Avatar gerist í framtíðinni og segir frá fyrrum hermanninum Jake Sully sem lamaðist í bardaga á Jörðinni og er bundinn við hjólastól. Er hann sendur út í geim til að taka þátt í Avatar-verkefninu á fjarlægri plánetu sem heitir Pandora. Er það undurfögur, skógi vaxin pláneta sem býr yfir miklu magni af verðmætum málmi. Er ætlun jarðarbúa að nýta þær auðlindir sem þar eru og græða óheyrilega í leiðinni. Hins vegar stendur eitt vandamál í vegi fyrir þeim: þeir sem búa þar. Á Pandoru býr ættbálkur vera sem líkjast manninum í útliti og nefnast Na‘vi. Eru þær taldar frumstæðari en mannfólkið, þrátt fyrir að vera með líkamlega yfirburði. Na‘vi búa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt og vilja alls ekki flytja sig um set svo mannfólkið geti nýtt málmana sem leynast undir heimkynnum þeirra. Því er Jake fenginn til að taka þátt í verkefni þar sem líkami hans er sameinaður líkama Na‘vi og hann sendur til plánetunnar sem svokallaður Avatar til að njósna fyrir hermennina sem eru að undirbúa árás á frumbyggjana. Þegar Jake kynnist og verður ástfanginn af hinni fallegu Na‘vi-prinsessu Neytiri flækist leikurinn og hann þarf að ákveða hvoru megin víglínunnar hann ætlar að standa.
Þegar ég sá þessa myndi í bíó þá fannst mér hún geðvek, en síðan fór ég að hugsa um hana og fattaði að hún er bara með tæknibrellur og lítið meira, ég horfði á hana aftur og…
Þegar ég sá þessa myndi í bíó þá fannst mér hún geðvek, en síðan fór ég að hugsa um hana og fattaði að hún er bara með tæknibrellur og lítið meira, ég horfði á hana aftur og já, þetta var rétt, mér hálfvegin leiddist.
Leikararnir eru flestir mjög góðir og ná að vinna mjög vel með handritið sem var alveg fínt.
Þessi mynd er með frábærar tæknibrellur, góða leikara en lítið meira.
6/10
Ár er liðið frá að Avatar var gefin út í kvikmyndahús þar til að þessi umfjöllun er skrifuð. Mín fyrstu viðbrögð á myndinni á þeim tíma voru blendin, ég var sammála þeim sem fa…
Ár er liðið frá að Avatar var gefin út í kvikmyndahús þar til að þessi umfjöllun er skrifuð. Mín fyrstu viðbrögð á myndinni á þeim tíma voru blendin, ég var sammála þeim sem fannst myndin vera tæknilega vel gerð og "byltingarkennd" í tæknivinnslu. Ég var hinsvegar einnig sammála þeim sem fannst sagan vera ófrumleg og löt, en niðurstaðan mín var sú að hér væri á ferð býsna fín kvikmynd. Það er erfitt að finna byrjunarreit til að gagnrýna þessa mynd, það er einfaldlega of mikið til að skrifa um.
Avatar byggist á sjónbrellum, nánast að því leiti að myndin gæti talist tölvuleikur frekar en kvikmynd. Brellurnar eru góðar, í bland við þrívíddina er þetta sjónræn upplifun. En sama hve flott Avatar gæti talist, þá hefur hún lítið sem ekkert til að halda sér gangandi fyrir utan brellur. Sumir telja söguna ófrumlega, aðrir telja hana klassíska. Það er augljóst að James Cameron var ekki að miða á að gera frumlega sögu, en þetta finnst mér fáranlegt. Pocahontas, Dances With Wolves og The Last Samurai eru fá dæmi um þessa sögu nema þær myndir framkvæmdu þá sögu mun betur.
Avatar drukknar hægt og rólega í sínum eigin klisjum og ég fór að fyrirsjá hvert einasta atriði í réttri röð á seinasta klukkutímanum. Þá fer sagan á sjálfsstýringu og fremur sjálfsmorð, það er eiginlega ekki hægt að neita þeirri staðreynd að Avatar hefur slæman endi. Þegar sagan er svona ófrumleg og persónurnar það einhliða þá virðast allar þessar brellur einkis virði, því það þarf eitthvað jafnvægi þarna á milli til þess að skapa sterka kvikmynd. Þarf bara smá meiri þroska til þess að gera jafnvægið þarna á milli þolanlegt til að skapa ásættanlega niðurstöðu. Því það eru punktar í myndinni sem eru líkt og ungabarn hafi skrifað myndina, t.d "Unobtainium" eða þessi helvítis fljúgandi fjöll sem af einhverjum ástæðum hafa fossa. Hvaðan kemur vatnið? Allavega, Avatar er troðfull af litlum hlutum sem standast ekki rök og mér fannst það mjög truflandi.Það sem James Cameron gerði vel var að skapa furðulegt umhverfi, frumskógar Pandoru eru sérstakir og ég fílaði ímyndinunaraflið bakvið það. Heimurinn sem Avatar er staðsettur í er áhugaverður, sérstaklega eftir að hafa séð lengri útgáfuna þar sem við sjáum hvernig Jörðin er orðin árið 2148.
Aðalpersónan Jake Sully er þungamiðjan, hann er hinn dæmigerði "America Boy" en mér fannst Sam Worthington leika hann rétt. Hann hefur fengið gagnrýni útaf hreimnum sínum og fyrir að vera stífur en ég sé ekki alveg hvernig það er réttlát skoðun. Worthington náði að leiðbeina mér gegnum myndina þar sem hans viðbrögð gagnvart heimi Pandoru voru ekki einungis raunveruleg heldur líkt mínum eigin. Svo í stuttu máli þá náði ég að seta mig í spor Jake Sully og ég gef Worthington hrós fyrir að geta það miðað við handritið sem ég tel vera frekar veikt. Ég get þó ekki gefið Zoe Saldana mikið hrós, sú leikkona virðist vera nýtt uppáhald stórmynda uppá síðkastið og ég hef ennþá ekki séð hana sýna neitt sem ég myndi kalla leikhæfileika. Persóna hennar í Avatar var þurr, tilgerðarleg og næstum leiðinleg, sem er eiginlega James Cameron að kenna. Ég segi ekki að Zoe Saldana sé slæm leikkona, hún á þó eftir að sanna sig sem leikkona þess verðug að vera í svona dýrum stórmyndum á borð við Star Trek og Avatar. Hvaðan kom hún eiginlega? Það er eins og hún hafi hoppað fullvaxin úr höfði James Cameron fyrir Avatar og verið lánuð J.J. Abrams fyrir Star Trek og einhvern vegin losnað úr búrinu sínu til að leika í The Losers.
Sigourney Weaver, Stephen Lang, Michelle Rodriguez og Giovanni Ribisi reyna sitt besta en eru hvorki neitt sérstaklega góð né slæm í hlutverkum sínum. Handritið gefur þeim hvorki persónudýpt né skjátíma til að sýna sig. Undirstaðan á Avatar virðist aldrei hafa verið sagan sem Cameron vildi segja, heldur heimurinn sem hún gerist í og þar með er handritið aðallega um það að koma persónum frá A til B. Spurningin er hve vel náa brellurnar að heilla þig til þess að þú farir ekki að gagnrýna handritið, því hefðin er sú að ef handritið er ekki að standa sig þá leitar maður af öðrum kostum við myndina. Sama hverjir þeir kostir gætu verið, þá er handritið samt veikt og veikt handrit þýðir yfirleitt veik kvikmynd. Handrit Avatar, sem er klisjuorgía (hún inniheldur kylífsatriði sem er bókstaflega ljósblátt), er ekki hægt að taka með fullri alvöru.
Það hjálpaði ekki að hlusta á tónlistina hans James Horner, fyrir þá sem þekkja vel í tónlist kvikmyndaheimsins þá er James Horner yfirleitt talinn virtur stórlax. Hann gerði slatta af góðu efni fyrir 20-30 árum síðan, mikið af góðu fyrir 10-20 árum síðan. Á seinustu 10 árum hefur hann lítið gert nema endurnota sín eigin eldri stef og blanda þeim saman í þeirri von að enginn taki eftir því. í Avatar heyrast hlutar úr Aliens, Braveheart, Titanic, The Perfect Storm, Glory, Troy, Enemy at The Gates og fleiri myndum sem Horner hefur gert. Þetta truflaði mig sérstaklega, að horfa á nýja kvikmynd meðan ég heyri tónlist úr eldri myndum fær mig til að hugsa um þær myndir og ekki þá mynd sem ég er að horfa á. Heimurinn sem Avatar skapaði bauð uppá nýja gerð tónlist, en í stað þess að gera neitt sem gæti talist ferskt eða frumlegt þá kaus Cameron að taka sömu leið með tónlistina og hann gerði með handritið, hefðbundið og ófrumlegt.
Það bætir heldur ekki að Cameron tekur ástarsöguna úr Titanic og setur hana í Avatar. Ég á erfitt með að virða kvikmyndagerðamann sem leyfir sér að vera svona latur, því ég er fullviss um að Cameron hafði fulla stjórn á framleiðslunni og öllu tengt henni. Hugsunarháttur Camerons er samt skiljanlegur, hann vildi skapa örugga kvikmynd sem tekur fáar áhættur en skemmtir fólki. Þrátt fyrir alla sína galla þá er Avatar alls ekki leiðinleg, en hún er ekki kvikmynd sem ég get ekki horft á oft. Mér þykir það hinsvegar ljóst að Cameron er orðinn alltof sjálfsöruggur og ríkur til að snúa sér aftur í gamla formið, sem er skömm.
Svo hvað finnst mér um Avatar? Mér finnst hún ofmetin, barnaleg, klisjukennd og líkari tölvuleik en kvikmynd. Mér finnst hún þó einnig vera nett skemmtileg, á köflum áhugaverð og einstök tilraun í kvikmyndagerð tæknilega séð. Niðurstaðan er mjög blandaður poki.
Kámug þrívíddargleraugu
Pocahontas og Battlefiled Earth koma saman í afþreyingu sem er um margt í lagi. Þríviddargleraugun eru margnota og kámug og sjálfsagt hefði verið að þrífa þau fyrir sýningu eða láta fy…
Pocahontas og Battlefiled Earth koma saman í afþreyingu sem er um margt í lagi. Þríviddargleraugun eru margnota og kámug og sjálfsagt hefði verið að þrífa þau fyrir sýningu eða láta fylgja með tissue til að bíógestir gætu þá gert það sjálfir. Í lok myndar er fyrirheit um framhald þar sem amma viðja og Jake ,,Goodboy" Sully taka höndum saman á ný gegn vondu jarðarkapítalistunum.
Þessi mynd er vissulega eitt mesta sjónarspil sem sést hefur á bíótjaldi. Söguþráðurinn er eins og samsuða úr nokkrum Star Trek þáttum eða einhverju álíka sem Sci-Fi unnendur ættu a…
Þessi mynd er vissulega eitt mesta sjónarspil sem sést hefur á bíótjaldi. Söguþráðurinn er eins og samsuða úr nokkrum Star Trek þáttum eða einhverju álíka sem Sci-Fi unnendur ættu að kannast við úr ýmsum áttum. Þó er tengingin við nútímasamfélagið það sterk að það ætti ekki að þurfa mikið ímyndunarafl til að líka þessi mynd.
Söguþráðurinn minnir líka óneitanlega á innrás evrópubúa til ameríku og þá vanvirðingu sem átti sér stað gegn indjánum, náttúrrunni og öðrum frumbyggjum ameríku. Það má því segja að það sé ákveðinn pólitískur þráður í myndinni, fyrir þá sem vilja sjá hann. Þrátt fyrir að þessi tenging væri mér augljós fór hún alls ekki í taugarnar á mér, heldur var farið mjög skemmtilega í þetta, smá dramatík og síðan uppgjör í endan að týpískum Hollywood sið.
Þetta er rússíbanaferð sem er vel þess virði að sjá, sérstaklega í 3D. Eftirvinnslan er öll með þeim hætti að maður er ekkert að spá í að þetta sé tölvugert. Söguþráðurinn ristir ekki djúpt, en þeir fá prik fyrir að reyna.
Næst þegar grámygla hversdagsleikans þjakar mig get ég lokað augunum og ferðast í huganum til Pandóru.
Þvílíkur heimur sem Cameron hefur skapað, það liggur við að manni hafi fundis…
Næst þegar grámygla hversdagsleikans þjakar mig get ég lokað augunum og ferðast í huganum til Pandóru.
Þvílíkur heimur sem Cameron hefur skapað, það liggur við að manni hafi fundist söguþráðurinn þvælast fyrir og viljað helst bara fylgjast með daglegu lífi Na'vi veranna í þessum fallegasta heimi sem ég hef séð í kvikmynd. Ég var ekki alveg að kaupa þessar verur í auglýsingum á myndinni en eftir að sagan er komin vel af stað eru þær orðnar algjörlega sannfærandi og jafnvel kynþokkafullar líka.
Ég hefði að vísu viljað sjá eitthvað annað en hina týpísku græðgi mannkyns fléttast inn í söguþráðinn og vona bara að ef gerð verður önnur mynd í þessu umhverfi að þá verði öllu svona amerísku hernaðarbrölti sleppt. Það er af nógu að taka til að búa til frábærar sögur í þessu umhverfi á Pandóru.
Ég sá myndina í 3D og ætla aftur á hana í 3D, ekki spurning.
FOKK JÁ! Þetta er sjúk mynd! Alveg klárlega í öðru sætu yfir bestu myndir á þessu ári (basterds í fyrsta). Myndin er klárlega besta mynd Cameron ásamt T2 og hann er kominn aftur! Besta c…
FOKK JÁ! Þetta er sjúk mynd! Alveg klárlega í öðru sætu yfir bestu myndir á þessu ári (basterds í fyrsta). Myndin er klárlega besta mynd Cameron ásamt T2 og hann er kominn aftur! Besta comeback ever!
Ég ætla að segja frá söguþræðinum í stuttu máli. Myndin gerist á Pandóru, sem er pláneta, árið 2154. Jake Sully sem er nýr þar kemur þangað til þess að stjórna svokölluðum Avatar og vingast við Na'vi ættbálkinn og segja þeim að flytja úr heimilinun sínu því að undir því er mikil auðlind fyrir herinn. Hann verður ástfanginn af innfæddri og hættir við að styðja herinn og reynir að verja Na'vi(ana).
Myndin er ótrúlega vel gerð og ég mæli bara með 3D þótt ég hafi ekki séð 2D en ég vil ekki sjá þá útgáfu þótt hún sé líka frábær en það er skemmtilt að sjá hana í þrívídd og geðveik skemmtun. Myndin er svo sjúklega vel gerð, hver einasti rammi er 100% vel unnin og hún er alveg Photo-Realistic eins og Cameron lofaði okkur. Eins og gott að hún floppar ekki því hún á það ekki skilið!
Sam Worthington er góður leikari og sýnir það í þessari mynd. Sigourney Weaver er ekki síðri og flestir leikarar eru mjög góðir og Stephen Lang er eitt besta illmenni sem ég hef séð lengi. Zoe Saldana er mjög góð sem bláa Na'vi(in) og ástarsaga hennar og Jake er óvenju heillandi ef ég má kvóta aðeins í Tomma. Bardagaatriðið í endann er algjörlega ótrúlegt, ekki besta síðan Return of the Kind, heldur BESTA bardagaatriði sem ég hef séð í bíómynd. Megaatriði sem endist í hálftíma.
Myndin er mjög nærri fullu húsi stiga en mér fannt einum of mikið að Na'vi fólkinu að tilbiðja nátturuguðinn sinn og dansa eitthvað og persónusköpun var ansi lítil. Nokkur samtöl voru svo aðeins klisjukennd eða smá kjánaleg.
Annars geðveik poppkornsmynd eða bara allt. Mynd sem hætt er að horfa á með öllum, fjölskyldu, vinum.
Ég labbaði spenntur inn í TROÐfullan sal í Laugarásbíó á þessu fallega föstudagskvöldi. Spenningurinn var mikill og hef ég sjaldan á ævi minni fengið meira út úr kvikmynd sem ég er …
Ég labbaði spenntur inn í TROÐfullan sal í Laugarásbíó á þessu fallega föstudagskvöldi. Spenningurinn var mikill og hef ég sjaldan á ævi minni fengið meira út úr kvikmynd sem ég er virkilega spenntur fyrir, en Avatar kemst í þann hóp(ásamt LOTR myndunum og The Dark Knight). Hún er á alla vegu fullkominn afþreying fyrir mér.
Ég vil byrja á að hrósa tæknibrellunum í myndinni en þær eru víst ný tækni í kvikmyndaheiminum. Þær eru nánast fullkomnar og gat ég engan veginn séð neinn gallla á þeim. Umhverfi plánetunnar Pandora er t.d. eitthvað það fallegasta sem ég hef séð í kvikmynd. Hönnunin á dýraríkinu sem ríkti þar var líka alveg frábær.
Leikararnir standa sig allir. Sam Worthington í aðalhlutverki er afar traustur ásamt Zoe Saldana sem leikur þessa undarlega myndarlegu geimveru. Einnig fannst mér mjög gaman að Sigourney Weaver, en hún hefur ekkert látið mikið á sér bera undanfarið. Stephen Lang fer vel með skíthæls-hlutverkið og langar mann virkilega sjá hann deyja sársaukafullum dauða.
Þó sagan í myndinni sé ekki endilega ný sér James Cameron til þess að troða í manni skemmtanagildi í staðinn og heldur manni uppteknum við eitthvað annað.
Myndin hentar líka öllum. Stelpurnar eiga eftir að dýrka ástarsöguna(örugglega sumir strákar líka, þar á meðal ég, hehe) og strákarnir fá sinn skammt af sprengingum og hasar. Allir fá síðan þessa frábæru upplifun af 3-D tækninni, glænýjum tæknibrellum og svo þessa geðveikt flottu framtíðarsýn.
Ég er hestánægður með Avatar og vill því skella á hana fullt hús. Cameron kann svo sannarlega að búa til alvöru bíóupplifun og hefur engu gleymt !
AVATAR
Vá hvar á ég að byrja?!
Held ég komi því bara strax á framfæri að þessi mynd er MUST SEE í 3D, það er ekkert um annað að ræða. Langt áður en þessi mynd kom í bí…
AVATAR
Vá hvar á ég að byrja?!
Held ég komi því bara strax á framfæri að þessi mynd er MUST SEE í 3D, það er ekkert um annað að ræða. Langt áður en þessi mynd kom í bíó ákvað ég að fara á hana með 0 væntingar því að slíkt getur skaðað og mig langaði heldur ekki að vera búinn að ákveða að hún yrði góð en viti menn hún var ekki bara góð, hún var FRÁBÆR. James Cameron hefur verið burtu í langan tíma og hann er svo sannarlega kominn aftur en jæja ég ætla að hætta að missa mig svona yfir henni og gefa henni svona mína gagnrýni.
Málið við AVATAR eru tæknibrellurnar og þrívíddin og allt það dæmi, við höfum margoft séð þennan söguþráð enda vissi maður fyrir hlé hvernig þetta myndi enda þannig að mér finnst söguþráðurinn vera að hluta til svolítil klisja því að það var spilað á öll spilin *HUGSANLEGUR SPOILER*
Þegar sagt var frá þessari flugeðlu Toruk eitthvað þá vissi maður að Jake myndi á endanum vera sá náungi, Hann svíkur mennina og gengur í lið með hinum og þannig.
*SPOILER ENDAR*
EN það þarf ekki að vera slæmt að vera með semí klisjulegan söguþráð því að það sem James Cameron gerir er að fela það með tæknibrellum sem þú átt eftir að missa þig yfir, með bardögum sem að þú gætir ekki ímyndað þér og með RUGL flottri plánetu og fullt af flottu rugli sem ég get ekki talið upp. Allir leikararnir standa sig mjög vel finnst mér og mér finnst hreint út sagt ótrúlegt hvað Sam Worthington er að næla sér í bitastæð hlutverk. Myndin er 160 mínútur en mér fannst hún lýða fáránlega hratt og ég vildi MEIRA, fyrir hlé var alveg magnað en þegar lætin fóru að byrja þá fannst mér eins og Cameron hafði sleppt einhverju, mér fannst eitthvað vanta upp á og mér fannst eins og þeir væru að drífa sig soldið í gegn og koma bardaganum strax í gang en ég hef engar efasemdir um það að það muni koma út Extended eða Director's cut útgáfa út á DVD enda ætla ég svo sannarlega að næla mér í það kvikindi.
James Cameron er hér með búinn að skapa ótrúlegan heim og persónurnar og allt í þessari mynd er ótrúlegt og mér var ekki sama um hver myndi deyja því að maður tengist persónunum og þessi mynd er MJÖG vel heppnuð.Ég verð samt að fara soldið út í persónurnar Jake Sully eða Jakesully er frábær karakter og mannlegur og mjög vel heppnaður, Neytiri er grimm og eflaust ein heitasta geimvera sem hefur verið á skjánum, en skemmtilegasti karakterinn fannst mér vera ofurstinn Quaritch hann var one BAD motherfucker og alger harðjaxl.
Ég get ekki annað gert en að gefa þessari mynd suddaleg meðmæli enda er hún frábær.
9/10 FARIÐ Á HANA Í BÍÓ Í 3D!
P.S Ég fékk gæsahúð svona 7 sinnum út alla myndina :D
þessi mynd er hreint og beint mögnuð, fyrri helmingurinn er rólegur og góður og söguþráðurinn er frábær svo eftir hlé þá ríghélt ég mér í sætið með galopinn munn 10/10 !!!
Avatar er frábær mynd eftir leikstjóran james Cameron. Avatar er næst besta mynd sem james Cameron hefur gert af mínu mati er Terminator 1 besta myndin. Avatar er MUST SEE Í 3D!!!. Flestir leika…
Avatar er frábær mynd eftir leikstjóran james Cameron. Avatar er næst besta mynd sem james Cameron hefur gert af mínu mati er Terminator 1 besta myndin. Avatar er MUST SEE Í 3D!!!. Flestir leikarar standa sig vel Sam Worthington stóð sig best og hann er rísandi stjarna í Hollywood. James Cameron hefur aldrei gert lélega mynd og hann leggur mikla vinnu í myndirnar sem hann gerir. Visual effect í myndinni er toppurinn í Avatar, Handritið er mjög gott hefði samt verið betra vantaði aðeins meira kjöt á það en samt var það mjög eins og ég hef sagt, Tónlistin er fín. Að mínu mati er þessi mynd bara bíó mynd út af því maður vill ekkert horfa á hana í 2D.
5 af 5 Besta myndin á þessu ári!!
Visual-Mind-Fuck!
Hmmmm Avatar...Vá Avatar...nei ég meina Avatar VÁÁÁÁÁÁÁÁ! Avatar er...hún bara er. Það er erfitt að lýsa hvað Avatar er , en þau þrú orð sem lýsa henni best er (á góðri og slæ…
Hmmmm Avatar...Vá Avatar...nei ég meina Avatar VÁÁÁÁÁÁÁÁ! Avatar er...hún bara er. Það er erfitt að lýsa hvað Avatar er , en þau þrú orð sem lýsa henni best er (á góðri og slæmru ensku): Visual Mind Fuck!
Cameron færir okkur eina af bestu ræmum sem ég hef séð í ár. Afþreying-Saga-Brellur- og við skulum bara segja að plánetan Pandora sé einn risa-RISA-stór nóa-konfekt moli fyrir augað.
Þegar ég fór á Avatar var ég ekki að búast við neitt svakalega miklu, ég var ekki búin að sjá neitt nema teaser trailerinn, vissi nánast ekkert um hvað hún var eða hver lék í henni, svona fyrir utan Weaver og Worthington, hunk-ið úr Terminator 4. Vissi bara að hún var búin að fá allsvakalega dóma, sem gerði mig pínu spennta. Aldrei hef ég séð 3D virka jafn vel í mynd og hún virkar í Avatar. Tæknibrellurnar eru það besta sem ég hef séð, og þar sem þær eru ekki jafn fullkomnar og raunveruleikin sjálfur skiptir það voða litlu máli því maður er algjörlega búin að lifa sig inn í þann heim sem Pandora er. Það er alveg greinilegt að Cameron og visual-effects teymið kunna að nota liti, litlirnar standa upp úr, þeir popp út af skjánum (sérstaklega í 3D). Pandora er ein stór litavíma. Og ábyggilega eitt af því fallegasta sem ég hef séð í bíó. Ég er ekki frá því að ég hafi séð Starry Night eftir Van Gogh í skýjunum á einhverjum tímapunkti í myndinni.
Kvikmyndin er auðvitað ekki gallalaus, eiginlega langt frá því. Það vantar karaktersköpun/þróun fyrir meirihluta karakterana. Þrátt fyrir að vera heldur frumleg á mörgum köflum, er söguþráðurinn voða klisjukenndur og týpískur. James Cameron nær samt heldur betur að fela það, því gallarnir slæduðu rólega framhjá mér. Hugsanlega er það flæðið á myndinni sem bætir það upp því aldrei fann ég fyrir því að myndin væri 160 mínútur (ég var frekar svekt þegar hún var búin), eða einfaldlega þeir karakterar sem fá að njóta sín - fá-að-njóta-sín. Sam Worthington hefur klárlega eitthvað í sér, þrátt fyrir að hafa verið í tyggjó-klessuni sem á víst að kallast Terminator: Salvation. Þótt hann hafi verið það besta við Terminator 4 (að mínu mati, ásamt Anton Yelnich) þá er hann mun betir í Avatar og fær svo innilega að njóta sín þar, bæði sem Jake Sully: fyrrum marinee sem er fastur í hjólastór og Jakesully (ímyndið ykkur sem-franskan hreim þegar þið berið þetta fram): Blái avatarinn sem kann sko að fljúga. Siguorney Weaver er einnig mjög góð og karakterinn hennar fær svo sannarlega 180 gráðu karakterþróun. Zoe Saldana er á uppleið og þrátt fyrir að vera nakta blá geimveran Neytiri alla myndina er hún bara helvíti góð og heillaði mig alveg upp úr skónum. Givano Ribsi á einnig skilið hrós, skíthællin sem hann var hefði nú samt mátt láta sjá sig aðeins oftar í myndinni. Stephen Lang á einnig skilið hrós, virkilega langaði mig til að taka hann úr hálslið.
Avatar er ein af þessum myndum sem er sönn Epísk kvikmynd. Hún dregur mann svo inn í framtíðar heim sinn að maður verður partur af henni. Fyrstu 90 mínuturnar af Avatar er hún hálfvegis að monta sig af tæknibrellum sínum og því sem hún hefur skapað, og má það svo sannarlega. Þegar fer að draga í lokin, sennilega sirka síðustu 50 eða 40 mínútur myndarinna byrjar það epíska, einn glæsilegasti bardagi sem ég hef séð í langan tíma. Gæsahúðin rís og fer ekki niður fyrr en að minnstakosti klukkutíma eftir að myndin er búin. Ég labbaði út úr bíósalnum í sannarlegri kvikmynda-vímu, hugsanlega með votti af litavímu og visualhigh.
Avatar er upplifun. Avatar er afþreying. Avatar er fyrir alla, bæði konur og karla. Kralmennirnir geta beðið spenntir eftir bardagasenum og nöktum bláum geimverum á meðan konurnar geta sogið í sig ástarsamband myndarinnar og Sam Worthington aka. Mr. Sjarmör. Avatar er án efa stórmynd 2009. Það ætti enginn af missa af henni í bíó (Must see 3D!), því ef það er einhver mynd sem er skilda að sjá í bíó þá er það þessi (bannað að bíða eftir DVD)!
Í framtíðinni verður James Cameron skráður sem einn allra besti og kjarkmesti "blockbuster" leikstjóri kvikmyndasögunnar. Hver einasta mynd sem hann gerir er svo miklu meira en bara bíómynd,…
Í framtíðinni verður James Cameron skráður sem einn allra besti og kjarkmesti "blockbuster" leikstjóri kvikmyndasögunnar. Hver einasta mynd sem hann gerir er svo miklu meira en bara bíómynd, hún er áskorun, og eftir að hafa tæklað þá tröllamynd sem Titanic var þá er hann loks kominn aftur heilum 12 árum síðar með sína stærstu og flóknustu mynd til þessa. Það fylgir svosem starfinu þegar maður er leikstjóri að upplifa góðan skammt af pressu, en Cameron baðar sig víst í henni. Ekki nóg með að fjármagnið (þótt orðið "peningafjall" væri meira viðeigandi) sem fór í þessa blessuðu tilraun sé nóg til að hífa upp væntingar fólks ásamt byltingarkenndu tölvuvinnslunni, heldur hefur Cameron verið að hæpa þessa mynd upp sjálfur í mörg ár og beðið með handritið í hillunni þangað til að tíminn væri réttur og tæknin hefði jafnað sköpunargleði hans. Ég held að ég hafi ekki beðið kvikmyndar með eins mikilli eftirvæntingu síðan fyrir rúmlega áratugi síðan þegar The Phantom Menace kom út... og við vitum öll hvernig það fór...Mikið djöfull er ég samt feginn að segja þetta: Cameron er kominn aftur og hefur engu gleymt!Svo það sé komið á hreint þá er Avatar ekki gallalaus mynd, og hvorki djúp né þýðingarmikil heldur. Hins vegar erum við að tala um hreinræktaða sci-fi/fantasíuafþreyingu eins og þær gerast bestar og það er sko með ólíkindum hvernig Cameron nær að hamra skemmtanagildinu ofan í mann. Myndin er spennandi, frábærlega unnin í brellum og hljóði, drekkhlaðin ímyndunarafli, litríkum persónum og stýrist af óvenju heillandi ástarsögu. Leikararnir, hvort sem þeir eru í Motion Capture-búningum eða ekki, eru allir góðir á sinn hátt. Sam Worthington var fínn í Terminator Salvation en er gífurlega traustur hérna, og Zoe Saldana er líka trúverðug sem Neytiri, sem er án efa ein heitasta geimvera sem ég hef nokkurn tímann séð í bíómynd. Ég á bágt með að trúa því að margir karlmenn eigi ekki eftir að vera með störu á brjóstin á henni.Sigourney Weaver, Michelle Rodriguez (í "Vasquez" hlutverkinu), Joel Moore og Giovanni Ribisi (Carter Burke?) gera einnig helling við aukapersónur sem hefðu léttilega getað orðið auðgleymdar. Svo er Stephen Lang eitursvalur og naglharður sem klassíska illmennið sem vinnur fyrir "vonda" fyrirtækið. Ég vildi þó að hann hefði fengið aðeins meiri skjátíma og helst meiri dýpt því ég man varla einu sinni hvað karakterinn hét. Cameron skrifar persónurnar mjög lauslega og eru þær misvel þróaðar (eitthvað sem ég er að vona að Director's Cut-útgáfa muni laga síðar) en sem betur fer heldur hann fast utan um lykilsambandið, sem er aðall sögunnar.Stærsti gallinn er aftur á móti þessi: Sagan er dálítið klisjukennd. Þrátt fyrir ferskar hugmyndir og mörg sláandi umhverfi (og trúið mér, þau eru ótrúleg!) er mikið af senum sem við könnumst við og höfum séð í einhverju formi áður. Ef við tökum t.d. bara söguþráðinn og sleppum fantasíueinkennunum þá erum við komin með beinagrindina fyrir Dances with Wolves og The Last Samurai. En þrátt fyrir það verð ég að segja að sjaldan hafa klisjur farið eins lítið í taugarnar á mér og hérna, því Cameron nær alltaf að moka yfir þær með einhverju öðru sem grípur athygli manns og skilur meira eftir sig. Það er heldur ekki eins og við höfum ekki vitað hvernig flestar myndirnar hans myndu enda, og þó svo að maður þekki sumar formúlurnar þá er alls ekki hægt að segja í orðsins fyllstu merkingu að maður hafi séð þetta allt áður.Tæknibrellurnar í þessari mynd eru óaðfinnanlegar. Þær eru kannski ekki eins "photo realistic" og Cameron lofaði okkur en á köflum eru þær ansi nálægt því. Það tekur smátíma að venjast þeim senum sem eru 100% tölvugerðar (sérstaklega þegar leikin atriði eru klippt inn á milli) en eftir það er ómögulegt að líta á geimverurnar - og þ.a.l. lykilpersónurnar - sem pixlahrúgur og fer maður að líta á þær sem alvöru persónur sem maður myndar sterk tengsl við. Ég veit ekki hvernig, en Cameron hefur alltaf verið góður í að skrifa sambönd sem hitta til manns, hvort sem um tvær bláar, hálfnaktar geimverur eru að ræða, unglinga um borð í sökkvandi skipi, vélmenni og strákling... Æ, þið skiljið mig. Brellumeistararnir hjá WETA ná samt heldur betur að trompa allt sem þeir hafa áður gert (Lord of the Rings meðaltalið) því hver einasta skepna, hvert einasta laufblað eða skip er svo vandað í smáatriðum að því verður ekki með orðum lýst. Cameron feilar heldur ekki í hasardeildinni frekar en fyrri daginn og orrusturnar í Avatar eru með þeim bestu sem ég hef séð síðan Return of the King. Allur lokaþriðjungur myndarinnar hélt mér gapandi, ef út í það er farið.Alveg sama þótt að einhverjir gallar leynast hér og þar þá var heildarsagan svo skemmtileg og rússíbanareiðin svo svakaleg að ég gæti ómögulega sofið vel á næturnar ef ég myndi ekki gefa henni grjóthörð meðmæli. Það er ekki hægt að lýsa þessari upplifun betur. Ég sat gjörsamlega orðlaus eftir myndina og fann hvergi fyrir 160 mínútna lengdinni. Ræman þaut hjá og þegar hún kláraðist vildi ég endilega fá meira! Það segir mér að ég muni ábyggilega horfa á hana aftur og aftur, og síðan aftur í fimmta veldi. Þá er bara að vona að Cameron láti sig ekki hverfa aftur í mörg ár.9/10
Óskarsverðlaun fyrir tæknibrellur, kvikmyndatöku og listræna stjórn. Tilnefnd einnig sem besta mynd, fyrir leikstjórn, tónlist, klippingu, hljóð og hljóðvinnslu.