Mirror Mirror
2012
(Mjallhvít)
Frumsýnd: 20. apríl 2012
Ævintýrið um Mjallhvíti lifnar við
106 MÍNEnska
50% Critics
47% Audience
46
/100 Þegar drottning ríkisins deyr fær konungurinn sér nýja drottningu sem
reynist heldur betur flagð undir fögru skinni, og göldrótt þar að auki.
Hún einsetur sér að ná öllum völdum í ríkinu og er á góðri leið með að
takast það þegar hún verður yfir sig afbrýðisöm út í stjúpdóttur sína,
Mjallhvíti, sem er ekki bara fallegri en hún heldur líka... Lesa meira
Þegar drottning ríkisins deyr fær konungurinn sér nýja drottningu sem
reynist heldur betur flagð undir fögru skinni, og göldrótt þar að auki.
Hún einsetur sér að ná öllum völdum í ríkinu og er á góðri leið með að
takast það þegar hún verður yfir sig afbrýðisöm út í stjúpdóttur sína,
Mjallhvíti, sem er ekki bara fallegri en hún heldur líka réttborinn arftaki
krúnunnar.
Hin illviljaða drottning ákveður því að láta aðstoðarmann sinn fara með
Mjallhvíti út í skóg og tryggja að hún eigi ekki afturkvæmt.
Það verður Mjallhvíti hins vegar til lífs að vera bjargað af nokkrum
dvergum sem kenna henni síðan sitthvað um lífið og tilveruna.
En þegar drottningin uppgötvar að Mjallhvít er enn á lífi ákveður hún
að grípa til miður skemmtilegra ráða ...... minna