Undirdjúp hafsins eru í uppnámi þegar sonur hákarlamafíuforingjans finnst dauður, og ungur fiskur að nafni Oscar finnst á vettvangi. Oscar, sem nærist á botngróðri, og var sá sem hákarlinn ætlaði sér að éta, nýtir sér ástandið, og þykist vera morðinginn "Sharkslayer", en kemst fljótt að því að þetta er hættulegur leikur í heimi þar sem stórir fiskar éta þá litlu.
Virkilega ofmetin teiknimynd.Fiskarinr eru eitthvað svo asnalegir,sérstaklega karakterinn hans Will Smith.Myndin er ágætlrga gerð.En hún er bara of stutt,leiðinleg og vantar allt skemmtanagildi…
Virkilega ofmetin teiknimynd.Fiskarinr eru eitthvað svo asnalegir,sérstaklega karakterinn hans Will Smith.Myndin er ágætlrga gerð.En hún er bara of stutt,leiðinleg og vantar allt skemmtanagildi Shrek hafði.Það sem vakti áhug aminn voru allir frægu leikaararnir sem tala inná shark tale.Angelina Jolie,Rene Zellweger,Robert DeNiro,Jack Black og hinn óþolandi Will Smith.Bandarískar teiknimyndir er alltaf mikið verri en Japanskar.Þær Jaðönsku er listrænar og fallegar og eru oft mjög góðar en þær Bandarísku er plane Hollywood myndir og frekar slæmar.Shark tale er engin undantekning,hún er svo barnaleg og óáhugaverð og hefur ekki neitt einasta skemmtana gildi.Þetta er alls ekki nein stórmynd og frekar stutt eins og ég tók fram.Þessi gæti verið fín fyrir 10 og yngri en aðrir mega sleppa þessari.
Ekki veit ég hvað fólk er að sjá gott við þessa mynd. Miðað við að hún er teiknimynd, þá er hún virkilega leiðinleg. Það er mitt álit. Þó er Jack Black góður sem grænmetisátu …
Ekki veit ég hvað fólk er að sjá gott við þessa mynd. Miðað við að hún er teiknimynd, þá er hún virkilega leiðinleg. Það er mitt álit. Þó er Jack Black góður sem grænmetisátu hákarlinn. Og Robert De Niro einnig sem mafíósa hákarlinn. En Will Smith er virkilega leiðinlegur sem Oscar og fannst mér hann engan veginn passa í hlutverk Oscars. Sem virkur aðdáandi af teiknimyndum, varð ég fyrir miklum vonbrigðum með þessa. Þó að þau fái fullt af frægum leikurum til að tala í þessari mynd, þá virkar sagan engan veginn. Hún er alltof augljós og maður var mjög nálægt því að slökkva á henni eftir smá tíma. Hún er ekki með eins mikið skemmtanagildi á miðað við myndir eins og Shrek 2, Toy Story, Finding Nemo o.fl. teiknimyndir. Mæli ekki með þessari mynd, því miður. Og á engan veginn að vera inná Topplistanum hér.
Þetta er mjög fín mynd. Will Smith passar mjög vel fyrir Oscar sem er fátækur fiskur sem reynir að vera eitthvð flottur. Hann vinnur við ekkert góða vinnu eða að hreinsa tennurnar á hvö…
Þetta er mjög fín mynd. Will Smith passar mjög vel fyrir Oscar sem er fátækur fiskur sem reynir að vera eitthvð flottur. Hann vinnur við ekkert góða vinnu eða að hreinsa tennurnar á hvölum en hann er samt dáldið vinsæll. Jack Black passar líka vel við sitt hlutverk og einnig hinir líka. Ég mæli mikið með þessari mynd, endilega leigið hana á vídeóleigunni eða hvar annars staðar væri hægt að leigja góða teiknimynd eins og þessa.
Þessi mynd er nástum því jafn góð og shrek 2 en samt vantar upp á að hún verði jafn góð. Myndinn er vel tölvugerð einhvernveiginn gera dremworks fyritækið mjög góðar fiska myndir þ…
Þessi mynd er nástum því jafn góð og shrek 2 en samt vantar upp á að hún verði jafn góð. Myndinn er vel tölvugerð einhvernveiginn gera dremworks fyritækið mjög góðar fiska myndir þær einu sem ég nenni að horfa á. Mjög skemmtileg atriði í myndinni sem hafa skemmtilegan humor. Myndinn fjallar um ólánsaman fisk sem heitir oscar(will smth). Sem verður fyrir hákarli sem er að fara að éta hann en það lendir akkeri á honum og þá seigir oscar að hann hafi drepið hann. og kallar sig svo hákarlabannan don líno(deniro) sem var faðir franki hákarsins sem dó. vill kanna málið nánar og það fer svo að koma einhver spenna eða svoleiðis. myndinn innifellur fullt af gæði líka og er vel tölvugerð. Atriðið þegar don línó skipar sinni sínum grametsætuni lenny(Jack Black) að éta fisk er algjört snilld líka! fólk ætti að fylgjast vel með því atriði.
Þessi mynd er svo skemmtileg ég var að drepast úr hlátri af því hákarlinn var grænmetis æta og þetta allt var mjög fyndið þetta var ein af skemmtilegustu myndum sem ég hef séð og ég …
Þessi mynd er svo skemmtileg ég var að drepast úr hlátri af því hákarlinn var grænmetis æta og þetta allt var mjög fyndið þetta var ein af skemmtilegustu myndum sem ég hef séð og ég gef henni 4 stjörnur
Þegar ég fór á shark tale var ég viss um að ég væri að fara á geggjaða grínmynd en svo var ekki. Allir brandararnir voru sýndir í auglýsingunni og þeir voru bara ekki fyndnir. Myndin þróaðsit út í lélega ástarsögu og var væmin á köflum en hugmyndin um hákarlana er mjög góð. Myndin fjallar um oscar sem er low life fiskur með stóra drauma og lenny sem er hákarl sem vill ekki feta í fótspor föður síns. fyir einsærri tilviljun hittast þeir og gera samning ef oscar felur lenny þá ætlar lenny að hjálpa honum að vera svokölluð stjarna með því að gera hann að the sharkslayer en þá fer allt í vitlausu og þeir lenda í ævintýrum. mæli með því að leigja hana á spólu:
Mig langar að geta mælt með Shark Tale, en ég treysti mér ekki í það. Annars er svosem alveg eðlilegt að maður fari að gera sér fullmiklar vonir, þá aðallega miðað við hversu vel me…
Mig langar að geta mælt með Shark Tale, en ég treysti mér ekki í það. Annars er svosem alveg eðlilegt að maður fari að gera sér fullmiklar vonir, þá aðallega miðað við hversu vel mennirnir hjá Dreamworks tókust með Shrek-myndirnar. Í tilfellum eins og Shrek var fátt sem EKKI gekk upp; Húmor var til staðar, sagan furðu góð, persónurnar eftirminnilegar og grafíkin stórkostleg til að kóróna rest. Shark Tale virðist hafa týnt nokkrum þessum punktum einhvers staðar. Málið er að sagan virkar ekkert sérstaklega fersk. Það vantar eitthvað í hana til að gera hana meira hjartnæma og boðskapurinn sem hún framkallar er ofsalega standard. Persónurnar skilja heldur engin djúp spor eftir sig. Ég stórefa að fiskurinn Oscar (Will Smith) og hákarlinn Lenny (Jack Black) munu geymast eins vel í minninu og Shrek, Asninn og co. Varðandi grafíkina er fátt sem ekkert byltingarkennt. Hún er vissulega flott, en í samanburði við Shrek 2 eða jafnvel Finding Nemo nær hún engum topphæðum, og þá meina ég með litlu hlutina eins og umhverfið og smáatriðin. Reyndar fannst mér samt nokkuð nett hversu vel teikningin nær að fanga mörg element í útlitsfari leikaranna sem lána raddirnar (takið t.d. eftir fæðingarblettinum á Don Lino (Robert De Niro), vörunum á Lolu (Angelina Jolie) eða þykku augnbrúnunum á Sykes (Martin Scorsese). Ansi gott). Hápunktar Shark Tale eru vafalaust földu tilvitnanirnar og lúmsku brandararnir sem leynast öðru hverju. Nú húmorinn hittir ekki eins oft í mark og ég átti von á en það eru samt nokkrir bútar hrein snilld (reynið að koma auga á auglýsingarnar sem skotið er á, ekki ósvipað hér og gert var með Far Far Away ríkið í Shrek). Yngri áhorfendur munu annars vegar ekki botna í helmingnum af þessum húmor þar sem ekki er algengt fyrir þennan markhóp að þekkja til mynda á borð við The Godfather, Goodfellas, Scarface, The Untouchables, Jaws o.s.frv. Raddirnar eru líka mjög fínar, þrátt fyrir að stælarnir í Will Smith séu stundum einum of. Þeir sem þola hann ekki fyrirfram geta ekki átt von á góðu hérna. Fígúran Oscar er talsett af svo ákaflega miklu orkutrippi að maður veltir fyrir sér hvort Smith hafi ekki bara verið á ógurlegri sykurvímu allan tímann, meðan sprelligosinn Jack Black er talsvert rólegri. En svona almennt séð hafði ég gaman að myndinni, og það skiptir miklu máli þegar fjölskyldumynd er að ræða. Börn og fullorðin eiga jafnmiklar líkur að koma gangandi út brosandi. En í mínu tilfelli bjóst ég við meiru og sama hversu geysilega fyndin hún var á tíðum þá vantar margt upp á söguna. Í lokin þá verð ég að segja að græna tröllið fjúki ekki svo auðveldlega úr toppsætinu. Spurning hvernig Pixar-mönnum tekst með The Incredibles. Bíð spenntur.6/10