Myndin er framhald myndarinnar El Mariachi. Hún byrjar á því þegar farandsöngvari er tekinn í misgripum fyrir leigumorðingja og flækist þar með inn í flókinn vef ástar, spillingar og dauða. Í þetta sinn ætlar hann að hefna fyrir morðið á ástkonu sinni og limlestingu á höndinni á honum sem átti sér stað í fyrri myndinni. Í myndinni láta margir lífið og inn í söguna blandast falleg kona sem vinnur fyrir eiturlyfjabaróninn á staðnum, en allt endar þetta svo í blóðugum lokabardaga.
Snilldarmynd. Framhaldið af El Mariachi er ekkert síðra en forverinn, er jafnvel betri. Antonio Banderas er kominn í hlutverk El Mariachi og er hann alveg tilvalinn í þessu hlutverki. Svo er Sal…
Snilldarmynd. Framhaldið af El Mariachi er ekkert síðra en forverinn, er jafnvel betri. Antonio Banderas er kominn í hlutverk El Mariachi og er hann alveg tilvalinn í þessu hlutverki. Svo er Salma Hayek alltaf jafn glæsileg og er mjög fín í hlutverki bókasafnskonunnar. Hefur virkilega mikinn action, mikið af sprengingum og er afbragðsskemmtun fyrir alla sem fíla alvöru action myndir. Soldið ógeðsleg, og þá sérstaklega í bardagaatriðinu þar sem eitt atriðið getur farið í veikt fólk. En samt snilldarverk og ein af betri myndum Rodriguez til þessa.
Ég var að versla í kolaportinu nokkrar myndbandsspólur á tilboði og Desperado var ein af þeim. Ég hafði ekki séð hana lengi og vildi endurnýja kynnin. Skemmtileg er hún og betri heldur en…
Ég var að versla í kolaportinu nokkrar myndbandsspólur á tilboði og Desperado var ein af þeim. Ég hafði ekki séð hana lengi og vildi endurnýja kynnin. Skemmtileg er hún og betri heldur en Once upon a time in Mexico(myndin sem fylgdi á eftir)en alls ekki gallalaus, myndin verkar á köflum ekki alveg nógu sannfærandi og handritið er skrifað á frekar flatan hátt. Myndin reynir að fá okkur til að hlæja öðru hvoru en því miður byggjast alltof margir brandarar á bjór sem bragðast eins og hland. En það er bætt upp með kraftmiklum hasar sem er gaman að horfa á og í hófi er fókuserað á ýmisskonar smáatriði sem telst nú varla neitt annað en gott. Antonio Banderas er skemmtilegur leikari og er svalur hér en hann tekur ekki að sér nógu fjölbreytt hlutverk og vona ég nú að hann fari að bæta úr því. Svo koma Quentin Tarantino og Steve Buscemi sterkir inn og slá ekki feilnótu. Niðurstaðan er sú að Desperado er hasarhlaðin tveggja og hálfrar stjörnu skemmtun og er áhorfsins verð. Án alls vafa.
Desperado er mynd númer tvö af öllum þrem El Mariachi myndunum og fyrsta heitir einfaldlega El Mariachi, svo þessi Desperado og svo Once Apon A Time In Mexico sem er þriðja myndin. Ég bara sé…
Desperado er mynd númer tvö af öllum þrem El Mariachi myndunum og fyrsta heitir einfaldlega El Mariachi, svo þessi Desperado og svo Once Apon A Time In Mexico sem er þriðja myndin. Ég bara séð tvær El Mariachi myndir og það voru Desperado og Once apon a time in mexico. Að mínu mati finnst mér Desperado vera betri en hin en samt finnst mér Once apon a time in mexico vera góð. Quentin Tarantino kemur aðeins inní myndina og segir einn góðan brandara og ekki neitt meira. Brandarinn hljómaði svona: Maður kemur inná bar og segir við barþjóninn að setja glas á endanum á barborðinu, svo segir hann ég ætla að veðja upp á 50 dollara að ég gæti pissað frá hinum endanum á barborðinu í glasið sem er á hinum endanum. Barþjónnin tekur veðmálinu og maðurinn fer upp á borðið og mígur yfir allt borðið og barstólana og yfir allan barþjóninn og svo þegar maðurinn er búinn þá brosir hann. Þá sagði barþjóninn af hverju ertu svona glaður þú tapaðir 50 dollurum, þá sagði maðurinn sérðu mannin þarna ég gerði veðmál við hann upp á 500 dollara og ég gæti migið yfir allan barinn og barþjóninn og þú yrðir glaður yfir því. Quentin Tarantino er snillingur ég gaf þessari mynd hálfa stjörnu í viðbót útaf því að Quentin Tarantino var í þessari mynd. Þessi mynd fjallar um mann(Antonio Banderas) sem er að leita af manni sem heitir Bucho(Joaquim de Almeida) sem drap konu hans fyrir löngu síðan og hann ætlar að drepa hann. Aðalhlutverk: Antonio Banderas(The Mask Of Zorro), Salma Hayek(From Dusk Till Dawn) og Joaquim de Almeida, ég gef þessari mynd þrjár og hálfa stjörnu.
Robert Rodriguez er snillingur. Desperado er frábær mynd. Alveg rosalega over-hyped. Eitt skot í mann og hann flýgur 10 metra í burtu, fyndið en á að vera það. Húmorinn er snilld, gaman…
Robert Rodriguez er snillingur. Desperado er frábær mynd. Alveg rosalega over-hyped. Eitt skot í mann og hann flýgur 10 metra í burtu, fyndið en á að vera það. Húmorinn er snilld, gaman að sjá Quentin Tarantino í cameo fyrri hluta myndarinnar.
Ja, hvað skal segja...þetta er mynd sem ég hef horft á nokkrum sinnum og má með sanni segja að hún sé ein af mínum uppáhaldsmyndum. Hasarinn og sprengingarnar eru náttúrulega ekki fyrir a…
Ja, hvað skal segja...þetta er mynd sem ég hef horft á nokkrum sinnum og má með sanni segja að hún sé ein af mínum uppáhaldsmyndum. Hasarinn og sprengingarnar eru náttúrulega ekki fyrir alla og yfirleitt ekki fyrir mig...EN jú með skemmtilegum stíl og að mínu mati skemmtilegum söguþráði þá náði þessi mynd athygli mína frá fyrstu mínútu...ATH: muna að kaupa þessa mynd á DVD...úps, þið sjáið hvað ég er með skemmda athygli, þannig að þetta getur ekki verið annað en frábær mynd. Ég var reyndar búinn að ákveða að gefa henni ekki fjórar störnur en datt ekki í hug neitt sem gat dregið myndina niður, þannig að fjórar stjörnur skal það vera.
Ótrúlega flott mynd um mann (Nafnlaus leikinn af Banderas) sem kemur til að hefna kærustu sinnar. Hann hittir Carolinu (Hayek) og þau fara saman til að ná sér niður á Bucho sem er morðóðu…
Ótrúlega flott mynd um mann (Nafnlaus leikinn af Banderas) sem kemur til að hefna kærustu sinnar. Hann hittir Carolinu (Hayek) og þau fara saman til að ná sér niður á Bucho sem er morðóður, skapbráður og miskunarlaus maður. Mikið blóð er í þessari mynd og skaut Banderas alla áður en hann gat sagt bless. En það eyðileggur varla myndina eða...ekki fannst mér það. Ég mæli stórlega með þessari. Beware ! Fólk sem kemur og horfir á myndina bara út af því að Quinten Tarrantino leikur í henni ekki fara á hana. Hann er nefnilega drepin strax. En hann nær samt svona Golden moment.
Ein stílískasta mynd seinni tíma. Byssubardagar alveg hægri-vinstri svo minnir helst á gömlu spaghettívestrana, enda gerist myndin í sama umhverfi 130 árum seinna. Pottþétt skemmtun í strákapartýið og ekta sunnudagsþynnkumynd, en söguþráður er svo út í hött að tvær og hálf stjarna eru eiginlega hámarkið. Salma Hayek.... slef.