Náðu í appið
Bönnuð innan 12 áraMyndin dregur upp mynd af mismunun eða felur í sér efni sem getur hvatt til mismununarÍ myndinni er ljótt orðbragð

Junebug 2005

Fannst ekki á veitum á Íslandi
106 MÍNEnska
Rotten tomatoes einkunn 86% Critics
The Movies database einkunn 80
/100

George, eiginmaður galleristans Madeleine, sem er á leið að hitta listamann fyrir sunnan, sannfærir hana um að stoppa og hitta fjölskyldu hans í Norður Karólínufylki. Ríkmannlegur lífsstíll Madeleine veldur árekstrum við fjölskylduna, en hún eignast vinkonu í ófrískri mágkonu George, Ashley, sem er komin á steypirinn. Í gegnum fjölskylduna fær Madeleine... Lesa meira

George, eiginmaður galleristans Madeleine, sem er á leið að hitta listamann fyrir sunnan, sannfærir hana um að stoppa og hitta fjölskyldu hans í Norður Karólínufylki. Ríkmannlegur lífsstíll Madeleine veldur árekstrum við fjölskylduna, en hún eignast vinkonu í ófrískri mágkonu George, Ashley, sem er komin á steypirinn. Í gegnum fjölskylduna fær Madeleine betri innsýn í persónu George. ... minna

Aðalleikarar


Junebug er lítil mynd um nýgift hjón frá Chicago sem fara að hitta tengdó mannsins í Norður Karolínu. Fjölskyldan er öll stórfurðuleg og í mis góðu jafnvægi. Myndin er róleg og frekar hæg en samt ánægjuleg. Persónurnar eru sumar mjög skemmtilegar, sérstaklega Ashley sem er leikin af Amy Adams. Hún var tilnefnd til óskarsverðlauna fyrir myndina (tapaði fyrir Rachel Weisz í The Constant Gardener). Í heildina litið var myndin ánægjuleg en skildi lítið eftir sig. Það gerðist voðalega lítið en mikið er viljandi skilið eftir ósagt og bara gefið í skyn. Fín mynd.
Fannst þér gagnrýnin hjálpleg? Nei
Skrifa gagnrýni
Senda inn

Svipaðar myndir


Skrifa söguþráð
Fyrirsögn
Takk fyrir aðstoðina, þú ert stjarna.
Senda inn