Ben Gates er úr fjölskyldu fjársjóðsleitarmanna. Núna segir afi hans honum að hann telji að forfaðir þeirra hafi grafið fjársjóð einhversstaðar í landinu og hafi skilið eftir vísbendingar út um allt en því miður séu þær duldar og þeim sé dreift út um allt. Ben telur nú að hann hafi fundið vísbendingu en hún leiðir hann aðeins að annarri vísbendingu, sem er staðsett á baksíðu sjálfstæðisyfirlýsingar Bandaríkjanna. Einn af samstarfsmönnum hans, Ian, stingur upp á því við hann að þeir steli yfirlýsingunni þannig að þeir geti komist yfir vísbendinguna um fjársjóðinn, en Ben hafnar því. Samstarfsmaðurinn bregst við með því að reyna að drepa Ben. En Ben kemst undan og reynir að vara yfirvöld við fyrirætlunum Ian, en enginn trúir honum. Ben ákveður því að stela þessu sjálfur til að reyna vernda yfirlýsinguna. Hann fer og tekst að stela sjálfstæðisyfirlýsingunni, en Abigail Chase, sýningarstjóri í Þjóðskjalsafninu þar sem yfirlýsingin er geymd, kemst að þessu og reynir að stöðva hann en lendir í miðju átaka á milli Ben og Ian, þannig að Ben tekur hana með sér. Hún trúir honum ekki þegar hann segir henni frá fjársjóðinum, en hann er ákveðinn í því að sanna mál sitt. En það verður ekki auðvelt þar sem Ian er alltaf rétt á eftir þeim auk þess sem alríkislögreglan, FBI, er á hælum þeirra einnig.
Já, mér finnst þetta alveg drullusæmileg mynd. Eða reyndar er hún mjög góð nema allan tímann var maður að bíða eftir einhverju spennandi að gerast en það gerðist aldrei. Eða þá er…
Já, mér finnst þetta alveg drullusæmileg mynd. Eða reyndar er hún mjög góð nema allan tímann var maður að bíða eftir einhverju spennandi að gerast en það gerðist aldrei. Eða þá er ég að meina að svona í spennuhlutmarki byrja flestar spennumyndir svona á 25 og fara svo alveg upp á 75 - 80 og detta svo niður í svona 10. En þessi mynd var bara 50 allan tímann. Það er alveg hægt að finna vetri myndir en þessa en mér finnst hún nú eiga fleiri stjörnur skilið heldur 1 og hálfa eins og sumir hafa verið að gefa henni. Ég veit að ég er seinn að skrifa um þessa mynd en það er þess virði þar sem að nýja myndin eða : National Treasure Book Of Secrets kemur eftir fjóra daga maður. Ég skírði þessa umfjöllun : Góð spurning því að spurningin er sú hvort að það sé þess virði að fara á nýju og ég segji tvímælalaust að svarið sé já. Reyndar er það alveg rétt hjá sumum ykkar að það vantar aðeins meira hasar í þessa mynd, vona að þeir hafi lagað það í nýju myndinni eða það hlýtur að vera eða vonandi því að hún er skráð inn sem Gamanmynd og Spennumynd. Mér líst helvíti vel á hana eftir þessa.Látum þetta næja. En allavegana þið þá mundi ég skella mér á National Treasure Book Of Secrets. - Andrii
Mér fannst þessi mynd bara nokkuð góð. Fléttan var sosem ekki neitt til að hrópa húrra fyrir en þó kom hún mér skemmtilega á óvart. Mætti reyndar vera meiri hasar og það var eitthvað sem vantaði með vísbendinga leitina sem hefði geta skapað meiri spennu og eftirvill vakið fleiri spurningar hjá áhorfandanum.
Nicholas Cage + Bruckheimer : kjaftæði en ágætt miðjumoð fyrir eitt kvöld í bíói. Hvað er hægt að segja um National Treasure? Þetta er hreint miðjumoð með ágætis hluti í sér. S…
Nicholas Cage + Bruckheimer : kjaftæði en ágætt miðjumoð fyrir eitt kvöld í bíói. Hvað er hægt að segja um National Treasure? Þetta er hreint miðjumoð með ágætis hluti í sér. Sean Bean er stór plús, sögunni gengur ágætlega líka. Ég fór á hana með engar væntingar og borgaði ekkert, það var þess virði. National Treasure er ekkert sérstök en ágætis afþreying.
Byrjunin er hálf slöpp en síðan rætist úr myndinni. National treasure er klisja en klisja af skárri gerðinni. Ég allavega skemmti mér vel og bjóst við mun verri mynd. Nicholas Cage er þar…
Byrjunin er hálf slöpp en síðan rætist úr myndinni. National treasure er klisja en klisja af skárri gerðinni. Ég allavega skemmti mér vel og bjóst við mun verri mynd. Nicholas Cage er þarna í fararbroddi og fer svona sæmilega með hlutverkið. Jon Voight fer með aðal gamanhlutverk myndarinnar(Já Jon Voight)en ég get ekki sagt að hann hafi kallað mörg bros hjá mér. Og Harvey Keitel fær sinn tíma á tjaldinu(skjánum þegar þessi mynd verður orðin það gömul)en mér finnst sá leikari vera orðinn eitthvað svo slappur undanfarið og hann ætti bara að taka sér smá hvíld. Ég er soldið að leita að því sem ég á að segja um þessa mynd, eins og ég minntist á, hún er klisja, hér er ekkert nýtt á ferðinni og ef að sjálfstæðisyfirlýsinga....whatever...væri tekið í burtu þá væri myndin algjört miðjumoð. En jæja, National treasure er allt í allt ágætis afþreying sem maður eiginlega vill sjá bara einu sinni. Hún á ekki eftir að eldast vel. Ég splæsi tveimur og hálfri stjörnu.
Skellti mér á þessa mynd með smá væntingar um góða mynd en það virkaði ekki. Hún er alltof augljós frá byrjun til enda, fannst mér. Þó svo að þetta sé engin hörmung, þá mæli é…
Skellti mér á þessa mynd með smá væntingar um góða mynd en það virkaði ekki. Hún er alltof augljós frá byrjun til enda, fannst mér. Þó svo að þetta sé engin hörmung, þá mæli ég með að fólk sjái aðra mynd í bíó en þessa. Margt betra en þessi. Gef henni 1 og hálfa stjörnu.
National Treasure er blanda af svo mörgu. Formúlan nær alveg frá Raiders of the Lost Ark til Da Vinci Lykilsins. Hins vegar verður því ekki neitað að það er gríðarlegur gæða(-og greinda…
National Treasure er blanda af svo mörgu. Formúlan nær alveg frá Raiders of the Lost Ark til Da Vinci Lykilsins. Hins vegar verður því ekki neitað að það er gríðarlegur gæða(-og greindar?)munur á söguþræði eða sjálfu innihaldi þessarar myndar frá öðru hvoru. Myndin er reyndar heldur sérkennileg hvað plott varðar og ennþá er ég ekki búinn að átta mig á hvort ég eigi að kalla handritið gáfað eða heilasnautt. Ætli niðurstaðan sé ekki bara bæði. Grunnurinn á söguþræðinum er athyglisverður, en hann er jafnframt götóttur og þunnur. Ýmsar flétturnar og vísbendingarnar í ráðgátunni eru nettar og úthugsaðar, en á öðru stigi er myndin svo hlægilega klaufsk að þetta smellur hvergi í samhengi (dæmi: ef Frímúrarnir höfðu aðgang að öllum fjársjóðnum á fyrri tímum, hvers vegna notuðu þeir hann ekki þegar þjóðin þurfti mest á fjárhagnaði að halda í stað þess að fela hann þar sem hann væri sama og gleymdur??). Ég var samt virkilega ánægður með keyrsluna á sögunni, og hún veldur einmitt því að maður hugsi ekki ''of'' mikið út í neikvæðu hliðar hennar. Myndin er skemmtilega hröð, jafnvel fyndin sumstaðar. Nicolas Cage er eins og við þekkjum hann oftast úr mainstream myndum, getur verið bæði gott eða slæmt. Diane Kruger sér um að líta vel út og Sean Bean festir sig enn einu sinni í hlutverk illmennisins sem reynist vera stereótýpa. Og talandi um stereótýpur, þá finnast þær við alla kanta, hvort sem verið er að ræða um félagann með alla brandaranna eða vafasama pabbann, menntaða sérfræðinginn sem verður ósjálfrátt að hetjunni og getur gert hluti sem aðeins áhættumenn sérhæfa sig í og svo auðvitað konuna sem hatar hann fyrst áður en hún fellur fyrir honum. Sem Disney-ævintýramynd ætti hún að henta flestum meðlimum fjölskyldunnar. Skemmtanagildið skiptir auðvitað öllu hér. Mér leiddist ekkert yfir myndinni, og fyrir það eitt og sér ætla ég að vera örlátur og gefa henni sexuna. En eins og áður sagði, þá eru ýmsir gallar varðandi handritið. Ég vona að framleiðendur læri samt af mistökunum og ráði ekki hjónin Cormac og Marianne Wibberley aftur í handritaskrifin, en þau stóðu einmitt á bakvið myndir á borð við The Sixth Day, I Spy og Bad Boys II - þið fattið vonandi hvað ég er að fara. Og jafnvel þótt Jon Turteltaub hafi sitt nafn undir leikstjóraheitinu, þá er auðséð að Jerry Bruckheimer hafi mikið fiktað við framleiðsluna, enda er maðurinn þekktur fyrir að skipta sér af öllu. Meira að segja útlitið minnir á köflum á CSI og atburðarásin spilast út eins og The Amazing Race (báðir þættirnir eru úr smiðju hans). En jæja, það þýðir ekkert að kvarta meir. Kíkið bara á myndina sjálf. Bara ekki búast við að hér sé um einhvern fjársjóð að ræða.6/10
National Treasrue er ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna en ekkert meira. Þetta var mjög skemmtileg mynd og það er alveg hægt að hafa gaman af henni svo lengi sem maður sé ekki að búast …
National Treasrue er ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna en ekkert meira. Þetta var mjög skemmtileg mynd og það er alveg hægt að hafa gaman af henni svo lengi sem maður sé ekki að búast við stórmynd. Ég hafði mikið gaman af henni en það var samt mikið sem hefði mátt koma betur út, sem dæmi þá sér maður fljótt að handritið er götótt og hefði meiga laga það. Sagan og hugmyndin er góð en ekki nógu vel skrifuð. Mér fannst ég vera að horfa á Indiana Jones mjög oft og svo mátti sjá tilvitnanir í aðrar myndir. Nicholas Cage er hér í aðalhlutverki en sýnir ekkert stórleik, hann er bara svona venjulegur, ég tel reyndar að það hefði þurft einhvern betri leikara fyrir hlutverkið því Cage er ekkert svo hæfur í svona hlutverk, ég persónulega tel að Harrison Ford hefði geta gert persónuna skemmtilegri en hann er orðinn gamall og er á fullu með Indiana Jones 4 og fleiri myndir. Í myndinni koma margar tilvitnanir úr sögu BNA og til þess að geta skilið þær þá þarf maður að vita eitthvað um sögu BNA. Til að mynda þá voru gleraugun í myndinni fundin upp af Benjamin Franklin og eru þau til í alvörunni. National Treasure er skemmtileg ævintýramynd fyrir alla fjölskylduna og ég mæli með að fólk skelli sér á hana en bara með það viðhorf að skemmta sér en ekki fara á hana til þess að búast við stórmynd eða einhverri svaka gæða mynd. Bara fara til þess að skemmta sér.
National Treasure er Jerry Brucenheimar í hnotskurn. Kannski litast þessi dómur að því að ég er enn frekar fojj yfir meðferð J.Brucenheimer á Artúri konungi í King Arthur sem ég sá í v…
National Treasure er Jerry Brucenheimar í hnotskurn. Kannski litast þessi dómur að því að ég er enn frekar fojj yfir meðferð J.Brucenheimer á Artúri konungi í King Arthur sem ég sá í vikunni og ég kláraði líka Da Vinci lykilinn nokkrum dögum áður. Þessi framleiðandi er í senn óþolandi fyrir kvikmyndaáhugamann eins og mig og brilljant afþreingar-gúru fyrir almenning sem vill bara skemmtun og búið. Svona Spielberg/Lucas without the talent. Það sem mér þykir einna verst við þennan ofur-framleiðanda að hann virðist ætla að fara gera myndir um goðsagnir og fyrirmyndir í sögunni og það er alveg OFF. Hérna eins og í King Arthur notar hann einnig reynslulítinn leikstjóra sem hann getur þá væntanlega frekar formað frekar inn í sinn einstaka stíl. Leikstjóri K.Arthur sagði í aukaefnis-viðtali á DVD-disknum að J.Bruckenheimer hefði vakað yfir öllu eins og hershöfðingi- fór ekki á milli mála hver réði ferðinni. Heilalausir skemmti-rússibanar eins og Con Air, The Rock,Bad Boys og Pirates of the Carabean eru hans svið og þar er hann brilljant. Láttu söguna og goðsagnir vera PLEASE ! Það er akkúrat ekkert frumlegt við National Tresure. Kannast einhver við eftirfarandi: Erkióvinur að elta sama fjársjóð, fyndinn side-kick sem segir sniðug komment á 10 mín fresti,ótrúlega brilljant rán, FBI á hælum allra, John Voight leikur pabbann , rosaklár dísæt stelpa fyrst á móti hetjunni en svo með ástfanginn og allt, sama góða hasar-tónlistin og í öllum hinum myndunum hans, and so on and so on.... Þetta er vissulega rússibani en allt byggingarefnið er lánað (stolið) frá m.a. frá Da Vinci lyklinum, Goonies, Indiana Jones og öllum hinum J.Brucenheimer myndumum - endurvinnsla.is og jú.. ekki örvænta J.B. er með sprengingar í öllum myndum... meira að segja King Arthur :) Nicolas Cage er slakur, hann er vissulega töffari en enginn Harrison Ford. Hann er að ráða í flókin dulmál á methraða alla myndina með sama leik og í Gone with 60 seconds. Það er fullt af öðrum góðum leikurum í myndinni en þeir eru bara að leika í enn einni J.Brucenheimer myndinni - enginn stórleikur enn sleppa enda er erfitt að sjá fyrir sér þá Sean Bean, Harvey Keitel, Jon Voight og Christopher Plummer leika illa - þeir kunna það ekki. Kannski er ég bara orðinn of gamall(33) eða of kröfuharður kvikmyndaunnandi til að njóta froðu á hvíta tjaldinu. Ég er líka mikill aðdáandi mannkynssögu og goðsagna og bara þoli ekki þegar illa er farið með góðan efnivið. Ég þakka Guði fyrir að Jerry Brucenheimar gerði ekki Lord Of The Rings ( 2 tíma hasarmynd með sprengingum ) Góða skemmtun. SW.
Þessi Jerry Bruckheimer-framleidda Disneymynd er rússíbanareið, miðað greinilega á börn og unglinga, enda leyfð til sýninga fyrir alla aldurshópa. Bruckhemer veit líka að börn og ungling…
Þessi Jerry Bruckheimer-framleidda Disneymynd er rússíbanareið, miðað greinilega á börn og unglinga, enda leyfð til sýninga fyrir alla aldurshópa. Bruckhemer veit líka að börn og unglingar hafa fæst lesið Da Vincy lykilinn og Engla og djöfla og átta sig því ekki á hverslags bévítans rippoff þessi mynd er. Heilu og hálfu atriðunum er rænt af Dan Brown þar sem Cage hendist gegnum borgir Bandaríkjanna leitandi að földum vísbendingum í frægum þjóðargersemum í leit sinni að fjársjóði.
Annars hafa börn og unglingar örugglega voða gaman af og gef ég því eina og hálfa drulluköku þrátt fyrir ritstuld ársins.