Nú eru þrjú ár liðin frá klónastríðunum ( e. the Clone Wars ). Leiðtogi vélmennahersins, Grievous hershöfðingi, hefur klófest Palpatine forsætisráðherra og heldur honum um borð í skipi sínu, Ósýnilegu hendinni. Jedi meistarinn Obi-Wan Kenobi og Jedi riddarinn Anakin Skywalker þurfa að ná að komast ómeiddir í gegnum Coruscant, og fara til Ósýnilegu handarinnar til að geta bjargað forsætisráðherranum. En um það bil þegar þeir eru að ná því að bjarga ráðherranum, þá birtist Dooku greifi. Obi-Wan og Anakin berjast báðir við hann sem endar með því að Obi-Wan missir meðvitund. Anakin gerir sér lítið fyrir og sneyðir af Dooku höfuðið og drepur hann. Anakin heldur á Obi-Wan, og Palpatine eltir hann. Þeir hitta Grievous hershöfðingja augliti til auglitis, og Anakin reynir að fljúga skipinu svo þeir geti lent örugglega á Coruscant. Seinna fer Palpatine að hegða sér undarlega, og reynir í sífellu að fá Anakin til að trúa því að Jedi öldungaráðið sé á móti honum. Að lokum, kemur í ljós að hann er hinni myrki og illi Lord of the Sith. Nú þarf jedi meistarinn Mace Windu að berjast gegn honum ....
Revenge of the Sith er eina myndin úr nýju seríunni sem virkilega stóð undir væntingum. Hún gæti meira að segja verið sú besta af þeim öllum, líka Empire. Það eru fáranlega flott atri…
Revenge of the Sith er eina myndin úr nýju seríunni sem virkilega stóð undir væntingum. Hún gæti meira að segja verið sú besta af þeim öllum, líka Empire. Það eru fáranlega flott atriði í þessari mynd. Upphaflega geimorustan er mögnuð. Bardaginn við Dooku og björgun Palpatine. Svo er það Wookie orustan, Obi-Wan vs. Grevious, Anakin vs. Obi-Wan og Yoda vs. Darth Sidious. General Grevious er flott viðbót við sith flotann og nokkuð ferskur karakter, einskonar hálf geimvera og hálft vélmenni.
Helsti gallinn er eins og síðast Hayden Christensen. Hann hefur lítið skánað, en hei, það er ekki eins og Mark Hamill sé einhver Marlon Brando. Plottið hans Palpatine er ganga upp og Anakin er eins og deig í höndunum á honum. Það verður að segjast að Ian McDiarmid er flottasti leikarinn í nýju seríunni. Klónarnir úr síðustu mynd eru nú komnir í fulla notkun hjá góðu gaurunum en enginn veit að þeir eru í raun undir stjór Palpatine. Þegar hann gefur þeim svo “order 66” drepa þeir næstum alla jedi. Mér fannst alltaf skrítið hversu fljótur Anakin var að skipta yfir úr því að vera jedi og í það að slátra börnum. Allt út af því að Palpatine gæti mögulega kennt honum að bjarga Padmé frá dauða við fæðingu barnanna sinna. Hefur þetta fólk aldrei heyrt um keisaraskurð? Það var pínu fyndið að heyra Anakin allt í einu tala með rödd og hrynjanda James Earl Jones, það virkaði ekki mjög trúverðugt. Mér fannst gaman að sjá Luku og Leiu sem smábörn í lokin og sjá þegar þeim er komið til fósturforledra sinna á Tatooine og Alderaan. Myndin reynir eins og hún getur að tengja kafla 3 og 4 saman. Bæði hvað varðar útlit og tónlist. Næst eru það gamla serían, það verður fróðlegt að sjá hvernig hún stenst beinan samanburð.
George Lucas sagðist hafa gert kafla 1-3 í raun til þess að geta gert þessa mynd. Sumir vilja meina að hann hefði átt að sleppa hinum köflunum og fara beint í þessa, ég er ekki sammála því en það er sjónarmið.
“Good is a point of view, Anakin. The Sith and the Jedi are similar in almost every way, including their quest for greater power.”
Atburðarrás er nákvæmlega sá sem margir Stjörnustríðs-aðdáendur hafa beðið eftir síðan þeir komu af Return of The Jedi árið 1983. Ég hins vegar hef bara beðið eftir þessu síðan …
Atburðarrás er nákvæmlega sá sem margir Stjörnustríðs-aðdáendur hafa beðið eftir síðan þeir komu af Return of The Jedi árið 1983. Ég hins vegar hef bara beðið eftir þessu síðan ég var lítill ca. 8 ára. Nú er biðin á enda og Stjörnustríð kafli 3: Hefnd Sith er komin út.
Myndin segir frá þriðja kafla í einni vinsælustu kvikmyndaseríu allra tíma. Hún segir líka frá falli Anakins til myrkruhliðarinnar og umbreytunum í Darth Vader (Svarthöfða). Myndin fer í gegnum skemmtilega atburðarrás þar sem er mikið gerist eins og enda stríðsins, útrýmingu Jedi-riddarana og fæðingu tvíburana. Það sem vantaði í myndina og gerði mig pínu vonsvikin er það að ekkert var sagt frá upphafi uppreisnarinnar. Persónurnar í myndinni voru hver af annari skemmtileg nema vélmennið Grievous hershöfðingi sem var eins og hann hafi verið tekin beint úr einhverri teiknimynd. En maður gat nú ekki annað en að lýta framhjá því vegna þess hversu góð myndin er.
Myndin byrjar á mögnuðu og vel gerðu geimbardagaatriði sem ekki er hægt að lýsa í orðum vegna mikilla yfirburða í tæknibrellum. Söguþráðurinn fer vel af stað og heldur áfram á sama róli gegnum myndina, þ.e.a.s. hún nær að halda sögunni mjög vel. Leikararnir fara á kostum og sérstaklega túlkun Ian McDiarmid á Palpatine keisara, það var hrein snilld að sjá manninn leika þetta í síðasta skiptið og sýna fram á mátt keisarans. Kvikmyndataka og tæknibrellur voru í hæsta gæðaflokki og leikstjórnin var mjög góð, miðað við Episode II: Attack Of The Clones.Þessi mynd verður ávallt í minningunni minni út af því að þetta er síðasta Stjörnustríðsmyndin.
Star Wars: Revenge of the Sith er algjör snilld, George Lucas gerði þetta alveg frábær, hann lokaði hringnum með glæsibrag, ég get varla lýst því hversu myndin er góð, þeir Hayden Chris…
Star Wars: Revenge of the Sith er algjör snilld, George Lucas gerði þetta alveg frábær, hann lokaði hringnum með glæsibrag, ég get varla lýst því hversu myndin er góð, þeir Hayden Christensen og Ian McDiarmid eru snillingar þeir tveir leika hlutverkin alveg snildarlega sem Anakin og Obi-Wan Kenobi.
Star Wars: Episode III - Revenge of the Sith er snilld.
Já botninn sleginn í sögu sem byrjaði fyrir 28 árum. Eftirvæntingin sem byrjaði þegar tilkynnt var um Episode 1-3 var mikil. En eftir Episode 1 og 2 bjóst maður ekki við miklu frá Episode …
Já botninn sleginn í sögu sem byrjaði fyrir 28 árum. Eftirvæntingin sem byrjaði þegar tilkynnt var um Episode 1-3 var mikil. En eftir Episode 1 og 2 bjóst maður ekki við miklu frá Episode 3. En maður fær miklu meira en maður bjóst við. Mér finnst persónlega langflottast í þessum myndum þegar stór skip eru í stórum bardögum. Byrjunin í þessari er því algjör snilld! Þá er ég ekki að segja snilld og byrja á öðru heldur er þessi bardagi einn af 10 bestu senum sem ég hef séð. Myndin er flott en rosalega er allt tölvugert, mér finnst það leiðinlegt og pirrandi.
Ewan McGregor stendur sig vel, Natalie Portman finnur sig í erfiðu hlutverki, Samuel L. Jackson er einfaldlega rosalega svalur og Ian McDiarmid er stórkostlegur. Hayden Christensen er ekki besti leikarinn í myndinni en hann á nokkur góð atriði. R2-D2 er langflottasti karakterinn í öllum myndunum og hann heldur því hér áfram. Lucas nær manni í atriðinu þar sem Jedarnir er drepnir. Það er gott atriði og þegar Jedinn með hvíta skeggið deyr fékk ég sjokk. Ég vissi að hann myndi deyja en á eftir Mace Windu er hann langflottasti Jedinn. Myndin er fjórða alvöru Star Wars myndin en það vantar samt einhvern neista í hana.
Þvílik snilld þessi mynd, gaman auðvitað að sjá Anakin breytast í svartahöfða og bardagan milli Anakins og Obi wan,sem verður að teljat flottasti bardagi sem ég hef séð í Star Wars, my…
Þvílik snilld þessi mynd, gaman auðvitað að sjá Anakin breytast í svartahöfða og bardagan milli Anakins og Obi wan,sem verður að teljat flottasti bardagi sem ég hef séð í Star Wars, myndatakan er snilld hljóðið gersist varst betra og tæknin er bara vá. Hér sannast að hann Georg sé ekki dauður á öllum æðum, ég er vra á því að þetta er besta Star Wars myndin. Genaral greivious er bra flottur í myndini og skipin eru orðin stjörnulík geimskipunum úr þeim gömlu. Jackson á hér eina bestu frammistöðu og þegar upphálds persóna mí n Plo Koon dó kom smá tár úr augunum mínum. Þessi mynd verðskuldar 4 stjörnur.
Star Wars: Revenge of the Sith er bast mynd FOREVER!!! Ég get varla trúað því að einn maður geti samið svona gott handrit!!! Og ég trúi því heldur ekki að til sé svona góð mynd, þótt…
Star Wars: Revenge of the Sith er bast mynd FOREVER!!! Ég get varla trúað því að einn maður geti samið svona gott handrit!!! Og ég trúi því heldur ekki að til sé svona góð mynd, þótt ég sé einlægur starwars aðdáandi!!! Spenna og dularfullir hlutir í hverju atriði og ekki spillir hasarinn!!! Mér finnst hins vegar leiðinlegat að þetta sé síðasta Starwars myndin en George Lucas er nú búinn að loka starwars hringnum með stæl svo að ég er líka mjög glaður!!!George er frábær snillingu enda samdi hann líka Indiana Jones. Í Star wars Revenge of the Sith koma fram öll leyndarmál Starwars. Í þessari mynd er gefin nákvæm túkun á góðu og illu og baráttu góðs og ills. Þetta er myrkasta myndin í bálknumen jafnramt sú besta!!! Það er örugglega ekki hægt að gera betri mynd en þessa, þessi mynd er bara : BESTA MYND ALLRA TÍMA, SÍÐARI LÍKA!!!
Já þetta er án efa besta myndinn af þeim þrem nýju.
Maður vissi alveg hvað var að fara að gerast í myndini en samt leið manni þannig að þetta kom manni allt á óvart. Ef þú fílar…
Já þetta er án efa besta myndinn af þeim þrem nýju.
Maður vissi alveg hvað var að fara að gerast í myndini en samt leið manni þannig að þetta kom manni allt á óvart. Ef þú fílar Starwars myndirnar þá að sjálfsögðu ferðu á þessa og ef þú fílar þær ekki þá ferðu samt á þessa.Því að þessar myndir eru hluti af Kvikmyndasöguni og þér langar að geta sagt barnabörnunum frá því þegar þú fórst á Starwars myndirnar í bíó(þau munu eflaust spyrja hvað er bíó?? en það er allt önnur saga).
Þessi mynd skilar sínu og ætla ég að vera gjafmildur og gefa henni 4 stjörnur.
Loksins loksins fær maður að fá að sjá síðasta hringinn ég fór á frumsýningu á hana hún var frábær ekkert skrýtið að þetta sé besta mynd ársins ég gef þessari mynd þrjár og h…
Loksins loksins fær maður að fá að sjá síðasta hringinn ég fór á frumsýningu á hana hún var frábær ekkert skrýtið að þetta sé besta mynd ársins ég gef þessari mynd þrjár og hálfa stjörnu
Mér fannst þetta vera mjög góð mynd og ein sú besta í seríunni ( á eftir Empire)Flottar tæknibrellur og soundið mjög flott, Samuel L. Jackson var fínn í hlutverki Mace Windu en Ivan M. s…
Mér fannst þetta vera mjög góð mynd og ein sú besta í seríunni ( á eftir Empire)Flottar tæknibrellur og soundið mjög flott, Samuel L. Jackson var fínn í hlutverki Mace Windu en Ivan M. stal senunni sem hnn illræmdi keisari..mæli með þessari fyrir alla ekta star wars aðdáendur..og bara fyrir fólk almennt
Jibbí jei. Loksins! Þetta er án efa ein besta Star Wars myndin í seríuni, tækniatriðin svo raunveruleg, bardagarnir æsispennandi og leikararnir alveg frábærir. Maður fékk einnig að vita h…
Jibbí jei. Loksins! Þetta er án efa ein besta Star Wars myndin í seríuni, tækniatriðin svo raunveruleg, bardagarnir æsispennandi og leikararnir alveg frábærir. Maður fékk einnig að vita hvernig Anakin varð darth vader! Eftir myndina fór ég og horfði á hinar myndirnar.
Mér þykir mjög leitt að þessi saga sé á enda og er ég örugglega ekki sá eini! Hver sem ekki hefur séð hana, drífir sig á næstu leigu, tekur fyrri myndina og skellir sér svo á þessa!
VARIÐ YKKUR Á SPOILERUM!
Eftir tvær slappar Star Wars myndir vaknar George Lucas og skrifar handritið vakandi! Ekki hálfsofandi eins og með hinar tvær fyrri! Þetta var algjör snilldarmynd!…
VARIÐ YKKUR Á SPOILERUM!
Eftir tvær slappar Star Wars myndir vaknar George Lucas og skrifar handritið vakandi! Ekki hálfsofandi eins og með hinar tvær fyrri! Þetta var algjör snilldarmynd! Á eftir Empire myndinni, er þetta best Star Wars myndin! Eins og flestir ættu að vita þá fjallar ROTS um það hvernig Anakin Skywalker verður að Darth Vader. Myndin hefst á því að Anakin og Obi-Wan fara að bjarga Palpatine kanslara í stjórnskipi General Grievous. Næstu atriði eru helst um þegar keisarinn platar Anakin á 'The Dark Side' Vélmenni ráðast hér og þar, og lýðveldið reynir að streitast á móti, en stormsveitarmennirnir (Klónarnir) eru plataðir á 'The Dark Side' og allt fer til fjandans. Tæknibrellur myndarinnar eru alveg ótrúlegar! Þokkalega bestu tæknibrellur sem ég hef séð! Það er eins og að horfa á módelin og brúðurnar í gamla daga! Tónlist John Williams er sú besta af öllum Star Wars myndunum! Frammistaða leikaranna er góð, sérstaklega hjá Ian McDiarmid og Hayden Christensen. Og náttúrulega líka hjá Frank Oz (rödd Yoda), Ewan McGregor, Natalie Portman og Jimmy Smits (Bail Organa). Ég mæli eindregið með þessari frábæru mynd!
Þetta verður stutt gagngrýni enda sú fyrsta hjá mér.Mér fannst þessi mynd vera mjög vel heppnuð upp á það að þessi mynd skýrir hvernig Star Wars sagan er, hún svona fyllir upp í
…
Þetta verður stutt gagngrýni enda sú fyrsta hjá mér.Mér fannst þessi mynd vera mjög vel heppnuð upp á það að þessi mynd skýrir hvernig Star Wars sagan er, hún svona fyllir upp í
eiðurna.En ég verða að játa að þetta er enginn snilldar mynd
en ég gef henni samt nokkrar stjörnur útaf því að það var lagt eitthvað í hana og hún virkar fyrir mannfjöldan.
Ég mæli með að fólk kíki á þessa mynd þó að það sé ekki StarWars áðdáendur, en skilda er að hafa séð hinar myndirnar
Ég hef nú aldrei verið neitt mjög hrifinn af Star Wars myndunum þessi kom mér dáldið á óvart mað því að vera bara nokkuð góð. Mér finnst Star Wars myndirnar alltaf snúast um svo asn…
Ég hef nú aldrei verið neitt mjög hrifinn af Star Wars myndunum þessi kom mér dáldið á óvart mað því að vera bara nokkuð góð. Mér finnst Star Wars myndirnar alltaf snúast um svo asnalega hluti og ekki síðu þessi enn þessi er með besta söguþráðinn að mínu mati. Svarthöfði kominn aftur í öllu sínu veldi og ekki síðri enn í gömlu myndinni.
Ég verð því miður að vera ósammála nokkrum hér og segja að þessi mynd hafi engan veginn náð fram því sem ég var að vonast eftir. Ég ásamt vini mínum sem einnig er mikill Stjörnust…
Ég verð því miður að vera ósammála nokkrum hér og segja að þessi mynd hafi engan veginn náð fram því sem ég var að vonast eftir. Ég ásamt vini mínum sem einnig er mikill Stjörnustríðsaðdáandi fórum á myndina og vorum að spá í að fara út í hléinu. Það sem mér fannst verst við þessa mynd var það að hún var að reyna að toppa allt. Bardagaatriðin með geislasverðin voru ýktari, flugatriðin einnig, furðulegu skepnurnar asnalegri og fáránleikinn verri. Ég gef hálfa stjörnu fyrir seinni helminginn sem var skömminni skárri en fyrir hlé. Ég mun aldrei borga mig inn á neitt sem George Lucas kemur nálægt í framtíðinni. Mér fannst þetta rán um hábjartan dag.
Ég hef aldrei verið star wars fíkill og mun það aldrei en það er samt skemmtilegt að sjá star wars. ég fór á þessa mynd i lúxus sal og mér fannst það nú bara ágætt. ég mæli með …
Ég hef aldrei verið star wars fíkill og mun það aldrei en það er samt skemmtilegt að sjá star wars. ég fór á þessa mynd i lúxus sal og mér fannst það nú bara ágætt. ég mæli með að allir sjái þessa mynd. mér finnst nú bara synd um hann anakin en þið verðið að sjá myndina til að vita hvað ég er að tala um;).