Tveir færustu fulltrúar villta vestursins, þeir Jim West og Artemus Gordon, þurfa að bjarga Grant forseta úr klóm djöfullegs brjálaðs vísindamanns, Arliss Loveless, sem ætlar...
Tveir færustu fulltrúar villta vestursins, þeir Jim West og Artemus Gordon, þurfa að bjarga Grant forseta úr klóm djöfullegs brjálaðs vísindamanns, Arliss Loveless, sem ætlar sér að ná fram hefndum fyrir að hafa tapað borgarastríðinu.
Já, ég er sammála flestum að þessi mynd flokkast undir sem pure rusl. En þrátt fyrir það, þá eru brellurnar alveg allt í lagi. En náttúrulega er Salma Hayek mesta augnkonfektið í myndi…
Já, ég er sammála flestum að þessi mynd flokkast undir sem pure rusl. En þrátt fyrir það, þá eru brellurnar alveg allt í lagi. En náttúrulega er Salma Hayek mesta augnkonfektið í myndinni, hún er alltaf jafn falleg og vanalega. En myndi samt sleppa við að sjá þessa ræmu.
Satt að segja...þá er þetta ekkert slæm mynd. Ég er mjög sammála honum Helga Páli um að þetta sé ágæt grínmynd en ekkert meistaraverk. Wild Wild West fjallar um það að tveir menn, að nafni Jim West(Will Smith) og Artemus Gordon(Kevin Kline) sem eiga að stöðva vonda vísindakarlinum Arliss Loveless(Kenneth Branagh) sem ætlar að taka yfir ameríku með að skipta því í tvennt(langt síðan að ég sá þessa mynd) sem eiginn svæði. Þeir West og Gordon þurfa auðvitað að stöðva hann og tekst það? það fáum við að sjá í þessari mynd. Mér fannst þessi mynd bara ágætis skemmtun og ágætis grín enn nokkuð góður hasar í myndinni. Selma Hayek leikur aðalkonuna í myndinni sem er ekkert spes því að hún er eiginlega leiðinleg í þessari mynd og sömuleðis sá sem leikur forsetann í myndinni. Myndinn er leikstýrt af hinum vísindaskálds handritsmanni(eins og ég kýs að kalla hann) sem er Barry Sonnenfield(Men in black myndirnar). Ég er kominn með ógeð af þessum Will Smith sem er alltaf með svona hlutverk, þykist alltaf vera cool og þykist geta barið alla og þykist meira segja að vera fyndinn. Enn samt er hann og Kevin Kline að sýna ágætan leik sem skiptir svosem ekkert grýðalegu miklu máli því eins og ég sagði þá er þetta ágæt mynd. Myndinn hefði hinsvegar getað orðið miklu betri en varð það því miður ekki. Myndinn er ekki fyrir alla(eins og sé hvað allir hafa skrifað) enn ég segi bara hvað mér finnst,ekkert annað. Ég ætla klára þessa mynd með þessu orði: no more mister knife guy. Takk fyrir
Fyrsta orðið sem kom upp í hugann hjá mér eftir að vera búin að sjá þessa mynd var HJÁLP!!! Þessi mynd særði blygðunarkennd mína og mér finnst Hollywood vera með þessari mynd að ge…
Fyrsta orðið sem kom upp í hugann hjá mér eftir að vera búin að sjá þessa mynd var HJÁLP!!! Þessi mynd særði blygðunarkennd mína og mér finnst Hollywood vera með þessari mynd að gera grín að greind neytenda því enginn maður með fullu viti lætur bjóða sér þvílíkt sorp. Will Smith hefur hingað til ekki verið hátt skrifaður sem kvikmyndaleykari en með þessari minn hefur hann sokkið niður á botn. Þessi hálfa stjarna er tilkomin vegna þess að Kevin Klein átti nokkrar skondnar línur í myndinni en annars er ekkert við þessa "kvikmynd" ef svo mætti kalla þetta klúður. Varist þessa mynd eins og heitan eldinn og þá mun allt fara vel.
Þetta er ein versta mynd sem ég hef séð koma frá Hollywood og það er undarlegt miðað við hvaða hæfileikafólk stendur á bakvið hana að hún skuli vera þessi hryllingur. Þessi mynd er …
Þetta er ein versta mynd sem ég hef séð koma frá Hollywood og það er undarlegt miðað við hvaða hæfileikafólk stendur á bakvið hana að hún skuli vera þessi hryllingur. Þessi mynd er hreinlega kvöl og pina til áhorfunar og ætti með réttu að vera flokkuð sem pyntingartól.
Þetta hefur örugglega átt að vera algjör hitt mynd, en eitthvað mistókst því hún floppaði alveg í Bandaríkjunum. Will Smith er agalega þreyttur leikari svo ekki sé meira sagt, alltaf ei…
Þetta hefur örugglega átt að vera algjör hitt mynd, en eitthvað mistókst því hún floppaði alveg í Bandaríkjunum. Will Smith er agalega þreyttur leikari svo ekki sé meira sagt, alltaf eins mynd eftir mynd. Kevin Kline er greinilega búinn að missa allan metnað út af því að lét hafa sig að leika í þessari þvælu. Myndin fær eina stjörnu fyrir tæknibrellur og alla umgjörð, sem er glæsileg. Með öðrum orðum þessi mynd eru vonbrigði...
Þetta er rusl og aftur rusl.Will Smith er náttúrúlega engin leikari hann er alltaf ömulegur. Hann er þó pínu skárri leikari en söngvari ef söngvari skyldi kalla. Hann er skömm fyrir allt …
Þetta er rusl og aftur rusl.Will Smith er náttúrúlega engin leikari hann er alltaf ömulegur. Hann er þó pínu skárri leikari en söngvari ef söngvari skyldi kalla. Hann er skömm fyrir allt sem heitir rapp. Ég er mest hissa á að Klænarinn skuli láta hafa sig út í þessa vitleysu, sá tekur niður fyrir sig. En það er ljóst að þetta er flopp árins punktur basta..
Ég varð fyrir mjög miklum vonbrigðum. Ég hef aldrei séð Will Smith leika í svona leiðinlegri kvikmynd. Vel gerð að mörgu leiti en síðan koma kaflar sem voru full gerfilegir. Ég mæli ek…
Ég varð fyrir mjög miklum vonbrigðum. Ég hef aldrei séð Will Smith leika í svona leiðinlegri kvikmynd. Vel gerð að mörgu leiti en síðan koma kaflar sem voru full gerfilegir. Ég mæli ekki með þessari mynd.
Ein almesta della sem ég hef á minni fulllöngu ævi séð. Þó leikararnir séu ekki af verri endanum og geri allir sem einn sitt besta er efniviðurinn sem þeir hafa í höndunum fúinn og léle…
Ein almesta della sem ég hef á minni fulllöngu ævi séð. Þó leikararnir séu ekki af verri endanum og geri allir sem einn sitt besta er efniviðurinn sem þeir hafa í höndunum fúinn og lélegur. Einhvernveginn virðist vera fullkominn skortur á handriti og myndin leysist upp í bull hvað eftir annað. Og til að kóróna allt - svertingi á 19. öld, rífandi kjaft í New Orleans... hefði líklega ekki enst út mínútuna. Sleppið þessari endilega.
Djöfulsins kjaftæði var þessi mynd! Vá, ég hef sjaldan verið vitni að slíkri peningasóun! Maður sér peningana brenna á tjaldinu, peninga sem hefðu getað verið nýttir í svo margt anna…
Djöfulsins kjaftæði var þessi mynd! Vá, ég hef sjaldan verið vitni að slíkri peningasóun! Maður sér peningana brenna á tjaldinu, peninga sem hefðu getað verið nýttir í svo margt annað. Af hverju var þessi mynd gerð? Handritið er svo ömurlegt að ég mun aldrei geta lýst því. Will Smith er svo ástfanginn af sjálfum sér að manni finnst skrítið að hann sé svona hrifinn af Sölmu Hayek í myndinni. En samband þeirra er svo illa skrifað og svo laust við neista að maður tekur varla eftir því. Salma Hayek er yfirleitt skemmtileg leikkona, en hún getur ekki bjargað ömurlega þunnri og illa skrifaðri persónu sinni frá þessari klisju. Kevin Kline er að leika í einvherri annari mynd, vegna þess að samleikur hans og Smith er svo ósannfærandi og hallærislegur að manni langar að æla. Kenneth Branagh kreystir það sem hægt er úr klisjunni sem kölluð er persónan hans. Hann leikur vonda kallinn sem er hálf tæknibrella. Branagh er svo ólíkur sjálfum sér í þessari mynd að maður er varla viss hvor helmingurinn er gerður í tölvu - það er erfitt að trúa því að meistarinn sem gerði Hamlet geti séð sér fært um að leika í slíkri hörmung. Sviðsmyndirnar og kvikmyndatakan (í höndum Bo Welch og Stefan Czapsky) eru til fyrirmyndar og eru það eina góða í þessari mynd, ásamt nokkrum verulega góðum brellum. En hvað voru þessir tveir meistarar að hugsa? ÞEIR UNNU HJÁ TIM BURTON! Þessi mynd er svo fyrirlitleg að ég gat ekki einu sinni horft á hana í heilu lagi, ég varð að klára hana daginn eftir, og ég vildi að ég hefði látið það ógert vegna þess að ég finn hvernig heimska þessarar myndar er að síast inn í mig. Ég verð heimskari með degi hverjum eftir að hafa séð þessa mynd. Ég hélt meira að segja áðan að Barry Sonnenfeld, sem gerði Addams Family og Men in Black, hefði gert þennan hundaskít í dulbúningi. Æi, já! Nú man ég! Hann gerði þessa mynd víst. Ó hvað ég er heimskur! Ef þið viljið finna fyrir því hvernig helvíti er í tvo klukkutíma, leigið þá þessa mynd. Hún mun örugglega fá ykkur til að íhuga sjálfsmorð alvarlega. Og svo skuluð þið framvegis kalla þessa mynd hennar rétta nafni: Wild Wild WORST. Vá hvað hún átti Razzies verðlaunin skilið! ÖLL FIMM!!!!! Takk Guð!
Ein stærsta sumarmyndin í ár gerist á tímum vilta vestursins og fjallar um það hvernig félagarnir Jim West (Will Smith) og Artemus Gordon (Kevin Kline) berjast við brjálaða vísindamanninn…
Ein stærsta sumarmyndin í ár gerist á tímum vilta vestursins og fjallar um það hvernig félagarnir Jim West (Will Smith) og Artemus Gordon (Kevin Kline) berjast við brjálaða vísindamanninn Arliss Loveless (Kenneth Branagh) til þess að hindra áform hans um að tortíma Bandaríkjastjórn og skipta landinu aftur upp á milli nýlenduveldanna. Eftir að hafa séð mikið af neikvæðri gagnrýni um myndina kom hún mér skemmtilega á óvart og reyndist vera ágætis skemmtun. Þetta er ekkert meistaraverk en samt hress blanda af gríni, spennu og vísindaskáldskap. Leikararnir eru frekar traustir og tekst að mestu leiti að halda myndinni ágætlega á floti. Það væri tímasóunn að spá í hversu óraunveruleg myndin er þar sem hún gerist greinilega ekki í sama heimi eðlisfræðilögmála og við búum í. Húmorinn er frekar brokkgengur, sumt er skondið en annað með ólíkindum hallærislegt eins og setningin "No more mister knife guy" sem Smith fer með eftir að hafa ráðið örlögum náunga sem hefur hnífa fyrir hendur. Í samanburði við þetta eru sambærilegar setningar Arnold Schwarzeneggers úr ýmsum myndum eins og eitthvað eftir Shakespeare. Tæknibrellurnar eru aftur á móti augnakonfekt og einstaklega vel úr garði gerðar. Í stuttu máli er þetta ágætis ævintýramynd fyrir þá sem eru að leita sér að léttri afþreyingu.