Myndin fjallar um ris og fall úkraínska innflytjandans Yuri Orlov, allt frá því snemma á ferli hans í byrjun níunda áratugar síðustu aldar í Little Odessa, þar sem hann seldi mafíósum byssur í hverfinu, og í gegnum ris hans fram á tíunda áratuginn, þegar hann stofnar til viðskiptasambands við afrískan stríðsherra og klikkaðan son hans. Myndin segir einnig frá sambandi hans við yngri bróður hans, hjónabandi hans við fræga fyrirsætu, eltingarleik alríkislögreglunnar við hann, og baráttu hans við innri djöfla.
Frábær mynd með Nicolas Cage í aðalhlutverki vopnasalans Yuri.
Yuri rekur veitingarstað ásamt fjölskyldunni sinni, sem að gengur ekki það vel.
Einn daginn eftir að Yuri verð…
Frábær mynd með Nicolas Cage í aðalhlutverki vopnasalans Yuri.
Yuri rekur veitingarstað ásamt fjölskyldunni sinni, sem að gengur ekki það vel.
Einn daginn eftir að Yuri verður vitni af skotáras inn á veitingarstað ákveður hann sér að gerast vopnasali og byrjar þá smátt og smátt með tímanum að verða sá besti.
Þessi mynd er algjör snilld og er must að horfa á hana að minsta kosti tvisvar að mínu mati.
Handrit og leikur eru til fyrirmyndar, og sama má segja um frábæra tónlist og skemmtilega klippingu.
Þessi mynd kom mér mjög skemmtilega á óvart. Nicolas Cage ótrúlega góður í sínu hlutverki sem vopnasali. Annað hvort er Nicolas Cage ótrúlega góður, eða ótrúlega lélegur. Hann l…
Þessi mynd kom mér mjög skemmtilega á óvart. Nicolas Cage ótrúlega góður í sínu hlutverki sem vopnasali. Annað hvort er Nicolas Cage ótrúlega góður, eða ótrúlega lélegur. Hann leikur oft í ótrúlega góðum myndum, og geri það frábærlega, eða hann leikur í hræðilegum myndum og gerir það hræðilega.
Svo er það Jared Leto sem leikur litla bróðir hans, sem er alveg frábær leikari, og í þessari mynd er það engin undantekning.
Myndin er um vopnasala sem er að selja hættuleg vopn víðsvegar um heimin. Alveg frá asíu, afríku og evrópu. Og er hann að græða ótrúlega mikin pening á því. En á meðan er hann líka að takast á við erjur heima fyrir, og fjölskilda hans veit mest lítið um hans starf sem vopnasali.
Myndin er bæði spennandi, skemmtileg, fyndin, rómantísk, sorgleg og óhugnaleg. Og alveg frábærlega vel unninn á alla staði.
Mæli eindregið með því að þið takið þessa, ef þið hafið ekki en séð hana.
Verð að segja að mér finnst þetta vera ein besta mynd ársins. Nicolas Cage fer á kostum sem siðblindur vopnasali sem verður siðblindari með hverri sölunni. Sýnir á sannfærandi hátt hva…
Verð að segja að mér finnst þetta vera ein besta mynd ársins. Nicolas Cage fer á kostum sem siðblindur vopnasali sem verður siðblindari með hverri sölunni. Sýnir á sannfærandi hátt hvað þeir bræðurnir eru samt mannlegir. Byrja sem viðvaningar en færa sig svo upp á skaptið. Góður söguþráður, styður skemmtilega mannkynssöguna og þá atburði sem flestir á mínum aldri hafa orðið vitni að. Mæli eindregið með henni.
Ég bjóst við því að lord of war væri allt öðruvísi mynd, ég bjóst við raunsæilegri mynd um vopnabraskara sem selur vondu köllunum byssur og þar sem hann sjálfur myndi lenda í eldlín…
Ég bjóst við því að lord of war væri allt öðruvísi mynd, ég bjóst við raunsæilegri mynd um vopnabraskara sem selur vondu köllunum byssur og þar sem hann sjálfur myndi lenda í eldlínunni og þurfa að taka til sinna málanna, EN NEI! svo var ekki. Í staðin er Yuri (Cage) bara einhver skíthæll sem maður er næstum því farinn að halda með í miðri mynd en svo er honum næstum þvi alveg sama um allt og alla, og hugsar bara um að bjarga sínu eigin skinni þótt það kosti saklaust fólk lífið sem gerir það að verkum að maður á mjög erfit að skilja stöðuna sem hann er í. En okey ég skil að þetta sé raunverulegra þannig, því að flestir vopnabraskarar eru svona í alvörunni, en þá finnst mér vannta að aðrir hlutir þyrftu að vera raunverulegri t.d. eins og um hvernig svona viðskipti fara fram, hvernig maður finnur kaupanda og hvernig maður á að fara að því að múta öllum svona til þess að láta sig í friði.
Vopnasölumyndir hafa svo sem ekkert verið að flækjast fyrir manni síðustu árin. Efnið er því a.m.k. ferskt ef taka má þannig til orða og löngu tímabært að gera því góð skil, þar …
Vopnasölumyndir hafa svo sem ekkert verið að flækjast fyrir manni síðustu árin. Efnið er því a.m.k. ferskt ef taka má þannig til orða og löngu tímabært að gera því góð skil, þar sem það er ekki ómerkilegra en svo að vopnasalar selja hverjum sem vopnin og nagar það ekki samvisku þeirra þótt saklaust fólk verði fyrir barðinu þeim. Þetta er auðvitað háalvarlegt málefni og reyndar ekki auðvelt nálgast það að mörgu leyti svo úr verði góð bíómynd.
Ég varð hins vegar fyrir nokkrum vonbrigðum með þessa mynd...hélt satt að segja að hún myndi leiða mann í allan sannleika um hvernig þessi mál ganga fyrir sig. En satt að segja var þetta gamli hollívúdd-bragurinn...yfirborðskennd saga af Yuri Orlov (Nicolas Cage) frá Úkraínu, saga sem maður vissi aldrei hvort maður var að koma eða fara í þessari mynd.
Þessi mynd náði aldrei trúverðugleika, vegna yfirgengilegrar yfirborðskenndar. Dæmi; kona Yúris, hafði hún engan áhuga að vita um fortíð tilvonandi eiginmanns síns? Hmmm..ekki var svo að sjá. Svo var það löggan (Ethan Hawke)hann kom alltaf eins og skrattinn úr sauðarleggnum, allsstaðar sem Yúri var.
Þessi mynd var þó ekki alvond...ekki langt í húmorinn, t.d. þegar þeir lentu á flugvélinni á þjóðvegi e-s staðar í Afríku...eins og við manninn mælt íbúarnir í nágrenninu voru á innan við sólarhring búnir að stela öllu sem hægt var að stela...gaman væri fyrir okkur að hleypa þessu fólki í gömul skipsflök sem liggja um víð og dreif um landið okkar.
Hinn frábæri leikari Ian Holm er alveg einnar stjörnu virði fyrir þessa mynd. Hálfa stjarnan er fyrir afþreyingargildið.
Nicholas Cage sýnir hér hversu góður leikari hann er, hann fer á kostum sem hinn eitursnjalli vopnasali Yuri Orlov. Jared Leto sýnir hér snilldar leik sem bróðir hans og Ethan Hawke getur va…
Nicholas Cage sýnir hér hversu góður leikari hann er, hann fer á kostum sem hinn eitursnjalli vopnasali Yuri Orlov. Jared Leto sýnir hér snilldar leik sem bróðir hans og Ethan Hawke getur varla stígið feilspor í dag. Mæli eindregið með þessari mynd.
Lord of War er svipuð Goodfellas að sögustíl, Nicholas Cage talsetti alla myndina til þess að upplýsa áhorfandann um söguna og uppsetning myndarinnar er að mestu leiti sú sama. Byrjað er …
Lord of War er svipuð Goodfellas að sögustíl, Nicholas Cage talsetti alla myndina til þess að upplýsa áhorfandann um söguna og uppsetning myndarinnar er að mestu leiti sú sama. Byrjað er á fyrri ár aðalpersónunar sem heitir Yuri Orlov og sýnt er hvað dró hann til þess að verða að vopnasala, alveg eins og Goodfellas þá er persónukynningin gífurleg og mikið er fjallað um fjölskyldulífið þar sem báðar myndirnar einbeita sér á glæpum. Þetta er besta myndin hans Andrew Niccol síðan Gattaca, enda hefur hann aðeins gert þær tvær myndir og svo S1m0ne árið 2002, en þrátt fyrir þennan einkennilega sögustíl þá hafði maður séð þennan stíl of oft, það var aðallega uppbyggingin sem sló sig sjálft niður því sagan dróst við seinni helmingin. Lord of War er í þessu samhengi vopnasalinn Yuri, hann selur vopnin til þjóða/þjóðflokka sem berjast gegn óvinum aðeins Orlov selur vopn til hvaða flokka sem er. Siðferðin bakvið myndina er mjög ´anti-bandarísk´, það eru ´Big Brother is watching you´ einkenni þar sem leynileg yfirvöld taka þátt í þessum sölum, að lokum fer þó þessi bransi að komast í gegnum fólkið í kringum hann þar sem hann á sér stóra fjölskyldu. Ég bjóst við að Lord of War væri mun alvarlegri þar sem efnið bakvið söguna er mjög viðkvæmt, en einhvern vegin þá gat Niccol skrifað handrit sem er ekki aðeins fyndið, heldur tekur mark á alvarleikanum bakvið raunveruleikann. Ég vildi gefa þessari mynd þrjár og hálfa stjörnu en í staðin er hún há-þriggja stjörnu mynd, mjög góð að öllu leiti.