Árið 1939 kemst kappsfullur blaðamaður í New York borg að tengslum á milli greinarinnar sem hún er að skrifa - um fræga vísindamenn sem hverfa skyndilega um allan heim, og nýlegrar árásar risastórra vélmenna á borgina. Hún er ákveðin í því að leysa málið, og leitar hjálpar hjá fyrrum kærasta sínum, Sky Captain, sem er foringi málaliðahóps flugmanna. Þau eru á fullu að rannsaka málið þegar vélmennin ráðast aftur á borgina, en fyrir heppni þá nær hægri hönd Sky Captain að komast að því hvar vélmennin halda sig. Þau fara í ævintýralegan leiðangur í leit að heilanum á bakvið árásirnar, en hans markmið er að skapa fyrirmyndarríki og eyðta núverandi heimsskipan.
Sky captain and the world of tomorrow hlýtur að vera einhver skrítnasta mynd sem ég hef séð lengi. Skrítin, á hvorki góðan né vondan hátt heldur bara hlutlausan. Eiginlega á ég soldið e…
Sky captain and the world of tomorrow hlýtur að vera einhver skrítnasta mynd sem ég hef séð lengi. Skrítin, á hvorki góðan né vondan hátt heldur bara hlutlausan. Eiginlega á ég soldið erfitt með að gagnrýna hana en ég ætla samt að reyna. Leikararnir: Gwyneth Paltrow hef ég aldrei haft neinar sérstakar mætur á en hún er alltílæ hér og passar vel í hlutverk blaðaljósmyndara en það væri nú skiljanlegt þó að hún fengi engan óskar fyrir þetta, Jude Law er leiðinlegur og spilar illa út úr hlutverkinu sem var alveg nógu veikt fyrir. Angelia Jolie stendur sig hvorki vel né illa og Giovanni Ribsi er bara nákvæmlega eins og hann er oftast. Tæknibrellurnar eru fínar og nokkur steikt atriði halda manni við efnið og fyrirbyggja að maður gefist upp á myndinni áður en hún er búin. Sky captain...fær tvær stjörnur. Ég á bágt með að mæla með henni en ég á líka bágt með að ráðleggja fólki að forðast hana.
Ég veit ekki hvað fólki finnst gott við þessa mynd. Það eina sem að mér fannst merkilegt við þessa mynd er að hún er öll gerð á blue-screen. Sagan að myndinni er alveg hræðileg, lei…
Ég veit ekki hvað fólki finnst gott við þessa mynd. Það eina sem að mér fannst merkilegt við þessa mynd er að hún er öll gerð á blue-screen. Sagan að myndinni er alveg hræðileg, leikararnir í myndinni eru vægast sagt hræðilegir. Actionið í myndinni er allt í lagi en þetta er samt mynd sem að ég vara ykkur fólk við. Mæli engan veginn með þessu. Gef henni 1 vegna smá actions og góðum brellum.
'Sky Captain and the World of Tomorrow' er mynd sem enginn sannur aðdáandi kvikmynda ætti að láta fram hjá sér fara. Hún er merkileg fyrir þær sakir að þetta er fyrsta kvikmynd leikstjóra…
'Sky Captain and the World of Tomorrow' er mynd sem enginn sannur aðdáandi kvikmynda ætti að láta fram hjá sér fara. Hún er merkileg fyrir þær sakir að þetta er fyrsta kvikmynd leikstjórans Kerry Conran. Leikstjórnin, kvikmyndatakan og tæknibrellurnar eru hreint út sagt framúrskarandi á allan hátt. Handritið er hins vegar akkilesarhæll myndarinnar. Það er frekar klisjukennt og maður finnur aldrei fyrir raunverulegum háska eða tilfinningum aðalpersónanna. Hins vegar á Kerry Conran vonandi eftir að gera fleiri myndir og þá eftir handritum betri rithöfunda. Útlit myndarinnar er glæsilegt, og reyndar sýnist mér það tekið að mestu úr eldgömlu Superman teiknimyndunum sem gerðar voru á 4. áratug síðustu aldar af Dave Fleischer. Jude Law, Gwyneth Paltrow og Angelina Jolie standa sig öll vel í sínum hlutverkum, en virðast þó hafa orðið fyrir 'George Lucas áhrifunum' þar sem þau hafa líklegast leikið alla myndina fyrir framan grænt eða blátt tjald og þurft að ímynda sér ansi mikið til að geta leikið af sannfæringu. Gamall leikari sem er löngu horfinn á vit feðra sinna birtist einnig í myndinni, í stóru hlutverki. Óvenjulegt að löngu látinn Óskarsverðlaunahafi fái hlutverki í nýrri mynd! Sagan er mjög einföld. Vísindamaður er búinn að fá leið á siðmenningu samtímas, býr til þúsundir vélmenna til að vinna þrjótastörf sín, og setur í gang áætlun til að koma á endanlegum frið á jörðinni. Að sjálfsögðu þýðir sá friður nánast útrýmingu mannkyns, en það er bara aukaatriði. Húmorinn er nokkuð góður og gaman að horfa á myndina. Mæli með henni.
Sky captain fær 3 stjörnur vegna þess hvað hún var skemmtileg. Söguþráðurinn var fínn, ágætlega leikinn og plottið var skemmtilegt= Ágætis skemmtun. myndin er öll tekin fyrir framan sv…
Sky captain fær 3 stjörnur vegna þess hvað hún var skemmtileg. Söguþráðurinn var fínn, ágætlega leikinn og plottið var skemmtilegt= Ágætis skemmtun. myndin er öll tekin fyrir framan svona blue screen og sást það vel á köflum og það var eins og hún væri úr fókus alla myndina. Myndin hefði eiginlega átt að gerast í framtíðinni í stað þess að gerast í fortíðinn. Myndin er um rsiastór vélmenni sem er að ráðast á allar helstu orkulindir og stela þaðan kolum og olíu. fréttakona að nafni Polly Perkins (paltrow)sem hefur verið að skrifa um vísindamenn sem haf sporlaust horfið, flækist í þetta mál er vísindamaður sem segist verða næstur til að verða tekin lætur hana fá teikningu af risastóru vélmenni, Vinur hennar sem er kallaður sky captain(Jude law) og sést það í myndinni hvers vegna fær miðann frá henni og reyna þau að komast af því hvaðan vélmennin koma og hvert vísindamennir hafa farið. Mæli með því að kíkja á þessa mynd því þetta er ágætis skemmtun fyrir alla fjölskyldunna.
Slöpp mynd, skortir sögugæði. Sky Captain byggist algerlega á því að ´impressa´ fólk með tæknibrellum og frumlegum stíl bara sagan, handritð og persónurnar eru illilega slappar. Engar …
Slöpp mynd, skortir sögugæði. Sky Captain byggist algerlega á því að ´impressa´ fólk með tæknibrellum og frumlegum stíl bara sagan, handritð og persónurnar eru illilega slappar. Engar frægar stjörnur né engin Angelina Jolie getur bjargað þessari mynd. Myndin er alls ekki 800 króna virði, forðast hana í bíó.
Þessi mynd er sannkölluð veisla fyrir augað, sem mynduð er af rúmlega 2000 tölvugerðum römmum. Það eru fínir leikarar í helstu hlutverkunum og ná að skila þeim af sér með ágætum. Þó erfitt sé að útskýra söguþráðinn, þá reyni ég það samt. Myndin gerist við upphaf seinni heimsstyrjaldarinnar í veröld sem er frekar fjarri raunveruleikanum. Brjálaður vísindamaður hyggur á heimsyfirráð og hefur rænt 7 af helstu sérfræðingum heims á sínu sviði í vísindum til að hjálpa sér með hina dularfullu áætlun sína. Brjálaði vísindamaðurinn hefur hannað risastór fljúgandi vélmenni og litlar alvopnaðar flugvélar til að ná fram vilja sínum. Þar sem herir heimsins eru of uppteknir til að standa í hárinu á vélahernum, er hinn hugdjarfi málaliði Sky Captain (Jude Law) og hinn dyggi aðstoðarmaður hans, vísindamaðurinn Dax (Ribisi), kallaðir til að berjast gegn ógninni. Inn í málið blandast svo fréttakonan og fyrrum kærasta Sky Captain, Polly Perkins (Paltrow) en hún hefur í höndum sínum upplýsingar sem hjálpað geta við að leita uppi aðsetur hins illa vísindamanns. Hún heimtar góða frétt í staðinn og því neyðist Sky Captain til að draga hana með sér um allt gegn sínum vilja. Þau rata síðan í hin ýmsustu ævintýri á leið sinni sem oftar en ekki eru lífshættuleg. Á leiðinni hitta þau töffarann og liðsforingjann Franky (Jolie) sem hefur yfir að ráða hersveit skipaðri af konum og ákveður hún að leggja Sky Captain lið í baráttu hans gegn hinu illa. Sem sagt, dæmigerð ævintýramynd. En samt svolítið sérstök, þar sem hún sækir stílbrögð sín að miklu leyti í hinar gömlu rökkurmyndir 5. áratugarins, en áberandi dæmi um það er hversu stór hluti myndarinnar fjallar um samskipti Sky og Polly. En annars er þessi mynd hin besta skemmtun. Ps. takið eftir tveim atriðum í myndinni. 1. í byrjun myndarinnar er Polly stödd í kvikmyndahúsi, og á bíótjaldinu er Galdrakarlinn í Oz og það í lit. Sú mynd var ekki gerð fyrr en mörgum árum eftir að þessi á að gerast og þar að auki var ekki komin litmyndatækni á þessum tíma. 2. Þegar Sky og förunautar hans fara ofan í sjóinn á flugvélum sínum, sigla þau niður á botn og framhjá skipi sem heitir Venture (sama skip og í King Kong) og takið eftir búrinu á þilfarinu (lítur út eins og King Kong hafi brotist útúr því).
Sky Captain and the World of Tomorrow er afskaplega erfið mynd til að útskýra, og jafnvel enn erfiðari mynd til að dæma. Myndin sjálf er dálítill blendingur af sci-fi fantasíu og gamaldags …
Sky Captain and the World of Tomorrow er afskaplega erfið mynd til að útskýra, og jafnvel enn erfiðari mynd til að dæma. Myndin sjálf er dálítill blendingur af sci-fi fantasíu og gamaldags ævintýri með nútíma sniði og stílfæringu (ímyndið ykkur Indiana Jones í bland við Star Wars). Almennt séð er þessi mynd svona 70% stíll og 30% innihald, en það hindrar hvergi skemmtanagildið. Útlitslega séð er Sky Captain glæsileg. Það er mörgum kunnugt að myndin sé öll tekin upp fyrir framan bluescreen (jafnvel á sumum stöðum er það vel áberandi), og vegna þeirrar aðferðar er útlit og andrúmsloft ýkt með miklu litaleysi og jafnvel smá draumakenndri lýsingu. Það mun ekki hver sem er sogast eins auðveldlega inn í þennan heim og aðrir, en upphaflega er náttúrlega ekki ætlast til að raunveruleiki sé sterkasta hliðin, svo að best er að reyna að hafa gaman af þessu. Leikarar eru líka afspyrnugóðir. Jude Law og Gwyneth Paltrow smella saman á skjánum, enda eru þau sameinuð í fyrsta sinn síðan The Talented Mr. Ripley. Samband þeirra í myndinni stendur rækilega uppúr og minnir á eitthvað úr gamanþætti, sem er ekki nauðsynlega slæmt vegna þess að það er bæði kómískt og ýkt - sem er fullkomlega í takt við myndina. Leikstjórinn/handritshöfundurinn Kerry Conran lemur líka frá sér allar helstu klisjur varðandi þróun sambandsins, og það gerir það ennþá athyglisverðara. Angelina Jolie kemur sér einnig vel fyrir, þrátt fyrir að eiga furðulega lítinn skjátíma, og Giovanni Ribisi er alltaf skemmtilegur og er þessi mynd engin undantekning fyrir hann. Frá sjónarmiði sögunnar er ekki voða margt ferskt, en það sleppur alveg. Söguþráðurinn er voða basic fyrir ævintýramynd, en hann lætur manni þó aldrei leiðast. Hasarinn er líka bráðskemmtilegur, og í góðu magni sem tryggir að áhorfandinn heldur sig við sætið. Þessi mynd gæti auðveldlega hlotið lýsinguna Style-over-substance. Ekki spurning. En hún er samt eitthvað svo gífurlega flott að það hverfur úr huga manns. Ég naut þess virkilega að horfa á hana, og svo er líka nettur old-school ævintýrafílíngur til staðar burtséð frá öllum digital-effektunum. 7/10 -Verð að skella góðum meðmælum á myndina, á erfitt með annað.