Stanley Goodspeed býr í Washington D.C. í Bandaríkjunum, og er lífefnafræðingur og vinnur fyrir alríkislögregluna, FBI. Fljótlega eftir að kærasta hans, Carla Pestalozzi, tilkynnir honum að hún sé ófrísk, þá fær Stanley hringingu frá yfirmanni FBI, James Womack. Womack segir Stanley að búið sé að taka hið fyrrum alræmda Alcatraz fangelsi í San Fransisco í gíslingu ásamt 81 ferðamanni sem þar voru að skoða fangelsið. Sá sem er höfuðpaurinn í gíslatökunni er fyrrum sjóliðsforinginn Francis Xavier Hummel, sem í mörg ár hefur mótmælt því að ríkisstjórnin vilji ekki greiða bætur til fjölskyldna stríðshetja, sem dáið höfðu á vígvellinum. Andlát eiginkonu Hummels, Barböru, ýtti honum fram af bjargbrúninni, og hann lét verða af illvirkinu. Nú heldur hann fullt af fólki í gíslingu, til að koma sjónarmiði sínu á framfæri. Womack þarfnast Stanley af því að Hummel stal VX eiturefnavopnum, og hefur tilkynnt að hann muni skjóta þeim á San Fransisco og valda gríðarlegum hörmungum, nema að menn gangi að kröfum hans. Stanley kann að aftengja efnavopnin, en honum vantar aðstoð frá einhverjum sem þekkir Alcatraz nógu vel til að hann komist þangað inn ...
The Rock er algjör hetjumynd frá árinu 1996, gulláratugur kvikmyndasögunnar, þessi mynd segir frá Stanley Goodspeed og John Patrick Mason en þeir eru fengnir af FBI til að stöðva hryðjuver…
The Rock er algjör hetjumynd frá árinu 1996, gulláratugur kvikmyndasögunnar, þessi mynd segir frá Stanley Goodspeed og John Patrick Mason en þeir eru fengnir af FBI til að stöðva hryðjuverkahótun frá fyrrverandi hershöfðingja Francis X. Hummel.
Þessi mynd er rosaleg, ein besta mynd sem ég hef séð, leikurinn er stórgóður, enda klikka þremenningurinn Nicholas Cage, Sean Connery og Ed Harris aldrei. Hún er KLIKKUÐ, lokaatriðið lætur mig alltaf fá gæsahúð.
svona myndir eru ekki gerðar lengur.
Hrein Snilld
★★★★★
Þetta er uppáhalds spennu/hasarmyndin mín. Önnur mynd Michael Bay ( Bad Boys myndirnar, Transformers myndirnar) og hans besta. Í myndinni leika Nicolas Cage (National Treasure myndirar, Ghost Rid…
Þetta er uppáhalds spennu/hasarmyndin mín. Önnur mynd Michael Bay ( Bad Boys myndirnar, Transformers myndirnar) og hans besta. Í myndinni leika Nicolas Cage (National Treasure myndirar, Ghost Rider) kemur á óvart sem hinn óöruggi Stanley Goodspeed. Sean Connery (Dr. No, Goldfinger) leikur Mason sem er mjög hardcore maður sem var í fangelsi. Ed Harris (Apollo 13, The Truman Show) var mjög slappur sem hryðjuverkamaðurinn Hummel.
Þessi mynd er bara góð
Quote:
Mason: I'm fed up saving your ass. I'm amazed you ever got past puberty.
Topp klassa spennumynd um Hryðjuverkamenn sem yfirtaka fangelsið Acatras sem er staðsett á Klettinum(The Rock). Hryðjuverkamaðurinn(Ed Harris) er fyrrverandi hershöfðingi úr Vietnam stríðin…
Topp klassa spennumynd um Hryðjuverkamenn sem yfirtaka fangelsið Acatras sem er staðsett á Klettinum(The Rock). Hryðjuverkamaðurinn(Ed Harris) er fyrrverandi hershöfðingi úr Vietnam stríðinu og berst fyrir málstað félaga hans sem létu lífið í stríðinu. Hann ásamt nokkrum mjög vel þjálfuðum hermönnum haf hótað að skjóta Borgina San Fransisco með baneitruðum sprengjum ef hann fær ekki væna summu af peningum til að láta fjölskyldu þeirra látnu fá. Stanley Goodspeed(Nicholas Cage) er efnavopnafræðingur hjá Leyniþjónustunni og er að reyna taka lífinu rólega þangað til hann fréttir af hrypjuverkamönnunum. Stanley er ekki þjálfaður til að drepa eins og hermennirnir en hann hefur gáfurnar. John Mason(Sean Connery) var fangi á alcatras áður en fangelsinu var lokað og er eini fanginn sem hefur strokið frá því. Leyniþjónustan hefur uppi á Mason og þeir fá hann í lið með sér.Þeir ætla að brjótast inn á eyjunna og aftengja sprengjunnar og þarf Mason að sína þeim leiðinna. Útkoman er Stórkostleg spennumynd sem fær hárinn til að rísa. Framúrskarandi leikur hjá þeim þremur aðaaleikurunum Cage,Connery og Harris og leikstjórinn Michael Bay tókst frábærlega með þessa mynd og mæli ég eindregið með henni. Besta spennumynd sem ég hef séð.
Sannkölluð klassík. Segir í stuttu máli frá vandamálum alríkislögreglunnar þegar hópur af landgönguliðum hertekur Alcatraz fangelsið ásamt nokkrum tugum gísla. Sean Connery leikur fyrr…
Sannkölluð klassík. Segir í stuttu máli frá vandamálum alríkislögreglunnar þegar hópur af landgönguliðum hertekur Alcatraz fangelsið ásamt nokkrum tugum gísla. Sean Connery leikur fyrrverandi fanga sem eitt sinn flúði frá ,,klettinum´´ og stendur sig þokkalega þrátt fyrir að hann lét klippa sig skömmu eftir að hann var kynntur til sögunnar. Ég hefði viljað sjá hann síðhærðan út alla myndina. Nicolas Cage er einnig góður sem efnafræðingur nokkur og svo fáum við að sjá nokkra skemmtilega aukaleikara(Michael Biehn William Forsythe). Ed Harris er reyndar hálf slappur ekki alveg nógu sannfærandi sem vondi kallinn alltof....indæll. The Rock er nú ekkert meistaraverk en það má horfa þessa þriggja stjörnu mynd reglulega.
Nokkuð góð mynd eftir Michael Bay (Armageddon,Bad Boys) og framleiðandanum Jerry Bruckheimer (Gone in 60 Seconds,Con air)
Nicholas Cage leikur leyniþjónustumann sem þarf að stöðva brjálæðing sem hótar Bandaríkjamönnum með banvænu efni. Þessi mynd kom mér mjög á óvart ,miðað við allar vondu hlutina sem ég var búin að heyra um hana. Sjáið þessa !
Nicholas Cage var upp á sitt besta á þessum tíma, 3 stórgóðar myndir komu út á stuttum tíma og urðu að algjöru meistaraverki.
Stanley Goodspeed(Cage) er venjulegur lífeðlisefnavopnaf…
Nicholas Cage var upp á sitt besta á þessum tíma, 3 stórgóðar myndir komu út á stuttum tíma og urðu að algjöru meistaraverki.
Stanley Goodspeed(Cage) er venjulegur lífeðlisefnavopnafræðingur eða eikkað í þá áttina, og vinnur við stórhættuleg efni, og þarf cia á honum að halda eftir að brjálæðingar ráðast á the rock sem er gamalt fangelsi sem er orðið að túristabæli, þeir taka 81 manns í gíslingu og hóta að sprengja upp san francisco með gífurlega hættulegu efni, cia fær fangann John Mason(Sean Connery) til að hjálpa sér að komast inn með sérsveit inní fangelsið óséðir en hann er eini maður sem hefuru sloppið útúr fangelsinu, mörgum árum áður, upp hefst hrikaleg spenna og mikill hasar og ein besta spennumynd síðari ára, mæli með henni fyrir alla sem leita sér af spennu.
The Rock er ein af þeim fáu myndum sem Michael Bay hefur gert sem eru frammúrskarandi algjör snilld (líka bad boys). Snilldar kvikmyndartaka, mjög vel unnið hljóð, karaktervinnslan í handrit…
The Rock er ein af þeim fáu myndum sem Michael Bay hefur gert sem eru frammúrskarandi algjör snilld (líka bad boys). Snilldar kvikmyndartaka, mjög vel unnið hljóð, karaktervinnslan í handritinu er frábær, dæmi: Maður fynnur til með John Mason vegna vistarinnar og skilur þörfina til að fara, Maður skilur málstað Gen.Hummel (þýðir ekki að maður styðji hann) Wolmack; algjör asni en skilur gerðir hans. Goodspeed; langar að að vera með konuni en samt vera maður með mönnum meðal FBI, þessir allir karakterar geta réttlætt gerðir sínar þannig að maður skilur það. Michael Bay má líka eiga heiðurinn af góðu leikaravali, eins og Sir Thomas Sean Connery, Nicholas (Kim Coppola) Cage, Ed(ward Allen) Harris,síðan minni hlutverk en góðir leikarar: Phillip Baker Hall, Bokeem Woodbine, William Forsythe,Michael Biehn, John C. McGinley,David Morse, Danny Nucci, og Raymond Cruz.
Þetta er besta spennumynd sem ég veit um með rosalegum leikurum og spennandi hasar og músíkin er frábær. Myndin byrjar með Gen. Hummel sem stelur helling af V-H poison gas eða eitruðun efni…
Þetta er besta spennumynd sem ég veit um með rosalegum leikurum og spennandi hasar og músíkin er frábær. Myndin byrjar með Gen. Hummel sem stelur helling af V-H poison gas eða eitruðun efni og taka eyjuna Alcatraz þar sem gamalt fangelsi var. Hummel krefst að þeir fái 80 milljón dali og að ein milljón fari til allra fjölskyldu mannana sem dóu undir stjórn hans eða hann skýtur eitrinu með flaugum beint í San Fransisco. Þá kemur ríkisstjórnin í spilið og þá er hann Goodspeed beðinn að taka að sér verkefnið að taka eitrið í sundur. Og maðurinn James Mason fyrrverandi útsendari Breska konungdæmsins sem hefur verið í fangelsi í þrjátíu ár fyrir að stela leynigögn frá Bandarísku ríkisstjórninni. Nú verða þeir að bjarga San Fransisco. frábær leikur og góð' skemmtun í þessari mynd.
Frábær saga, flottur hasar, skemmtilegir leikarar, góður endir, gott illmenni. The Rock er bara frábær í alla staði og ég hef mælt með henni síðan ég sá hana fyrst. Nicholas Cage er tö…
Frábær saga, flottur hasar, skemmtilegir leikarar, góður endir, gott illmenni. The Rock er bara frábær í alla staði og ég hef mælt með henni síðan ég sá hana fyrst. Nicholas Cage er töffari myndarinnar. Sean Connery er AÐALtöffari myndarinnar(sjá einnig Entrapment). Allar hans myndir eru góðar, nema kannski Avengers, sem var SKÍTsæmileg. Ekki missa af þessari.
Þetta er hasarmynd sem heldur manni spenntum allan tímann. Sean Connery og Nicholas Cage eru fínir þótt maður hafi nú séð þá betri. Sean Connery leikur glæpamann en Nicholas Cage lögreglu…
Þetta er hasarmynd sem heldur manni spenntum allan tímann. Sean Connery og Nicholas Cage eru fínir þótt maður hafi nú séð þá betri. Sean Connery leikur glæpamann en Nicholas Cage lögreglumann. Fín mynd sem kemur á óvart.
Virkilega þreytt hasarmynd þar sem glóran víkur með öllu fyrir átökunum. Sean Connery, Ed Harris og Nicholas Cage eru allir úrvalsleikarar, en engum þeirra tekst að bjarga myndinni fyrir ho…
Virkilega þreytt hasarmynd þar sem glóran víkur með öllu fyrir átökunum. Sean Connery, Ed Harris og Nicholas Cage eru allir úrvalsleikarar, en engum þeirra tekst að bjarga myndinni fyrir horn sökum lélegs handrits, vondrar myndatöku og slæmrar stjórnar. Að þetta skuli vera besta mynd Michael Bays til þessa sýnir aðeins, að hann ætti að fá sér aðra vinnu sem fyrst, en það var einmitt hann, sem gerði kalkúninn Armageddon.
Alveg þokkaleg spennumynd þó ekki sé raunsæið flæðandi yfir bakka hennar. Connery er að sjálfsögðu manna flottastur eins og ætíð, þó illa skrifað hlutverkið bjóði ekki uppá mikið. Skortur á handriti er þó að einhverju magni bættur upp með stórfínum leikurum og yfirdrifnum byssubardögum. Fín sunnudagsþynnkuræma, en leikstjórinn ætti að snúa sér að einhverju öðru.