Cindy Campbell er atvinnulaus, en fær vinnu í húsi sem álög hvíla á. Í húsinu býr kona sem hún á að annast, en í húsinu er einnig draugur ungs drengs. Á sama tíma þá er unglingssonurinn Robbie og hin unga dóttir Rachel í heimsókn hjá föður sínum í næsta húsi, kranastjóranum Tom Ryan. Ryan er hálfgerður auli en hann og Cindy hittast og verða ástfangin. Þegar risavaxin þrífætt skrímsli utan úr geimnum gera árás á jörðina, þá sleppur Tom með Robbie og Rachel; Cindy fer í næsta þorp og reynir að finna svarið við því hvernig hægt er að bjarga heiminum; og forseti Bandaríkjanna skipuleggur varnaraðgerðir.
Mjög Fyndinn mynd hér á ferðinni hló næstum yfir öllum bröndurum.Operan var algjör snilld,Ein af uppáhalds myndunum mínum.Það er gert grín af t.d War Of The Worlds,The Grudge,Saw.Ég var…
Mjög Fyndinn mynd hér á ferðinni hló næstum yfir öllum bröndurum.Operan var algjör snilld,Ein af uppáhalds myndunum mínum.Það er gert grín af t.d War Of The Worlds,The Grudge,Saw.Ég var allann tímann með opin augun á þessari mynd.Ég hef séð hana svona 10 sinnum þannig að ég nenni varla að horfa á þessa mynd aftur.Stelpan var alveg rosalega óhepin.Fyrstu tvær myndirnar voru alveg allt öðruvísi heldur en 3 4.Scary Movie 1 var góð Scary Movie 2 ágæt ekki skemmtileg samt Scary Movie 3 var mjög fín búinn að sjá hana svona 100 sinnum Scary Movie 4 er eina myndin sem ég hlæ enþá af.Scary Movie 4 er rosalega góð og spennandi.Ef þér fannst fyrstu 3 góðar tékkaðu þá þessa. Mæli Mikið með henni ef þú hlærð mikið
Hef bara eitt að segja: RUGL! En það fyndið rugl. Þarna er á ferðinni snilldar gamanmynd, en hún er gróf og skopstæling grófra mynda, s.s. War of the Worlds, Saw III og The Villidge. Og þa…
Hef bara eitt að segja: RUGL! En það fyndið rugl. Þarna er á ferðinni snilldar gamanmynd, en hún er gróf og skopstæling grófra mynda, s.s. War of the Worlds, Saw III og The Villidge. Og þarna er Lessile Nilsen mættur aftur og aldrei ferskari.
Mæli með þessari mynd en ekki fyrir ung börn vegna þess að foreldrarnir gætu þurft að útskýr mörg atriði myndarinnar! Haha!
Scary movie myndinar eru orðnar 4. Allar þessar myndir snúast um að gera grín að öðrum myndum sem voru vinsælar. Allar eru þær jafn vitlausar. Það er ekkert nýtt hér á ferðini. Þessi fjórða mynd er fyndin á köflum en stundum er myndin svo vitlaus að maður getur ekki annað en byrjað að hugsa um annað. Ef þú vilt sjá mynd sem er stundum skemmtileg og stundum ömurleg þá er þetta mynd fyrir þig. Maður hefur nú séð það betra.
Scary movie myndirnar taka hinar ýmsu mismunandi myndir fyrir og skopstæla þær. Fjórða myndin í þessari seríu gerir grín að t.a.m. War of the worlds, The Grudge og Saw og blandar þeim sama…
Scary movie myndirnar taka hinar ýmsu mismunandi myndir fyrir og skopstæla þær. Fjórða myndin í þessari seríu gerir grín að t.a.m. War of the worlds, The Grudge og Saw og blandar þeim saman þannig að útkoman verður bara nokkuð skemmtileg og það er alveg merkilegt að sjá hvernig aðstandendum myndarinnar tókst vel að tengja allar þessar myndir saman í eina heild. En þrátt fyrir allt þá fannst mér Scary movie 4 ekkert sérlega góð, það eina góða sem hún hefur upp á að bjóða er það sem ég taldi upp fyrir ofan. En þetta er bara svo vel útfært að þetta verður alveg ágætis skemmtun og býður upp á nokkra hlátra. Þetta er jú sorp en sorp af betri gerðinni, ég þarf víst ekki að taka það fram að það á alls ekki að taka svona mynd alvarlega sérstaklega ekki miðað við hversu súrrealísk skopstæling hún er. Tvær stjörnur frá mér og þeir sem hafa séð þessar myndir sem er gert grín að hér ættu að hafa pínulítið gaman af að sjá hvernig David Zucker og félagar bjaga þær.
Scary Movie-myndirnar eru allar lélegar! Gagnrýnendur þurfa að fara að sætta sig við það!... Það eru ekki gæðin sem hafa forgang hér, heldur fíflalætin. Það sem skiptir mestu máli e…
Scary Movie-myndirnar eru allar lélegar! Gagnrýnendur þurfa að fara að sætta sig við það!... Það eru ekki gæðin sem hafa forgang hér, heldur fíflalætin. Það sem skiptir mestu máli er hvernig húmorinn virkar á áhorfandann. Ég fílaði fyrstu tvær Scary Movie myndirnar ekkert sérstaklega. Því miður, en það er bara eitthvað við Wayans-bræður og þeirra sífellda hasshausa- og gredduhúmor sem ég næ ekki. David Zucker tók þriðju tilraunina að sér, og fannst mér hún koma e.t.v. best út, enda var meira um bull og vitleysu heldur en eitthvað gróft. Scary Movie 4 er ekki snilld, þvert á móti þá er hún asskoti léleg, en leiðinleg er hún ekki. Eftir að hafa næstum grenjað inni í mér yfir hallærisleika Date Movie þá get ég sagt að þessi sé meistaraverk í samanburði. Myndin hefur samt sína spretti, og þá í ágætu magni. Satíran skilar sér einnig stórskemmtilega (ræða forsetans hjá "UN" var brill. Takið sérstaklega eftir íslenska fánanum stuttu síðar!) ásamt sæmilega heppnuðum skotum á War of the Worlds, The Grudge, The Village og Saw. Myndin missir auðvitað stig fyrir mörg fáránleg slapstick-atriði, og meira að segja fjölmörg hálf pínleg. Vanalega er ég ekki mikið að hrósa leikurum í svona myndum en mér fannst Craig Bierko vera alveg óborganlega fyndinn, og átti hann langfyndnustu sketchanna (Oprah-senan var mögnuð!). Það þýðir ekki að vera langorður á svona rýni. Ef að þið fílið spoof-myndir þá ætti þessi að geta kætt ykkur eitthvað. Ef ekki, ekki þá horfa á hana. Best er bara að skilja heilasellur eftir heima og taka á móti kjaftæðinu eins og það leggur sig. Ég segi þetta samt aldrei nógu oft, þessi mynd er svo MIKLU betri en Date Movie!6/10
(Smá spoilerar úr byrjun)Scary movie 4 byrjar í subbulegum klefa þar sem Shaq(Shaq) og Dr.Phil(Dr.Phil) eru staddir eða réttara sagt bundnir með keðjum og þurfa að gera þrautir(og skera af …
(Smá spoilerar úr byrjun)Scary movie 4 byrjar í subbulegum klefa þar sem Shaq(Shaq) og Dr.Phil(Dr.Phil) eru staddir eða réttara sagt bundnir með keðjum og þurfa að gera þrautir(og skera af sér fótinn) til að komast lifandi út. Cindy Campbell(Anna Faris) er kominn aftur í og er hætt í fréttamennsku og fær hjálp frá vini sínum og fyrrum tengdarbróður sínum Tom Logan(Charlie Sheen) að fá vinnu í að heimahjúkra gamla konu. Um leið og hún kemur þangað sér hún draug, lítinn strák sem bjó í húsinu. Hún verður líka ástfangin af nágranna sínum Tom Ryan(Craig Bierko) sem vinnur í höfninni og á að sjá um börnin sín Rachel(Conchita Campbell) og Robbie(Beau Mirchoff) um helgina. En það vill svo til að geimverur ráðast á jörðina á risa tri- pod-um og ætla sér að losna við mannkynið.En draugurinn veit um leiðina til að sigrast á tri-podunum en Cindy þarf að ferðast í lítinn bæ til að komast þangað og á leiðinni hittir hún Brendu(Reginu Hall) aftur (en hún virðist koma aftur þótt hún deyji í öllum myndunum nema SM2 en var drepin í deleted scene)en hún er orðin fréttakona. Á meðan er Tom að flýja með börnunum sýnum og Forsetinn(Leslie Nielsen) er kominn aftur.(Spoilerar enda).
Scary movie 4 er eins og titilinn gefur til kynna 4 Scary movie myndin og er frá þeim sömu og mynd nr. 3 og með sömu leikurum og voru í henni. Mig langaði ekkert rosalega á SM4 en fór með vini mínum og var með frímiða. Í 1 var aðalega verið að gera grín af Scream og I know.. í 2 var það Exorcist,Haunting og Poltergeist og í 3 Ring, Signs, 8 miles og Matrix Reloaded(Signs var thriller, 8 miles tónlistar-drama með Eminem og Matrix vísindaskáldsaga) núna eru það War of the worlds, Grudge, Village og Saw. Það var hræðilegt að hafa 8 miles og Matrix í sm3, (hvorugar hryllingsmyndir, ekki einu sinni thrillerar né þá spennumyndir), hélt nú að þeir hefðu lært af því en nei, War of the worlds(vísindaskáldsaga, spennumynd) og Village(Thriller-drama) voru notaðar og þá notuðu þeir mest War of the worlds af öllum hinum myndunum og það voru STÓR MISTÖK og gerðu alveg út við myndina. Svo var annað leiðinlegt sem ég tók eftir í myndinni það var myndatakan, hún var algjör skelfing, miklu verri en í hinum myndunum(belive it or not), stundum var hún eins og í hinum myndunum og svo stundum eins og í þær sem eru notaðar í fréttunum. Ég tók eftir Charlie Sheen og Michael Madsen í pínuhlutverkum og svo lék Bill Pullman pabba draugsins og bæjarstjóra í smábæ í 1800. Margi persónur sem áttu víst að vera einar af aðalpersónunum voru bara í fáeinum atriðum eins og t.d. Carmen Elektra var bara í tveimur mjög stuttum atriðum og aðrir leikarar voru ekki mikið lengur.
Handritið var hræðilegt og leikstjórn Zuckers ekkert mikið betri, myndin nokkuð stutt og bara gerð til þess að græða á henni, þeir nenntu ekki einu sinni að vanda sig pínu-pínu lítið við gerðar hennar, þessir gráðugu hollywood leikstjórar ÚFF. Leikurinn líka slappur.
Og svo er enn eitt afhverju er King kong á plaggatinu, hann er ekkert í myndinni? og svo er enginn drepinn í myndinni(Charlie Sheen dettur af svölunum og Shaq og dr. Phil drepast af taugagasi).
En eitt hefur Scary movie 4,hún var fyndin en það er alls ekki nógu til að bæta upp fyrir þessa risa galla en mér fannst Grudge brandararnir bestir af öllum bröndurunum í myndinni. Það á að gera 5 myndina og vona bara að þeir geri betur og fari að gera grín af HRYLLINGSMYNDUM og fái einhverjar fleiri aðalpersónur einu sem voru í þessari voru Cindy og Tom.
Scary movie 5 er verri en myndir 1 og 3 og sleppið að fara á hana í bíó,leigiði hana frekar ef ykkur langar til að sjá hana.
Mér fanst þessi mynd bara fín!. maður hló þarna tvisvar, þrisvar. Hún er ekki svo fyndin. Fyrsta Scary Moovie var góð. Önnur var hundleiðinleg. Þriðja var Bara ágæt. En þessi er nokku…
Mér fanst þessi mynd bara fín!. maður hló þarna tvisvar, þrisvar. Hún er ekki svo fyndin. Fyrsta Scary Moovie var góð. Önnur var hundleiðinleg. Þriðja var Bara ágæt. En þessi er nokkuð góð. Í þessari er gert grín af War of the worlds, the Village, Saw, Grudge o.f.l. Samt er andlitið á King Kong með á plakatinu. Svo lengi sem ég man var ekki neitt sem kom nálægt Kong í þessari mynd. Svo er það D.r. Phil. Hann er frábær í þessari mynd. En það er bara eitt. Fyrstu tvær innihalda meira af svörtum húmor. Enda eru þær bannaðar innan 16 ára. Og þar er gert grín af hryllingsmyndum. Enda eru þær framleiddar af Waynes bræðrunum. Síðari tvær eru framleiddar af David Sucker, sá sama sem gerði Top Secret!, Airplane og Naked Gun. Svo er búið að staðfesta fimmtu myndina. Gaman verður að sjá hvernig hún kemur út. Mér skilst að þeir ætli að hafa V for Vendetta í þeirri mynd. En ég gef þessari mynd tvær og hálfa stjörnu fyrir ágætis húmor og fína grínmynd.
Stórglæsileg mynd þessi hefur það besta af þeim öllum Dr.Phil,The Village,War of the Worlds & Oprah...og ég bara fékk lost...bestu brandararnir og allt...eina sem ég get virkilega sagt um þ…
Stórglæsileg mynd þessi hefur það besta af þeim öllum Dr.Phil,The Village,War of the Worlds & Oprah...og ég bara fékk lost...bestu brandararnir og allt...eina sem ég get virkilega sagt um þessa mynd er Besta Hryllings/Grínmynd Allra Tíma og ég vona að allir sem fari á hana njóti hennar jafnmikið og ég gerði!.
Scary Movie.. Hvað get ég sagt?
Hún er hreinlega GEÐVEIK! Ég hef ALDREI á minni ævi hlegið svona mikið í bíósal! Samt eru atriði sem ekki allir vilja sjá en þau eru alls ekki hrikal…
Scary Movie.. Hvað get ég sagt?
Hún er hreinlega GEÐVEIK! Ég hef ALDREI á minni ævi hlegið svona mikið í bíósal! Samt eru atriði sem ekki allir vilja sjá en þau eru alls ekki hrikalega ógeðsleg. Stundum hrekkur maður við en oftast er gert grín af því þannig að maður róast;] Þetta er svaka spennandi mynd og svakalega fyndin! Hún er skrítin og skemmtileg og ég mæli POTTÞÉTT með henni fyrir fólk eldri en 10 ára ;] Höfundur Scary Movie er listamaður!
Þessari mynd gef ég fjórar stjörnur og þar með fullt hús stiga;)
Val á verstu kvikmynd ever? Scary Movie 4. Eftir að horfa á þessa mynd, hugsaði ég: Hafa handritshöfundar engan áhuga að skrifa almennilegt grín lengur? Scary Movie 4 er svo hræðileg að h…
Val á verstu kvikmynd ever? Scary Movie 4. Eftir að horfa á þessa mynd, hugsaði ég: Hafa handritshöfundar engan áhuga að skrifa almennilegt grín lengur? Scary Movie 4 er svo hræðileg að hún lætur hinar myndirnar líta út eins og Godfather hvað varðar gæði. Svo er hann í sífellu að endurtaka sömu brandarana aftur og aftur. Og er það pirrandi. Er enn að reyna átta mig á því: Af hverju ég labbaði ekki út af myndinni þegar hléið var? Og hvernig getur fólk hlegið að þessu? Þessi mynd er sóun á tíma og pening. Forðist þessa algjörlega. Pure leiðindi eins og þau gerast best.
Scary Movie 4 er landmerki um vonleysi nútíma grínmynda, ófyndinn barnahúmor sem er við hæfis fjagra ára barna, en þrátt fyrir það þá er fólk að hlægja af sér vitundina í bíósalnu…
Scary Movie 4 er landmerki um vonleysi nútíma grínmynda, ófyndinn barnahúmor sem er við hæfis fjagra ára barna, en þrátt fyrir það þá er fólk að hlægja af sér vitundina í bíósalnum. Þessi eina stjarna sem myndin fær er fyrir svona þrjá fyndna brandara í allri myndinni, annars er ekkert nema aulabrandarar sem mér finnst einfaldlega sorglegt að þeir skulu hafa komist á hvíta tjaldið. Auðvitað á ekki að búast við neinu merkilegu við Scary Movie 4, en allavega þarf hún að vera fyndin og ef grínmynd mistekst við það að vera fyndin þá ertu ekki með góða niðurstöðu. Án þess að eyða meiri tíma eða orku í þessa mynd þá segi ég aðeins að lokum að Scary Movie 4 er einfaldlega mjög léleg og verra en það, mjög ófyndin mynd.
Ágæt mynd en það gerði allt og mikla grín af war of the worlds og þið vitið að king kong er á plagatinu hann er ekki eini sinni í myndina. Aðal persónunar(Cindy Cambell og Tom Ryan) voru…
Ágæt mynd en það gerði allt og mikla grín af war of the worlds og þið vitið að king kong er á plagatinu hann er ekki eini sinni í myndina. Aðal persónunar(Cindy Cambell og Tom Ryan) voru baara fínir. Það var bannað innan 10 Ára(ætti frekar að vera bannað innan 12ára(út að því að sumar 10ára krakkar hafa ekki þroskan til að skilja svona grófan húmor).)Annað líka það a´tti að hætta að gera grín að alvuru atburðir og alvuru persónur(Dr.Phil og Shag.) og byrja að gera grín að hryllings myndum og að lokum ættu þeir að hætta að gera grín að geimveru myndum og drama myndum. Annars var þett bara fín mynd.
Leikarnir voru bara góðir en það var frekar pirandi það voru suma persónunar bara í eina atriði(ég er ekki að tala um aukaleikarnir(aukaleikarnir eins og íbuanir(í new york).)
Tæknibrellunar voru mjög góðar og ég hef ekki meira að segja um það.
Og að lokum var leikstjórinn var bara fínn.
Farið á http://www.talkscarytome.com/ frábær síða.
Scary movie, er ekkert sérstök mynd en hún er allveg skondin á köflum og það eru allveg atriði í henni sem eru allveg hlæja af.Hún er betri en 2 og 3. en ég ætla samt ekki að mæla með …
Scary movie, er ekkert sérstök mynd en hún er allveg skondin á köflum og það eru allveg atriði í henni sem eru allveg hlæja af.Hún er betri en 2 og 3. en ég ætla samt ekki að mæla með henni en þeir sem fannst hinnar góðar er þetta tilvalin helgar skemtun.
Sko.....1 var mjög góð með flottu plotti fannst mér....2 var ekki eins góð en ég emjaði af hlátri...3 var allveg fín líka, fyndin og skemmtileg en 4......ER ÖMURLEG....þetta er bara svo …
Sko.....1 var mjög góð með flottu plotti fannst mér....2 var ekki eins góð en ég emjaði af hlátri...3 var allveg fín líka, fyndin og skemmtileg en 4......ER ÖMURLEG....þetta er bara svo ekki fyndin mynd og eiðileggur plottið í myndum eins og the village.....mér fannst aðeins eitt atriði allveg ágætt og það var þegar þeir gerðu grín af broakback mountain..........en ef þið viljið fara á eithvað grín og hlæja..........EKKI FARA Á ÞESSA!!!