Vel leikin og gerð mynd
★★★★☆
The Reader er byggð á samnefndri bók sem varð mjög vinsæl þegar hún var gefin út. Myndin fjallar um 15 ára strák, Michael Berg og ástarsamband hans við mun eldri konu, Hönnu Schmitz. Mic…
The Reader er byggð á samnefndri bók sem varð mjög vinsæl þegar hún var gefin út. Myndin fjallar um 15 ára strák, Michael Berg og ástarsamband hans við mun eldri konu, Hönnu Schmitz. Michael verður skyndilega veikur úti á götu og sér Hanna þetta gerast og hjálpar honum.
Eftir að hafa legið í rúminu í nokkra mánuði og náð aftur góðri heilsu sendir mamma Michael hann til Hönnu með blómvönd til að þakka honum fyrir. Þá elskast þau í fyrsta sinn og eftir það les hann fyrir hana úr bókum sínum, það er upphafið að löngu og dramatísku lestrar og ástarsambandi. Hönnu er boðin stöðuhækkun úr vinnunni sinni sem miðaklippari í sporvagni og þegar það gerist hverfur hún skyndilega og kveður Michael ekki. Eftir það fer Michael í lögfræðinám og er að læra á réttarkerfið þegar Hanna er sakfelld út af þáttöku í gyðingapyntingum í seinni heimsstyrjöldinni. Michael einn veit leyndarmál Hönnu sem gæti bjargað henni úr fangelsi og þá er spurningin hvernig hann vinnur úr því.
Mér fannst myndin áhugaverð og var leikur Kate Winslet allra verðlaunanna sem hún hlaut virði. Myndin er vel gerð en fer það virkilega í taugarnar á mér í þessari mynd eins og öðrum, þegar sagan á að gerast í landi eins og til dæmis Þýskalandi og þá tala allir ensku með þýskum hreim þar á meðal Kate Winslet sem hljómaði hálf kjánalega með þessum hreim sínum. Annars var þetta mynd sem var þess virði að sjá.