The Apparition
2011
Ekki aðgengileg á veitum á Íslandi
Once You Believe You Die.
82 MÍNEnska
3% Critics
24% Audience
18
/100 Hrollvekjandi spennumynd um ungt
par sem flytur inn í gamalt hús fyrir
utan Los Angeles og kemst fljótlega
að því að þau eru ekki ein í því.
Þau Ben og Kelly hafa nýlega komið sér
fyrir í húsi sem á árum áður var í eigu
móður Bens og því hluti af æskuminningum
hans líka. Ben er rafmagnstæknifræðingur
og hafði fyrir mörgum árum
ásamt skólafélögum... Lesa meira
Hrollvekjandi spennumynd um ungt
par sem flytur inn í gamalt hús fyrir
utan Los Angeles og kemst fljótlega
að því að þau eru ekki ein í því.
Þau Ben og Kelly hafa nýlega komið sér
fyrir í húsi sem á árum áður var í eigu
móður Bens og því hluti af æskuminningum
hans líka. Ben er rafmagnstæknifræðingur
og hafði fyrir mörgum árum
ásamt skólafélögum sínum gert tilraunir
til að útskýra hið yfirskilvitlega. Þessar
tilraunir fóru hins vegar úrskeiðis án
þess þó að nokkurn tíma kæmi í ljós
hvaða afleiðingar þær höfðu í för með sér.
Og það er ekki fyrr en nú að Ben gerir
sér grein fyrir því að einhver, eða eitthvað,
sem er ekki af þessum heimi situr um
hann og að þetta afl vill annað hvort hefna
sín á honum eða fá aðstoð hans til að
hverfa aftur til þeirra heima sem það
kom frá.
Smám saman verður málið alvarlegra
uns að því kemur að þau Ben og Kelly
fara að óttast um líf sitt. Og ekki að
ástæðulausu ...... minna