Náðu í appið
The Informers

The Informers (2008)

1 klst 38 mín2008

The Informers er marglaga saga sem gerist á fyrstu árum níunda áratugarins í Los Angeles, en glamúrlífið þar var engu minna heillandi fyrir utanaðkomandi en það er í dag.

Rotten Tomatoes13%
Metacritic20
Deila:
The Informers - Stikla
16 áraBönnuð innan 16 ára
Ástæða:KynlífKynlífBlótsyrðiBlótsyrði

Söguþráður

The Informers er marglaga saga sem gerist á fyrstu árum níunda áratugarins í Los Angeles, en glamúrlífið þar var engu minna heillandi fyrir utanaðkomandi en það er í dag. Fyrir þá sem búa þar er glansmyndin þó ekki jafn hrein. Graham Sloan (Jon Foster) er ungur maður á uppleið. Hann er sonur kvikmyndaframleiðandans William (Billy Bob Thornton) og pillufíkilsins Lauru (Kim Basinger), en þau eru skilin og samband þeirra í dag er vægast sagt grýtt. William reynir þó að bæta úr hlutunum á meðan hann heldur við fréttakonuna Cheryl Laine (Winona Ryder). Laura er á sama tíma í ástarsambandi við góðan vin sonarins, Marin (Austin Nichols). Á meðan á öllu þessu stendur sekkur Graham sjálfur stöðugt dýpra ofan í hringiðu veisluhalda, eiturlyfjaneyslu og –sölu og glæpastarfsemi, sem á eftir að koma niður á honum ef hann passar sig ekki.

Aðalleikarar

Höfundar og leikstjórar

Joseph Scoren
Joseph ScorenHandritshöfundur

Aðrar myndir eftir sama leikstjóra

Gagnrýni notenda

Engar gagnrýnir ennþá. Vertu fyrstur til að skrifa gagnrýni!

Framleiðendur

Senator EntertainmentUS