Our Idiot Brother
2011
Ekki aðgengileg á veitum á Íslandi
Frumsýnd: 9. september 2011
Er einn svona í þinni fjölskyldu?
90 MÍNEnska
70% Critics
51% Audience
60
/100 Ned er gæddur þeirri undarlegu "gáfu"
að geta komið sér í vandræði hvenær sem er, bara með því að segja
satt og vera kurteis.
Þannig endar hann í fangelsi þegar hann af einskærum drengskap
reddar einkennisklæddum lögreglumanni dálitlu grasi. Í framhaldinu
missir hann vinnuna, heimilið, kærustuna og forræðið yfir hundinum
sínum, Willie Nelson.
Ýmsir myndu... Lesa meira
Ned er gæddur þeirri undarlegu "gáfu"
að geta komið sér í vandræði hvenær sem er, bara með því að segja
satt og vera kurteis.
Þannig endar hann í fangelsi þegar hann af einskærum drengskap
reddar einkennisklæddum lögreglumanni dálitlu grasi. Í framhaldinu
missir hann vinnuna, heimilið, kærustuna og forræðið yfir hundinum
sínum, Willie Nelson.
Ýmsir myndu láta bugast af svona mótlæti en ekki Ned sem sér
alltaf björtu hliðarnar á málunum. Þess utan á hann góða að, móður
og þrjár systur, sem koma honum til hjálpar eftir fangelsisvistina
með því að leyfa honum að gista á meðan hann er að koma fótunum
undir sig á nýjan leik.
Vandamálið er að Ned er ekki bara lunkinn við að koma sjálfum sér
í vandræði, hann er einnig einkar laginn við að koma öllum sem
umgangast hann í vægast sagt óþægilega stöðu ...... minna