San Andreas
2015
Frumsýnd: 3. júní 2015
Where will you be, Who will you be with / A rescue pilot survived an earthquake, this is what happens next
114 MÍNEnska
48% Critics
52% Audience
43
/100 Reyndur þyrluflugmaður lendir í æsispennandi kapphlaupi við tímann þegar risajarðskjálfti ríður yfir Kaliforníu og leggur nánast allt í rúst.
San Andreas er stórslysa- og hasarmynd í stærri kantinum, en hún segir frá
því þegar nokkrir risajarðskjálftar upp á meira en 9 á Richterskvarða ríða
skyndilega yfir vesturströnd Bandaríkjanna og leggja ekki... Lesa meira
Reyndur þyrluflugmaður lendir í æsispennandi kapphlaupi við tímann þegar risajarðskjálfti ríður yfir Kaliforníu og leggur nánast allt í rúst.
San Andreas er stórslysa- og hasarmynd í stærri kantinum, en hún segir frá
því þegar nokkrir risajarðskjálftar upp á meira en 9 á Richterskvarða ríða
skyndilega yfir vesturströnd Bandaríkjanna og leggja ekki bara byggð í
Kaliforníu svo að segja í rúst með tilheyrandi mannfalli, ringulreið og neyð,
heldur rífa jörðina í sundur og skapa hættu á gríðarlegum flóðbylgjum.
Dwayne Johnson leikur þyrluflugmanninn Ray sem upplifir
jarðskjálftana úr lofti og reynir allt sem hann getur til
að bjarga fólki sem hann sér að er í lífshættu, þar á meðal
fyrrverandi eiginkonu sinni sem rétt sleppur upp í þyrluna
til hans áður en húsið sem hún er uppi á hrynur. Hugur
hans er því næst hjá dóttur þeirra, en hún er í San Francisco
þar sem allt er í rúst. En þótt staðan sé slæm er það versta samt enn eftir ...... minna