Welcome to the Punch
2013
Frumsýnd: 27. september 2013
Núna eða aldrei.
99 MÍNEnska
47% Critics
36% Audience
49
/100 Breskur glæpamaður sem faldi sig á Íslandi snýr aftur til
Lundúna eftir að sonur hans er skotinn og gefur um leið
lögreglumanninum Max Lewinsky eitt tækifæri enn til að
handsama sig.
Þrjú ár eru liðin síðan hinn eitursnjalli Jacob Sternwood framdi
bíræfið rán í London ásamt félögum sínum. Minnstu mátti þó
muna að lögreglumaðurinn Max Lewinsky næði... Lesa meira
Breskur glæpamaður sem faldi sig á Íslandi snýr aftur til
Lundúna eftir að sonur hans er skotinn og gefur um leið
lögreglumanninum Max Lewinsky eitt tækifæri enn til að
handsama sig.
Þrjú ár eru liðin síðan hinn eitursnjalli Jacob Sternwood framdi
bíræfið rán í London ásamt félögum sínum. Minnstu mátti þó
muna að lögreglumaðurinn Max Lewinsky næði að hafa hendur í
hári hans en viðskiptum þeirra í það skiptið lauk með því að Max
lá óvígur eftir og Jacob komst undan.
Dag einn er komið að ungum manni sem liggur í blóði sínu eftir
að hafa verið skotinn. Í ljós kemur að þetta er Ruan Sternwood,
sonur Jacobs, og að hann hefur verið svikinn af fyrrverandi
félögum sínum.
Þegar Jacob fréttir þetta, þar sem hann er í felum á Íslandi,
ákveður hann að snúa aftur til Lundúna. Hann veit auðvitað að
þar með er hann um leið að ganga beint í gin ljónsins og að uppgjör
við Max er óumflýjanlegt ...... minna