jOBS
2013
Frumsýnd: 6. september 2013
Some See What´s Possible, Others Change What´s Possible.
122 MÍNEnska
28% Critics
40% Audience
44
/100 Saga Steve Jobs stofnanda Apple tölvu - og hugbúnaðarrisans.
Við fylgjumst með Jobs jafnt í gegnum kappsemi hans og hugvitsemi þegar hann var ungur maður, til dekkri tímabila í lífi hans. Fylgst er með mestu sigrum, og ástríðu hans, kappi og áhuga á því að breyta hlutum.
Myndin er bæði dimm og einlæg og dregur ekkert undan. Við skyggnumst inn í sálardýpi... Lesa meira
Saga Steve Jobs stofnanda Apple tölvu - og hugbúnaðarrisans.
Við fylgjumst með Jobs jafnt í gegnum kappsemi hans og hugvitsemi þegar hann var ungur maður, til dekkri tímabila í lífi hans. Fylgst er með mestu sigrum, og ástríðu hans, kappi og áhuga á því að breyta hlutum.
Myndin er bæði dimm og einlæg og dregur ekkert undan. Við skyggnumst inn í sálardýpi mannsins, og komumst að því hvað drífur hann áfram, hver náðargáfa hans var, gallar, mistök, og mesti árangur í lífinu.
Steve Jobs var fæddur 24. febrúar árið 1955 og lést þann 5.
október 2011 eftir erfiða veikindabaráttu. Í þessari mynd er
saga hans sögð frá því hann var í skóla og stofnaði Applefyrirtækið
ásamt Steve Wozniak.
Myndin er gerð af leikstjóranum Joshua Michael Stern og fjallar
um upphafsárin í ferli Steve Jobs, þegar hann flosnaði úr skóla og
stofnaði Apple-fyrirtækið ásamt tölvuséníinu Steve Wozniak sem
var kominn vel á veg með að hanna eina af fyrstu heimilistölvunum
en hafði kannski ekki nægilega trú á verkefninu.
Þessu breytti Steve Jobs því hann sá gríðarlega möguleika í framtíðinni
og þeim tækifærum sem heimilistölvurnar sköpuðu og vann
að því í bílskúrnum heima hjá sér að hanna og koma fyrstu Mackintosh-
tölvunni á markað sem átti svo sannarlega eftir að taka
tölvuheiminn með trompi.
Það vita flestir framhaldið en Steve Jobs er í dag álitinn einn mesti
hugsuður og hugmyndafræðingur tölvubyltingarinnar og þeir eru
fáir sem ekki hafa notað eða nýtt sér einhverja af hugmyndum
hans og vörunum sem hann bjó til.... minna