Íbúar smábæjar í Texas lenda í farsótt sem afmyndar það og breytir því að lokum í blóðþyrsta uppvakninga. Harðjaxlinn El Ray (Freddy Rodriguez) og dansmærin Cherry (Rose McGowan) snúa bökum saman og leggja á flótta undan brjálæðinu.
Eins og flestir vita þá er þetta fyrri helmingurinn af Grindhouse verkefni Robert Rodriguez og Quentin Tarantino. Seinni hlutinn var hin frábæra Death Proof. Planet Terror er afbrigði af zombie …
Eins og flestir vita þá er þetta fyrri helmingurinn af Grindhouse verkefni Robert Rodriguez og Quentin Tarantino. Seinni hlutinn var hin frábæra Death Proof. Planet Terror er afbrigði af zombie mynd. Það losnar úr læðingi efnavopn með æðislega ógeðslegum afleyðingum. Rodriguez gerði myndina eins blóðuga og hann mögulega gat og allri lógík er hent út um gluggann. Þessar tvæ myndir eru í raun tribute myndir til tíma B myndanna. Þær eiga fyrst og fremst að vera skemmtilegar og það tekst fullkomlega. Snilldar mynd.
Robert Rodriguez er smám saman að verða einn uppáhalds leikstjórinn minn. Hann gerir myndir sem hann langar að sjá og fyrir vikið verða þær betri. Hann gerir líka með besta aukaefni á dvd sem fyrirfinnst. Mæli með: Sin City, Once Upon A Time In Mexico, El Mariachi, From Dusk Till Dawn.
Planet Terror er stórgóð mynd frá Robert Rodriguez og segir í stuttu máli frá því þegar kjarnorkudeild hersins hleypir gasi í loftið sem gerir fólk að zombíum. Myndin einblínir á smá…
Planet Terror er stórgóð mynd frá Robert Rodriguez og segir í stuttu máli frá því þegar kjarnorkudeild hersins hleypir gasi í loftið sem gerir fólk að zombíum. Myndin einblínir á smábæ í Texas og greinir frá viðbrögðum innfæddra við þessum ófögnuði. Leikurinn í Planet Terror er með ágætum, Freddy Rodriguez er svalur sem útlaginn El Wray og Rose McGowan er í athyglisverðu hlutverki sem hin einfætta nektardansmær Cherry og Josh Brolin leikur skapilla lækninn Block og satt að segja stendur hann sig betur en mætti halda. Hann gerir Block að kvikindi sem maður kann vel við. Michael Biehn alltaf góður og leikur lögreglustjórann og svo eru það Bruce Willis, Quentin Tarantino og fleiri í smærri hlutverkum. Leikstjórnin frá Robert Rodriguez er betri en frá Tarantino í Death Proof og er þessi mynd Planet Terror hress zombíumynd sem auðveldlega er hægt að hafa gaman af en einhvernveginn ekki eins mögnuð og hún hefði getað orðið. Skemmtileg flipp mynd en ekkert meira. Þrjár stjörnur.
Planet Terror er Grindhouse mynd í smiðju Robert Rodriques og var ég vel búinn að ýmimda mér hvernig hann myndi gera úr þessu verkefni hans og Quentin Tarantino og get ég sagt að ég var fy…
Planet Terror er Grindhouse mynd í smiðju Robert Rodriques og var ég vel búinn að ýmimda mér hvernig hann myndi gera úr þessu verkefni hans og Quentin Tarantino og get ég sagt að ég var fyrir alls engum vondbrigðum, það svoleiðis skín stíll Rodriques í gegnum þessa mynd, og var ég algjörlega að bíða eftir virkilega blóðugum og heilalausum splatter, sem fer ekki mikið út í neinar tilfeningar nema bara til að gera þær hallarislegar og já hálf kjánalegar. Þetta er svo ekta B klassa mynd, það er að segja útlitlega séð. Grindhouse skín í gegnum hana. Eina sem ég get kanski smá sett út á myndina var að hann gerði stundum aðeins of mikið í því að sýna ónítar filmur og því um líkt,en það var nú samt bara töff. Myndin var alveg ótrúlega blóðug, drepið fullt af fólki sem var bara geggjað. Var samt á tímabili mikið að bíða eftir einhverju svipuðu atriði og slátturvélar atriðinu í Braindead, voru sum svona næstum því jafn góð og það atriði. Allavega myndin var alveg frábær, og mæli ég með að allir sannir splatter aðdáendur skelli sér á þessa, verðið alls ekki fyrir vondbrigðum.
Robert Rodriguez er kannski ekki sterkur penni, en er þrátt fyrir það meira en örlítið hæfileikaríkur og hefur hann margoft sýnt að hann kunni að bjóða upp á fyrsta flokks afþreyingarb…
Robert Rodriguez er kannski ekki sterkur penni, en er þrátt fyrir það meira en örlítið hæfileikaríkur og hefur hann margoft sýnt að hann kunni að bjóða upp á fyrsta flokks afþreyingarbíó þar sem ekkert annað en yfirdrifinn stíll, hröð atburðarás og heil áskrift af ofbeldi ræður ríkjum. Ég er á móti skiptingu Grindhouse-myndanna, og hefði ég – rétt eins og margir gerðu vestanhafs – gjarnan viljað sjá myndirnar frekar í styttra formi, kramdar saman í double feature-pakka. Eftir að hafa séð þær báðar stakar, þá finnst mér öruggt að Planet Terror sé öflugri myndin. Hún eyðir engu púðri í tilgangslausa uppbyggingu eða langdregin samtöl eins og Death Proof gerði, heldur er markmið ræmunnar bara það að vera eins mikill B-mynda "exploitation" rússíbani og mögulegt er, og næstum því allt sem að gerist á skjánum fer langar leiðir yfir strikið. Myndin er allsvakaleg stundum í ógeði sínu, og allan tímann er hún eitthvað svo kjánaleg, en það er nákvæmlega það sem gerir hana að einhverri bestu mynd sinnar tegundar sem ég hef lengi séð. Myndin er sömuleiðis óborganlega fyndin, og sést að Rodriguez sé e.t.v. farinn að hafa meiri húmor fyrir hrottaskap heldur en jafnvel Tarantino. En ólíkt Death Proof, þá þjáist þessi mynd ekki eins mikið fyrir það að vera hátt í tveir tímar á lengd, og er langtum meira innihald í atburðarásinni í Planet Terror. Myndin ætti samt alveg að geta gengið álíka vel upp, ef ekki mun betur, í styttri útgáfu og það er einmitt ástæðan af hverju mér þykir nokkuð fúlt að Grindhouse-heildin hafi ekki verið dreifð til okkar. Planet Terror virkar samt rosalega vel sem einstæð heild, og smellir hún vel á feril leikstjórans. Einnig fær myndin afar sérstæðan plús fyrir gott leikaraúrval. Fyrir utan hugsanlega Bruce Willis í litlu aukahlutverki þá er lítið um stjörnunöfn, en hér finnast samt gamlir harðjaxlar á borð við Michael Biehn (sem er eflaust þekktastur úr Aliens og fyrstu Terminator), Tom Savini (B-mynda goðið) og Josh Brolin. Freddy Rodriguez og Rose McGowan eru síðan alveg merkilega töff saman í aðalhlutverkunum, og bara upp á gamanið er fínt að sjá Carlos Gallardo aftur að gera eitthvað af viti, en hann fór með aðalhlutverkið í fyrstu mynd Rodriguez, El Mariachi. Það ætti kannski að vera ráðlagt að vara viðkvæmum sálum við öllu ógeðinu sem sést hér á skjánum, jafnvel þó svo að þessi over-the-top hrottaskapur sé partur af góðu gríni. Myndin fær allavega dúndur meðmæli hjá mér fyrir að vera það sem hún er: heiladauð, yfirdrifin splatter-afþreying sem setur sér engar reglur! Hún er tilvalin kvöldskemmtun fyrir alla sem kunna að meta svona bíó. 8/10
Perluvinirnir Robert Rodriguez og Quentin Tarantino heiðra minningu b-mynda 8. og 9. áratugarins með því að gera Death Proof (Tarantino) og Planet Terror (Rodriguez). Ég hef ekki séð Death Pr…
Perluvinirnir Robert Rodriguez og Quentin Tarantino heiðra minningu b-mynda 8. og 9. áratugarins með því að gera Death Proof (Tarantino) og Planet Terror (Rodriguez). Ég hef ekki séð Death Proof og því snýst þessi umfjöllun eingöngu um Planet Terror.
Í stuttu máli fjallar myndin um eiturefnaslys hjá hernum. Þessi eiturefni gera það að verkum að þeir sem komast í snertingu við þau breytast í einhverskonar uppvakninga eða hálfgerð skrímsli. Fjölmargir komast í snertingu við þessi eiturefni og þeir sem sleppa við það þurfa að passa sig á því að verða ekki fyrir þessum uppvakningum því þeir eiga það til að éta fólk, nú eða bíta frá sér og þá breytist sá sem var bitinn í svona uppvakning.
Það er nóg af blóði í þessari mynd og því er rétt að benda viðkæmum á að fara á eitthvað annað í bíó. Stíll myndarinnar er í anda b-myndanna. Myndin er oft óskýr, hljóð og klippingar eru meingallaðar. En það er markmiðið, þ.e.a.s. að fanga stemmninguna eins og hún var í b-myndum 8. og 9. áratugarins þar sem markmiðið var ekki að gera góða mynd heldur að gera mynd sem tók ekki langan tíma að framleiða og hafa nógu mikið af hasar, blóði og kynlífi svo að fólk borgaði sig inn á myndina.
Þó það sé nóg af hasar og blóði og öllu því þá er myndin einfaldlega ekki nógu góð. Húmorinn er ekki nógu beittur og þessar endurtekningar voru orðnar helst til of þreyttar. Handritsgerð hefur aldrei verið sterkasta hlið Rodriguez og það sést klárlega í þessari mynd.
Leikararnir standa sig þokkalega. Nafn Bruce Willis er á plakatinu en hann er í aukahlutverki í þessari mynd.
Heilt yfir er Planet Terror þokkaleg en auðgleymd skemmtun.
Er ég hér að fjalla um enga aðra en Planet Terror þar sem ég fjalla um Death proof annað staðar.
Planet Terror er Grindhouse mynd í smiðju Robert Rodriques og var ég vel búinn að ými…
Er ég hér að fjalla um enga aðra en Planet Terror þar sem ég fjalla um Death proof annað staðar.
Planet Terror er Grindhouse mynd í smiðju Robert Rodriques og var ég vel búinn að ýmimda mér hvernig hann myndi gera úr þessu verkefni hans og Quentin Tarantino og get ég sagt að ég var fyrir alls engum vondbrigðum, það svoleiðis skín stíll Rodriques í gegnum þessa mynd, og var ég algjörlega að bíða eftir virkilega blóðugum og heilalausum splatter, sem fer ekki mikið út í neinar tilfeningar nema bara til að gera þær hallarislegar og já hálf kjánalegar.
Þetta er svo ekta B klassa mynd, það er að segja útlitlega séð. Grindhouse skín í gegnum hana. Eina sem ég get kanski smá sett út á myndina var að hann gerði stundum aðeins of mikið í því að sýna ónítar filmur og því um líkt,en það var nú samt bara töff.
Myndin var alveg ótrúlega blóðug, drepið fullt af fólki sem var bara geggjað. Var samt á tímabili mikið að bíða eftir einhverju svipuðu atriði og slátturvélar atriðinu í Braindead, voru sum svona næstum því jafn góð og það atriði.
Allavega myndin var alveg frábær, og mæli ég með að allir sannir splatter aðdáendur skelli sér á þessa, verðið alls ekki fyrir vondbrigðum.
Planet Terror er virkilega blóðug slatter mynd. Þetta er virkilega, virkilega ekki fyrir viðkvæmar sálir. Hér sjáum við fólk rifið í tætlur í bókstaflegri merkingu, sprengt, skotið, ar…
Planet Terror er virkilega blóðug slatter mynd. Þetta er virkilega, virkilega ekki fyrir viðkvæmar sálir. Hér sjáum við fólk rifið í tætlur í bókstaflegri merkingu, sprengt, skotið, armar, hausar, hendur, hauslausir búkar, ásamt virkilega miklu magni af blóði tætist til og frá. En, þessi lýsing gæti gefið til kynna að þessi mynd sé eitthvað 'braindead,' en svo er ekki. Að vísu er best að pæla ekki of sterk í grunnástæðunni fyrir að allt byrjar að fara til andskotans fljótlega eftir að 5 mínútur eru búnar af myndinni, en einhvert leynilegt tilraunaprógram á vegum hersins hefur farið ílla og virkilegt mega 'pestilence' fer að dreifast í allar áttir sem umbreytir fólki í einhverskonar skrímsli sem engu eyra. En ef við ímyndum okkur slíkt mjög svo ólíklegt ástand, þá virkilega þyrfti fólk að taka á stóra sínum og berjast fyrir lífi sínu. Það gera söguhetjur vorar, á meðan búkar springa, blóð flítur, fljúga allskonar misfyndnar, sumar mjög svo, kaldhæðnar athugasemdir. Það er líka raunveruleg persónusköpun á ferðinni, ekki þannig að einhver hætta sé á kvikmynda verðlaunum, en persónurnar eru ekki nærri því eins flatar og oft vill brenna við í slíkum myndum. Aksjónin er stílfærð og þannig séð falleg ásýndar, tja ef menn komast yfir það hvað það er sem menn eru að horfa á, og keyrslan virkilega stoppar ekki allt til enda. Á vissan hátt er þessi mynd, og mynd Tarantinos 'Deathproof' andstæður, þ.e. miklu rólegri framvinda, mikið lagt í samtöl, við kynnumst söguhetjunum betur, lítið sést af blóði. En á sinn hátt, kemst þessi mynd mjög nærri því að vera eins góð. Langbesta slatter mynd sem ég hef séð í langan tíma.
Ég hef þegar skrifað um Death Proof kaflann á Grindhouse og skrifa hér aðeins um Planet Terror kaflann. Í Planet Terror er nóg af mannáti, blóði og líkamsvessum og einnig þá uppgötvar …
Ég hef þegar skrifað um Death Proof kaflann á Grindhouse og skrifa hér aðeins um Planet Terror kaflann. Í Planet Terror er nóg af mannáti, blóði og líkamsvessum og einnig þá uppgötvar myndin nýja hluti í mannslíkamanum sem enginn vissi um áður þar sem grafið er eins djúpt í mennska líkamann og mögulegt er. Þetta er eðal splatter/exploitation kvikmynd sem fullnægir allar þær kröfur sem þannig gerð kvikmynda eiga sér en burtséð frá því, þá er ekkert annað þarna. Myndin er mjög fyndin og virkilega viðbjóðsleg, mjög vönduð og vel gerð með margar sniðugar og skemmtilegar hugmyndir. Hinsvegar eins og langflestar kvikmyndir líkar Planet Terror þá verða þær að svo miklu kjaftæði að það er ekki hægt að segja að kvikmyndin sé góð. Mér fannst myndin ekki spennandi, mér var drullusama um persónurnar, það eina sem virtist skipta máli var ofbeldið og húmorinn, sem er mjög fínt. Það kemur þó að þeim að þú óskar þess að eitthvað annað sé myndinni til þess að gefa kvikmyndinni einhverskonar kjarna. Allavega var leikaraliðið frábært, ekki endilega snilldar leikarar en margir sem léku vel í kvikmyndinni, Rose McGowan, Freddy Rodriguez, Tom Savini, Michael Parks, Josh Brolin og Nicky Katt og einnig gaman að sjá Michael Biehn aftur í bíóhúsi. Ég hef varla neitt meira að segja um Planet Terror, ég myndi þó segja að Death Proof kaflinn sé betri en Planet Terror, flestir gætu þó vel verið ósammála mér í því máli.