Besta mynd Sydney Pollack, það er bókað mál. Dustin Hoffman leikur Michael Dorsey, mann sem lendir í því leiðinda atviki að missa vinnu sína sem leikari. Hann ákveður því einn daginn að klæða sig sem konu og nefnir sig Tootsie til að fá hlutverk. Í gegnum gervi hennar kynnist hann Julie, og verður hrikalega hrifinn af henni. Og byrjar þá atburðarrás sem er einstaklega skemmtileg til áhorfs. Hoffman er alveg meiriháttar sem Dorsey/Tootsie, og Jessica Lange er alveg óaðfinnanlega góð sem Julie og vann Óskar fyrir sitt framlag. Tootsie er gamanmynd sem allir unnendur gamanmynda ættu að geta skemmt sér yfir.

Öllum leyfðSöguþráður
Atvinnulaus leikari sem þykir erfiður í samskiptum dulbýr sig sem konu til að fá hlutverk í sápuóperu. Michael Dorsey er atvinnulaus leikari sem á erfitt með að fá vinnu. Til að finna starf og til að hjálpa vini sínum að fjármagna leikrit sem hann er að skrifa, þá ákveður hann að klæða sig upp sem kona, Dorothy Michaels, og fær starf í sápuóperu í sjónvarpi. Dorsey finnur sig vel í hlutverkinu og verður smátt og smátt þessi kona sem hann leikur, og heillar konur um allt land og hvetur þær til að losna undan oki manna og verða meira eins og hún. Þetta nýja hlutverk setur Dorsey í skrítna stöðu þar sem hann / hún verður hrifin af mótleikkonu sinni, og faðir mótleikkonu hennar er einnig orðinn ástfanginn af honum/henni, og karlkyns meðleikari þráir ást hennar og alúð.
Aðalleikarar
Höfundar og leikstjórar

Cormac FungeLeikstjóri
Aðrar myndir eftir sama leikstjóra

Ewan McGregorHandritshöfundur

Murray SchisgalHandritshöfundur
Gagnrýni notenda (2)
Skráðu þig inn til að skrifa gagnrýni
InnskráMichael Dorsey, atvinnulausum leikara í Los Angeles gengur ekkert að fá vinnu í sínu fagi fyrr en hann klæðir sig upp eins og konu, kemst að með hlutverk í sápuóperu og slær eftirminnileg…
Gagnrýni af öðrum miðlum
Engar umfjallanir ennþá. Vertu fyrstur til að bæta við!
Framleiðendur

Mirage EnterprisesUS
Punch ProductionsUS

Delphi FilmsUS

Columbia PicturesUS
Verðlaun
🏆
Hlaut m.a. óskarsverðlaun og fjölda annarra verðlauna.














































