessi mynd vera frekar ofmetin. Mike Myers,Eddie Murphy og Cameron Diaz eru kominn aftur og tala fyrir sömu persón…
Shrek 2 er ágætis skemmtun og afþreying en fátt annað en það og mér finnst þessi mynd vera frekar ofmetin. Mike Myers,Eddie Murphy og Cameron Diaz eru kominn aftur og tala fyrir sömu persónur og síðast og Antonio Banderas,John Cleese og Julie Andrews eru tala fyrir stígvélaða köttinn og kóng og drottningu. Jennifer Sanders(hver í bleep er það?) og Rupert Everett tala fyrir álfkonu og son hennar sem er prins. Antoni Banderas og Eddie Murphy hafa alltaf farið rosalega í taugarnar á mér en fara á kostum í sínum hlutverkum. Cameron Diaz sem mér hefur yfirleitt fundið flott talar fyrir Fionu prinsessu og röddin fór í taugarnar á mér. Cameron er eye candy þegar hún er á filmu en þegar maður heyrir aðeins röddina hennar þá fer hún í taugarnar á manni. Mike Myers er fínn í titlhlutverkinu.
Myndin er frekar skemmtileg og fyndin tölvuteiknuð gamanmynd og er betri en Shark tale og The Incredibles sem komu út sama árið.
Shrek og Fiona er nýgift og um leið og þau eru kominn úr brúðkaupsferðinni sinni þá er þeim boðið til foreldra Fionu í í risastóra veislu í tilefni af brúðkaupinu en foreldrarnir eru kóngur og drottning í Far Far Away ríkinu (sem er byggt á Hollywood)og eru rosalega valdamikil,fræg og miklvæg.
En þau ásamt ríkinu vita ekki að nýji tengdasonurinn er grænt tröll og að dóttirin er það líka. Álfkona og guðmóðir Fionu Álfkonan er ekki ánægð þegar hún kemst af þessu því að sonur hennar og draumaprinsinn,draumaprinsinn átti að giftast Fionu og þá mundi hún verða venjuleg. Þau þvinga kónginn að drepa Shrek en hann ræður leigumorðingjann stígvélaða köttinn og ævintýrið byrjar.
Ég átti ekki von á svona frábæri mynd ein besta mynd ársins 2004. Stígvélaði kötturinn finnst mér standa sig með stæl og heldur myndini uppi!. Mike Myers Cameron Diaz og Eddie Murphy ljá…
Ég átti ekki von á svona frábæri mynd ein besta mynd ársins 2004. Stígvélaði kötturinn finnst mér standa sig með stæl og heldur myndini uppi!. Mike Myers Cameron Diaz og Eddie Murphy ljá karektrunum rödd sína ásamt Anthony Banderas sem slæst í hópinn með þeim. Allir ættu að sjá þessa mynd vegna þess að hún er skemmtileg æðislega vel teiknuð og með heil mikið gæði
Alveg hiklaust ein af bestu myndunum sem var sýnd í bíó á síðasta ári með Spider-man 2. Hér eru allar persónurnar úr fyrstu myndinni komnar aftur auk nýrra stórskemmtilegra persóna. Ske…
Alveg hiklaust ein af bestu myndunum sem var sýnd í bíó á síðasta ári með Spider-man 2. Hér eru allar persónurnar úr fyrstu myndinni komnar aftur auk nýrra stórskemmtilegra persóna. Skemmtanagildið á þessari mynd er stórkostlegt, talsetning hjá helstu leikurum er góð þó að Eddie Murphy verði alltaf með bestu talsetninguna sem hinn símalandi Asni. Besta persónan af þeim nýju er Stígvélaðikötturinn sem er snilldarlega talsettur af Antonio Banderas. Snilldarmynd sem er strax orðin að instant classic.
Vá, það er gott að sjá þegar framhaldsmyndir eru góðar og fyndnar. Söguþráðurinn er frábær og Eddie Murphy hefur loksins gert góða bíómynd. :D:D Nýju persónurnar eru frábærar þó sérstaklega Stígvélaði kötturinn og Draumaprinsinn. Tónlistin er töfrandi og ekkert er betra en að sjá Grimms-ævintýraverur í svona hlutverkum. Tölvugerðin er mun betri en myndin er stundum fyrirsjáanleg. Antonio Banderas er sá besti í myndinni í hlutverki Stígvélaða köttsins.
Þetta er bara yndisleg mynd og mér fannst allir vera að gera alltof mikið úr þessu fyrr en ég sá myndina. Hún er fyndin rómantísk glettni þarna inn á milli og rosalga mikið af tilfinning…
Þetta er bara yndisleg mynd og mér fannst allir vera að gera alltof mikið úr þessu fyrr en ég sá myndina. Hún er fyndin rómantísk glettni þarna inn á milli og rosalga mikið af tilfinningum og þeir sem ekki hafa séð hana eiga að drífa sig í því núna strax!!!
Mér fannst þessi mynd bæði sæt og fyndin. Tæknibrellurnar frábærar og gert gott grín af ýmsum atriðum sem hafa komið fram í ýmsum myndum....Samt fannst mér Antonio Banderas frábær sem…
Mér fannst þessi mynd bæði sæt og fyndin. Tæknibrellurnar frábærar og gert gott grín af ýmsum atriðum sem hafa komið fram í ýmsum myndum....Samt fannst mér Antonio Banderas frábær sem stígvélakötturinn og Mike Myers sem Shrek 2
Það sem mér fannst svo líka við myndina..(kannski ekki beint sem börn fatta við hana :)) er að Fiona elskaði Shrek sinn vegna þessa að hann var góð persóna..þótt að útlit hans væri ekki sætt :P...þ.e.a.s. útlit er ekki allt þegar ástin er annars vegar :)
Sem sagt myndin er góð skemmtun og allir ættu að geta skemmt sér yfir henni..bæði ungir sem aldnir :)
Það sem var einna athyglisverðasta við þessa mynd, voru yndislegu smáatriðin sem myndin var uppfull af, þessir leyndu brandarar sem voru einfaldlega of margir þannig að ein bíóferð nægði til þess að ná þeim öllum. Antonio Banderast stelur senunni sem stígvélaði kötturinn og það er gaman að sjá hvernig framleiðendurnir hafa blandað saman atriðum úr ólíkum kvikmyndum til þess að fá stórkostleg atriði (dæmi Lord of the rings og Mission Impossible). Þessi mynd er algjör snilld að mínu mati og gerir næstum enn betur en forverinn.
Græna tröllið Shrek snýr nú aftur á hvíta tjaldið, hress og glaður að vanda. Hann kætti alla kvikmyndaunnendur árið 2001 í drepfyndinni tölvuteiknimynd, sem sló hressilega í gegn. Fra…
Græna tröllið Shrek snýr nú aftur á hvíta tjaldið, hress og glaður að vanda. Hann kætti alla kvikmyndaunnendur árið 2001 í drepfyndinni tölvuteiknimynd, sem sló hressilega í gegn. Framhaldsmyndin er stórfengleg að öllu leyti og gefur þeirri fyrri ekkert eftir. Í upphafi er Fiona prinsessa staðráðin í því að fara nú heim til foreldra sinna eftir að hafa verið bjargað úr prísundinni af Shrek og vinum hans í fyrri myndinni. Shrek er ekki alltof hrifinn af því að fara og hitta tengdaforeldra sína en lætur það eftir ástinni sinni. Faðir Fionu vill ekki sjá Shrek sem tengdason og sættir sig enn síður við að fallega dóttirin sé orðin að skessu. Ekki bætir það svo úr skák að Álfadísin hefur mikið tak á konunginum og hafði gert samkomulag við hann um að Fiona giftist Draumaprinsinum, syni sínum. Kóngurinn bregður því á það ráð að fá leigumorðingja, Stígvélaða köttinn, til þess að koma Shrek fyrir kattarnef. Málin þróast þó í óvæntar áttir og ekki fer allt eins og stefnt er að. Mike Myers fer sem fyrr á kostum í hlutverki Shrek, Eddie Murphy er kostulegur sem asninn og Cameron Diaz heillandi sem Fiona. En það er ekki á neinn hallað þó ég fullyrði að Antonio Banderas steli senunni í hlutverki Stígavélakattarins. Julie Andrews og John Cleese eru stórfengleg í hlutverkum konungshjónanna. Þetta er einstaklega góð mynd, viðeigandi fyrir alla fjölskylduna og þá sem unna góðum húmor og vandaðri kvikmyndagerð. Brandararnir ættu að hitta á réttar nótur hjá kvikmyndaáhorfendum, enda alveg einstaklega vel heppnaðir. Þeirra sem sjá Shrek 2 bíður heillandi og skemmtileg kvöldskemmtun. Ég mæli með henni við alla þá sem hafa góðan húmor og vilja skemmta sér vel á góðu kvöldi.
Shrek 2 er betri en fyrri Shrek myndin finnst mér. Ég er enginn Shrek aðdáðandi en þessa mynd fannst mér mjög skemmtileg. Shrek og Fiona eru að mínu mati soldið leiðinlegar persónur og…
Shrek 2 er betri en fyrri Shrek myndin finnst mér. Ég er enginn Shrek aðdáðandi en þessa mynd fannst mér mjög skemmtileg. Shrek og Fiona eru að mínu mati soldið leiðinlegar persónur og þjóna aðeins tilgangi til þess að byggja upp frumlegar skeljar kringum persónurnar sem eru stereotýpiskar og sjaldan gaman af lengur. Sama er hægt að segja um foreldra Fionu og álfakellinguna. Annars þá er gullið í myndinni aukapersónurnar. Asninn, Gosi, grísirnir þrír, piparkökukallinn, kynvillti refurinn en í persónulegu uppáhaldi er stígvélaði kötturinn þungamiðjan. Enginn annar en Antonio Banderas talar fyrir hann og þessi stórkostlega blanda er snilld. Ekki aðeins er hann fyndnastur heldur er rétta kattarímyndin sýnd. Stígvélaði kötturinn notar krúttleika sinn og sparkar í aðra meðan þeir liggja niðri hjálplausir. Grimmur en bráðsnjall. Svona eru kettir, og myndin samþykkir snilld þeirra. Annars, þá var fyrri helmingur myndarinnar mun verri en sá seinni. Fyrri hlutinn var mest um Shrek og Fionu að kyssast og leiðinlegar samræður. Við og við komu góðir brandarar en þegar stígvélaði kötturinn kemur þá verður myndin mun betri. Svo seinna hinar aukapersónurnar og þá koma einhver fyndnustu atriði sem ég hef séð í kvikmynd. Án aukapersónanna er myndin tóm í mínum augum. Þær björguðu myndinni alveg. Þrjár stjörnur eru nóg fyrir hana, svo var ekkert stuð í myndinni fyrr en í enda. Ég veit að flestum finnst Shrek argandi snilld en þetta er bara mitt álit.
Þessi mynd er gríðalega mikil skemmtun fyrir börn og fullorðna og er mun betri en 1. Það munu allir springa úr hlátri á þessari mynd enda ótrúlega vel gerð og Eddie Murphy(Donkey), Camer…
Þessi mynd er gríðalega mikil skemmtun fyrir börn og fullorðna og er mun betri en 1. Það munu allir springa úr hlátri á þessari mynd enda ótrúlega vel gerð og Eddie Murphy(Donkey), Cameron Diaz(Fiona) og Mike Myers(Shrek) slá í gegn með röddum sínum. En Asninn er nú bestur finnst mér algjör húmoristi að mínu mati en myndin er um þegar Shrek og Fiona eru boðin til Konungshjónana í Far Far Away a.k.a mamma og pabbi Fionu. En pabbi Fionu líkar ekki vel við nýja útlit dóttur sinnar og reynir að gera allt til að stíja þau í sundur og þar kemur Stígvélaði kötturinn til sögunnar sem Antonio Banderas talar fyrir og slær í gegn með röddinni. En álfadísin illa vill að sonur hennar giftist Fionu og reynir að spilla pabba Fionu og láta Fionu verða ástfangna af Prince Charming..... Farið á þessa mynd Fyndin,Skemmtileg!
Þessa mynd horfði ég á með hugafarið um að leikstjóri hafi gert hana í peningagræðgi og fljótfærði, mér skjátlaðist hryllilega. Þessi mynd gefur ekkert á eftir þeirri fyrstu og er …
Þessa mynd horfði ég á með hugafarið um að leikstjóri hafi gert hana í peningagræðgi og fljótfærði, mér skjátlaðist hryllilega. Þessi mynd gefur ekkert á eftir þeirri fyrstu og er að mínu mati aðeins betri. Hún er full af ævintýrum og skemmtilegum verum, ást Shrek og Foinu sést greinilega mjög mikil í myndinni en álfadrottning eða eithva er að reyna að láta samband þeirra slytna fyir stolts konungsins og reynir hana að giftast prins charming segji ekki meir nema ...
Ég held að spurning flestra varðandi þessa mynd sé svohljóðandi: Er hér á ferðinni önnur Toy Story 2? og stenst hún þær gríðarlegu væntingar sem eru gerðar til hennar? Mitt svar er: …
Ég held að spurning flestra varðandi þessa mynd sé svohljóðandi: Er hér á ferðinni önnur Toy Story 2? og stenst hún þær gríðarlegu væntingar sem eru gerðar til hennar? Mitt svar er: Nei og já. Shrek 2 býr yfir jafn miklu skemmtanagildi, ferskleika og húmor sem einkenndi fyrri myndina. Aðstandendur hafa engu tapað í gæðum því mér þótti þessi naumlega toppa forverann meira að segja. Söguþráðurinn er örlítið breiðari, grafíkin flottari og handritið fyndnara. Það er alveg hreint ótrúlegt hvað hægt er að skemmta sér mikið yfir fjölskyldumynd því þetta er að mínu mati ein ef ekki allra fyndnasta mynd ársins hingað. Mike Myers, Eddie Murphy og Cameron Diaz eru að sjálfsögðu jafn traust með raddirnar og áður fyrr en hins vegar er búinn að bætast við nýr senuþjófur í hópinn, sem er enginn annar en Antonio Banderas og ljær rödd Stígvélaða Kattarins. Þessi litla fígúra er orðin að mínum uppáhalds karakter í þessum ævintýraheimi og á hann nokkrar meiriháttar fyndnar línur ("That is not mine" - Sjáið það í réttu samhengi og þá skiljið þið). Það sem ég dýrka við þessa mynd sem og sú fyrstu er hvernig hún tvískiptir áhorfandahópinn. Hér er margt sem þeir yngstu geta skemmt sér yfir en jafnframt heilt bílahlass af földum bröndurum sem aðeins þeir fullorðnu munu skilja ásamt mögnuðum samræðum sem geyma oftast fleiri en eina merkingu og svo helling af svona ''in-joke refrences'' (takið t.d. eftir hversu mikið konungsríkið Far Far Away er látið líkjast Hollywood. Svo er gert kostulegt grín af COPS-þættinum á verulega fyndinn hátt). Það er ekki hægt annað en að ganga út brosandi eftir þessa mynd. Eins og ég tók áður fram þá er hún meira en verðugt framhald á fyrri myndina og er að vissu leyti ennþá betra, en þó munar ekki svo miklu. Og þar sem fyrri myndin varð að einni bestu mynd ársins 2001 tel ég ekki ólíklegt að Shrek 2 muni hanga einhversstaðar á lista yfir bestu myndir þessa árs. Hún er a.m.k orðin besta sumarmyndin í ár. Sjáum svo hvort Kóngulóarmaðurinn eigi séns í hana.8/10
Við hittum aftur gengið úr Shrek rétt eftir að brúðkaupsferð Shreks og Fionu er að ljúka. Ekki líður langur tími þar til ný ævintýri fara að gerast, skötuhjúunum er boðið til for…
Við hittum aftur gengið úr Shrek rétt eftir að brúðkaupsferð Shreks og Fionu er að ljúka. Ekki líður langur tími þar til ný ævintýri fara að gerast, skötuhjúunum er boðið til foreldra Fionu (sem eru konungsfólk) og þau er ekki alveg nógu sátt við nýja tengdasoninn. Asninn góðkunni er þeim innan handar og er uppspretta besta húmorsins sem er hér að finna, rétt eins og fyrri myndinni. Ein ný persóna sem er einnig vert að nefna er köttur nokkur sem er ljáð rödd Antonio Banderas - þetta er skemmtilegur karakter sem stelur nokkrum senum. Það er óhjákvæmilegt að spyrja hvernig þessi mynd stendur sig í samanburði við fyrri myndina, og svarið er að hún hefur svipaðan tón og yfirbragð en kemur þó með nógu mikið af nýjum hlutum til borðsins til að forðast endurtekningar og vera fersk. Shrek 2 er ekki síðri en forveri sinn og sennilega jafnvel aðeins betri. Það er lítill vafi á því að við munum fá að sjá Shrek 3 á næstu árum og vona ég að gæði þessara tveggja mynda haldi sér áfram, jafnvel þó að það hafi ekki verið tilfellið í neinum framhaldsmyndum sem Mike Myers hefur komið nálægt áður. Aðstandendur Shrek 2 eru greinilega þeir bestu í bransanum í að skapa húmor sem er fyndinn fyrir börn jafn sem fullorðna, það er erfitt að ímynda sér skemmtilegri fjölskyldumynd.
Óhætt er að segja að Shrek 2 skítur fyrri myndinn ref fyrir rass og fer langt fram úr mínum væntingum. Myndin einfaldlega gerir meira og betur á öllum sviðum en fyrri myndin. Tæknibrellurn…
Óhætt er að segja að Shrek 2 skítur fyrri myndinn ref fyrir rass og fer langt fram úr mínum væntingum. Myndin einfaldlega gerir meira og betur á öllum sviðum en fyrri myndin. Tæknibrellurnar eru mikið flottari og er meira af atriðum sem sýnir það hversu færir teiknarar eru í vinnu hjá Dreamworks mönnum. Fleiri persónur bætast í hópinn og aukapersónurnar fá að njóta sín betur í myndinn heldur en gert var í þeirri fyrri. Það þarf auðvita ekki að minnast á Eddy Murphi sem skilar asnanum ómótstæðilega frá sér á eftirminnilegan hátt sem og Mike Myers gerir við Shrek. Það sem kom mest á óvart í nýju myndinni var nýr karakter, Stígvélaði kötturinn sem Antonio Banderas talar fyrir og má kalla hann senuþjóf myndarinnar þar sem hann gerir stólpagrín af sjálfum sér í Zorro þó svo að það séu kanski ekki brandarar fyrir yngri áhorfendur til að fatta. Þegar allt kemur til alls þá er hér á ferðinni meistaraverk sem fór fram úr mínum væntingum og hefur fengið mig til þess að bíða með tilhlökkun til myndar númer 3 og 4.
Tilnefnd til tveggja Óskarsverðlauna. Besta teiknimyndin, og besta frumsamda lag í kvikmynd: Accidentally in Love.
Frægir textar
"Queen: So, you live in a swamp? That sounds like a fine place to raise the children. Shrek: It's a little early to be thinking about that, isn't it? King: Indeed! I had just started eating. "