Into the Woods
2014
Frumsýnd: 27. febrúar 2015
Be Careful what you Wish for.
125 MÍNEnska
71% Critics
49% Audience
69
/100 Myndin er nútíma útfærsla á ævintýrum Grimms bræðra í söngleikjaformi þar sem blandað er saman sögunum um Öskubusku, Rauðhettu, Jóa og baunagrasið, og Garðabrúðu, í eina nýja sögu þar sem við sögu koma bakari og eiginkona hans, og ósk þeirra um að stofna fjölskyldu, og samskipti þeirra við norn sem er búin að leggja á þau álög.
Bakarahjón... Lesa meira
Myndin er nútíma útfærsla á ævintýrum Grimms bræðra í söngleikjaformi þar sem blandað er saman sögunum um Öskubusku, Rauðhettu, Jóa og baunagrasið, og Garðabrúðu, í eina nýja sögu þar sem við sögu koma bakari og eiginkona hans, og ósk þeirra um að stofna fjölskyldu, og samskipti þeirra við norn sem er búin að leggja á þau álög.
Bakarahjón sem óska þess heitast að eignast barn fá óvænta heimsókn
nornar sem segist munu uppfylla ósk þeirra nái þau að safna
saman fjórum hlutum sem nornin þarf til að búa til galdraseyði.
Fyrir utan bakarahjónin sem leita þeirra fjögurra hluta
sem nornin vill fá fyrir að aflétta af þeim barnsleysisálögunum
eru persónurnar í sögunni sóttar í nokkur af
hinum þekktu Grimms-ævintýrum. Fara þar fremst í
flokki Rauðhetta, amman og úlfurinn, Öskubuska, stjúpmóðir
hennar, stjúpsystur og prinsinn, Jói og móðir hans
úr sögunni um baunagrasið og hin síðhærða Gullbrá og hennar prins.
Allar eiga þessar persónur sér einhverjar óskir, en ólíkt ævintýrunum er
ekkert víst að óskirnar rætist eins og vonir þeirra stóðu til, eða þá að þær
rætist á allt annan hátt en nokkurt þeirra hefði getað séð fyrir ...... minna